Þjóðlíf - 01.02.1988, Page 28
FÓLK
Arftaki Stalíns
Malenkov og Stalín árið 1952.
Á dögunum lést Malenkov arf-
taki Stalíns, sem Spiegel segir í
dánarfregn á dögunum að hafi
verið „skrifborðsfjöldamorð-
ingi.“ Hann var 86 ára gamall,
snúinn til orthodox-trúar.
Það fór ekki mikið fyrir þessu
andláti, en síðustu árin hafði
Malenkov búið ásamt eigin-
konu sinni í Moskvu eftir að
hafa búið svo árum skipti í út-
legð við landamæri Kína. Hann
sást síðustu árin við innkaup í
flokkshestabúðum í Moskvu og
í sumaríbúðahverfi í Kratowo.
Malenkov hafði haldið sér
vel, með því að skreppa árlega í
hvergerðisvist í Woronowo-
heilsuhælið, þar til gamall bol-
séviki þekkti hann fyrir tilvilj-
un. Hinn undirgefni þjónn Stal-
íns og arftaki hans þrætti fyrir
að vera Malenkov. Gamli bol-
sévikinn átti Malenkov að
þakka 15 ára vist í þrælabúðum
og sagði við hann: „Ég sá sjálf-
ur undirskrift yðar á dóms-
skjölum mínum". Malenkov
varð fár við.
Malenkov gekk til liðs við
byltingarherinn á unga aldri en
eftir byltingu hóf hann nám í
rafmagnstæknifræði við Tækni-
háskólann í Moskvu. Þar var
hann í aganefnd sem leitaði
uppi Trotskyista og gekk inn í
flokksvélina. Fljótlega óx hon-
um ásmegin í þeirri maskínu og
1934 varð hann stjórnandi
starfsmannadeildar miðstjórn-
arinnar.
Malenkov varð mjög inn-
undir hjá Stalín, sem kunni vel
að meta þennan greinda þjón
sinn. Sagt er að Malenkov hafi
undirbúið sig vel undir fyrsta
fund þeirra: búið sig undir að
svara spurningum um fram-
leiðslutölur og lært utan að
ýmsar ræður Stalíns. „Þessi
maður er sjení" á Stalín að hafa
sagt. Hann var innsti koppur í
ofsóknarvél Stalíns í flokknum
og er t.d. sagður hafa tekið þátt
í pyndingum og farið sem
kommisar með dauðalista út
um víðan völl.
í stríðinu var Malenkov með-
al nánustu ráðgjafa Stalíns og
var tekinn inn í politbyro, póli-
tísku framkvæmdanefndina,
eftir stríð. Á síðasta flokksþingi
Stalíns 1952 lét Stalín hann
halda aðalræðuna — skýrskila-
boð um arftakann. Um vorið
lést einvaldurinn og Malenkov
hélt fyrstu minningarræðuna og
var kosinn í allar helstu stöður
Stalíns. En Malenkov var ekki
jafn snjall að halda völdum og
njóta þeirra í skjóli einvaldsins.
Eftir nokkurra ára harða valda-
baráttu var hann fyrst settur
niður í embætti raforkumála-
ráðherra og síðar sendur í hálf-
gildings útlegð sem rafveitu-
stjóri í Kasachstan.
Malenkov lést 14. janúar sl. og
var jarðsettur á kristilegan
máta í óþekktum kirkjugarði.
Spiegel
Vantar
þingmanns-
efni
Borgaraflokkurinn á Vest-
fjörðum fór illa út úr síðustu
kosningum og áhrifamenn í
flokknum eru sagðir vera að
leita að einhverjum landskunn-
um manni til að fara í víking
vestur. Á hinn bóginn ætla
heimamenn sér þessa virðing
og er talið líklegt að einhver úr
stjórn Borgaraflokksfélags
Vestfjarða sækist eftir hnoss-
inu. í stjórn þess og varastjórn
sitja: Gunnar Sigurðsson,
Gunnar Valdimarsson, Elvar
Jón Friðbertsson, Guðmundur
Þ. Sigurðsson, Gunnar Sverris-
son, Höskuldur Guðmundsson,
Inga Ruth Olsen, Magnús Sam-
úelsson, Ólafur Ögmundsson,
Bella Vestfjörð, Hafsteinn Að-
alsteinsson, Ingrid Ágústsson,
Magnús Guðmundsson og
Ragna Aðalsteinsdóttir. Ann-
ars segja vestfirskar heimildir
að gengi Borgaraflokksins
vestra ráðist af framboðum
hinna flokkanna Ef það verði í
svipuðum dúr og síðast, og ein-
hver litlaus taki við af Matt-
híasi, þá sé þingmaður í augsýn
Borgaraflokksins ...
Arftaki
Matthíasar ?
Meðal sjálfstæðismanna á
Vestfjörðum er nú byrjað að
velta vöngum yfir væntan-
legum arftaka Matthíasar
Bjarnasonar sem talið er víst að
muni leggja af þingmennsku og
setjast í helgan stein. Lengi vel
var Einar K. Guðfinsson júníor
í Bolungavík talinn manna lík-
legastur en þær stuðningsraddir
hafa dvínað. Sú er einnig sögn
að vestan, að fyrirtæki ættar-
innar í Víkinni standi ekki allt-
of vel burtséð frá allri pólitík.
Meðal þeirra sem orðaðir hafa
verið við þingframboð fyrir
Sjálfstæðisflokkinn eru sýslu-
menn tveir: þeir Stefán Skarp-
héðinsson á Patreksfirði og Pét-
ur Hafstein á Isafirði. Sá síðar-
nefndi æ oftar nefndur. enda
kominn í góðan þokka meðal
alþýðu manna vestra.
Ný stjórnar-
nefnd fatlaðra
Félagsmálaráðherra, Jóhanna
Sigurðardóttir, hefur nýverið
skipað formann í stjórnarnefnd
um málefni fatlaðra, sem er
æðsta stjórn þeirra mála í land-
inu. Áður var þar formaður
Sigurfinnur Sigurðsson frá Sel-
fossi en Jóhanna skipaði Grétu
Aðalsteinsdóttur hjúkrunar-
fræðing á Reykjalundi í em-
bættið. Auk hennar eru í
stjórnarnefndinni: Kolbrún
Gunnarsdóttir nýráðinn sér-
kennslufulltrúi ríkisins, Ingim-
ar Sigurðsson lögfræðingur í
heilbrigðsráðuneytinu, Ingi-
björg Pálmadóttir bæjarfulltrúi
á Akranesi, Hafdís Hannes-
dóttir félagsráðgjafi, Helgi
Seljan félagsmálafulltrúi Ör-
yrkjabandalagsins og Jón Sæv-
ar Alfonsson skrifstofustjóri.
Þrír þeir síðastnefndu eru full-
trúar Öryrkjabandalagsins og
Þroskahjálpar. Þau samtök
skipuðu nú í fyrsta sinn sameig-
inlega fulltrúa í nefndina og er
það í samræmi við áform um
nánara samstarf í framtíð-
inni..
28