Þjóðlíf - 01.02.1988, Blaðsíða 22
MENNING
Úr myndinni „Broadcast News“.
myndarinnar - en hann hefur jafnframt veitt
Stone nrikilvægan aðgang að innstu innan-
búðarstarfsháttum spákaupmanna.
Eftir verðhrunið á Wall Street í október og
fjármálahneykslið í kringum spákaupmann-
inn Ivan Boesky, er jarðvegurinn unninn
fyrir vinsældir myndarinnar sem spáð er
Óskarnum í vor. Wall Street hefur þegar
fengið góðar viðtökur og þykir hafa allt til að
bera sem prýða má góða afþreyingarmynd -
en kannski ekkert umfram það. Charlie
Sheen og Michael Douglas eru í aðalhlut-
verkum og í toppformi, sér í lagi Douglas
sem leikur járnharðan fjármálabraskara af
verstu sort og hefur fengið einróma lof gagn-
rýnenda fyrir vikið.
Spielberg myndin, Empire of the Sun, er
dýrasta afurð Hollywood á þessari vertíð og
kostaði yfir 30 miljónir dollara í framleiðslu.
Viðfangsefnið er lítill drengur í stríðshrjáðu
Asíulandi. Columbia skákar fram snilldar-
verki ítalans Bertolucci, The Last Emperor,
Og tromp Orion er kvikmyndin Throw
Momma From the Train, með einum
fremsta leikara samtímans, Danny DeVito í
aðalhlutverki.
Twentieth Century frumsýndi aðra mynd
nokkru fyrir áramót sem hefur þegar náð
miklum vinsældum en þar er á ferðinni
myndin Broadcast News, sem fjallar um líf
sjónvarpsfréttamanns sent leikinn er af John
Hurt. Vikuritið Time setti myndina í hóp
bestu mynda síðasta árs.
Columbíu tókst ekki ætlunarverk sitt með
myndinni Leonard, Part 6, með sjálfum Bill
Cosby í aðalhlutverki. Prátt fyrir að myndin
væri talsvert dýrari en stórverk Bertoluccis
um Kínakeisarann. hefur hún þegar orðið
harkalega undir í vinsældahraðakstrinum
mikla í vetur. í það sama súra epli mega þeir
„Kastaðu mömmu út úr lestinni" er tromp
Orionkvikmyndafyrirtækisins í ár.
Warner bræður bíta, því hin feykidýra mynd
Nuts, með Barböru Streisand hefur þegar
fallið í skugga annarra mynda í frumsýninga-
veislunni þar vestra í vetur.
Stóru framleiðslu- og dreifingarfyrirtækin
í Bandaríkjunum hafa varið 300 miljónum
dollara í þær 30 myndir sem athyglin beinist
einkum að. Öll bjargráð eru höfð uppi til að
markaðssetja myndirnar og koma þeim í
efstu sætin. Það er ekki lengur nægilegt að
hafa formúlu að vinsælli mynd. Þegar sem
svarar milljarði ísl. króna liggja að baki
hverri mynd er aðeins um það að ræða að
komast á toppinn en verða undir ella. Það
verður aðeins eitt að leiðarljósi, mottó spá-
kaupmannsins Gordons Gekko í Wall Street
um græðgina: „greed is good, greed is right,
greed works, greed will save the U.S.A.“
Öðruvísi kveðskapur
Af Sigurði
Jónssyni
Sigurður Jónsson, Siggi ha, var fæddur
9.september 1859 í Hvítarsíðu og er sagt frá
honum í þættinum Hrakhólamenn eftir Þórð
Kristleifsson í Borgfirskri blöndu, þriðja
bindi. Sigurður þessi ólst upp við harðan
kost og var í vistum á ýmsum stöðum í Borg-
arfirði framan af ævi. Hann þótti sérkenni-
legur og þó sérstaklega eftirminnilegur fyrir
kveðskap sinn. en hann taldi sjálfan sig mik-
ið skáld. Skýringuna á skáldgáfu sinni hafði
hann á reiðum höndum:„Ég hef heyrt að
Bólu-Hjálmar hafi komið í Hvítársíðu-
Krókinn, þegar mamma var þar".
Vísur eftir Sigga ha eru margar fleygar.
Tilaðmynda þessi:
Hillir undir Húsafell,
þar býr ríkur bóndi,
Þorsteinn nokkur Magnússon,
hann á margar rollur.
Haft var eftir Sigga: „Þeir segjast vera
hættir að skilja mig núna —, ég sé orðinn
þungskilinn eins og Einar Benediktsson".
Presti sínum sagði Siggi til syndanna svona:
Það er Ijótur ósiður
eftir kristnum löguni
að hann séra Guðmundur
lætur binda hey á sunnudögum.
Síðustu æviárin bjó Sigurður Jónsson sem
einsetumaður í kofa einum í Borgarfirði, þar
sem hann andaðist 19.júlí 1932, 73 ára gam-
all.
Óskar Guðmundsson
22