Þjóðlíf - 01.02.1988, Page 60
BARNALÍF
„Estragon: Förum.
Vladimir: Við
getum það ekki.
Estragon: Því þá
ekki?
Vladimir: Við
erum að bíða eftir
Godot.u
Sögur, leikrit, ljóð eftir
Samuel Beckett. Þýðing
og umsjón. Árni Ibsen
308 bls. Verð kr. 2.390.-
Samuel Beckett er í hópi merkustu rithöfunda
þessarar aldar og hefur ef til vill öörum fremur
stuðlaö aö róttækum breytingum á skáld-
sagnagerð og leikritun eftir seinni heims-
styrjöld. Beckett. sem hlaut bókmenntaverölaun
Nóbels áriö 1%9, er áleitinn höfundur. einstakur
og frumlegur. en stendur jafnframt nær hinni
klassísku evrópsku bókmenmahefö en flestir
aörir nútímahöfundar.
Hann skilgreinir hlutskipti mannsins á guö-
lausri atómöld. lýsir leitinni aö tilvist og
samastað í veröld sem er á mörkunt lífs og
dauöa, þar sem tungumálið hevr varnarstríð viö
þögnina. Þrátt fyrir nær fullkomið getuleysi,
niðurlægingu og algera örbirgö mannskepnunnar
er henni lýst með miklunt húmor og af
ómótstæðilegri Ijóörænni fegurö.
í þessari bók eru sjö leikrit, sex sögur og
fjórtán Ijóð frá fimmtíu ára ferli. þar á meðal
þekktasta verk Becketts, leikritið Beöið eftir
Godot, í nýrri þýðingu. og eitt nýjasta snilldar-
verkið, hin stutta og magnaða skáldsaga
Félagsskapur. frá 1980. Þýðandinn er Árni lbsen
sem hefur um árabil kannað verk þessa
alvörugefna írska húmorista og hann skrifar
jafnframt inngang og skýringar. Þetta er í fyrsta
skipti sem verk Samuels Beckett eru gefin út í
íslenskri þýðingu.
----------------------v.
^vort á ftvftu
b----------------------r
BRANDARAR.
- Af hverju læðast Hafnfirðingar alltaf
fram hjá apótekum?
- Til þess að vekja ekki svefnpillurnar!
Einu sinni var ung kona sem átti hund.
Hundinn kallaði hún Nýjasta tíska. Pegar
svo konan var eitt sinn í baði slapp hundur-
inn út og varð henni þá svo mikið um að hún
hljóp allsber út á svalir og hrópaði og veifaði
á seppa sinn:
„Nýjasta tíska! Nýjasta tíska!"
(Þennan sagði sex ára stelpa okkur með
miklum tilþrifum og bætti svo einum „þjóna-
brandara" við):
- Þjónn. Það er fluga í súpunni minni.
- Þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur af
því. Hún borðar svo lítið.
Stína: Mamma, veistu að ég er besta söng-
konan í bekknum mínum!
Mamma: Hvernig veistu það?
Stína: Eg er alltaf búin fyrst.
Spurningakeppni
1. Hvað vann Jóhann Hjartarson skákmeistari margar skákir í
einvíginu við Victor Korcsnoi?
2. Hver var kjörinn íþróttamaður ársins 1987 af samtökum
íþróttafréttamanna?
3. Hvað heitir litla systir Emils í Kattholti?
4. Hvað hétu synir Nóa í Örkinni?
5. í hvaða stjörnumerki eru þeir sem fæddir eru 20. nóvember?
6. Hvaða flugvélategund nota Flugleiðir í innanlandsfluginu?
7. Hvað heitir hundur Tinna í Tinnabókunum?
8. Hvað heitir umsjónarmaður Poppkorns í sjónvarpinu?
9. í hvaða borg verða Ólympíuleikarnir haldnir næsta sumar?
10. Frá hvaða landi kaupum við Prins póló?
Skrifíð svörin á blað og sendið í umslagi, merkt: Barnalíf. Vestur-
götu 10. Pósthólf 1752. 101 Reykjavík.
Dregið verður úr réttum lausnum og vinningshafinn fær send
verðlaun frá Barnalífi.
^ya\&at
Krakkar! Þið skulið endilega senda okkur
sögur, brandara, gátur og teikningar sem við
birtuni í Barnalífi. Látið nöfn, aldur og heim-
ilisfang fylgja með. Utanáskriftin hjá okkur
er:
Barnalíf. Vesturgötu 10. Pósthólf 1752. 101
Reykjavík.