Þjóðlíf - 01.06.1988, Blaðsíða 9
INNLENT
Davíð Oddsson borgarstjóri og Magnús L. Sveinsson forseti borgarstjórnar á einum
vinnustaða sinna.
Alþýðuflokk, því samkvæmt könnuninni
ætla einungis 64% þeirra sem vilja Kvenna-
lista á þing, einnig að kjósa listann til borgar-
stjórnar, 20% ætla hins vegar að kjósa Sjálf-
stæðisflokkinn í borgarstjórn og 12% Al-
þýðubandalag. Pannig njóta einungis
Sjálfstæðisflokkur og Alþýðubandalag
meira trausts til borgarstjórnar en á þing
meðan hinir framboðsaðilarnir allir tapa frá
uppgefinni afstöðu til þingkosninga. í þessu
efni virðist vera flæði kjósenda milli Alþýðu-
bandalags, Kvennalista og Sjálfstæðisflokks.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn
kemur (þ.e. frá þingkosningum til borgar-
stjórnarkosninga) þá frá Alþýðuflokki(44%
þeirra sem vilja krata á þing), Framsóknar-
flokki(39% þeirra sem vilja kjósa Framsókn
á þing) og Kvennalista(20% þeirra sem vilja
Um framkvæmd
Félagsvísindastofnun gerði þjóðmála-
könnun dagana 27.maí til 4.júní 1988.
Leitað var til 1500 manna á aldrinum 18 til
75 ára, af öllu landinu. Upplýsinga var
aflað um ýmis atriði er tengjast þjóðfé-
lagsmálum og Reykvíkingar voru sér-
staklega spurðir um afstöðu til borgar-
stjórnar og til borgarstjóra. Sá hluti könn-
unarinnar var framkvæmdur fyrir Þjóðlíf.
Viðtöl voru tekin í síma. Alls fengust svör
frá 1085 manns af þeim 1500 sem komu í
úrtakið og er það 72.3%. Nettósvörun —
þegar frá upphaflegu úrtaki hafa verið
dregnir þeir sem eru nýlegar látnir, veik-
ir, erlendir ríkisborgarar og fólk sem
dvelur erlendis eða er að heiman — er
78.7%. Úrtakið er stórt og gefur því
mikla möguleika til greiningar á niður-
stöðum. Fullnægjandi samræmi er milli
skiptingar úrtaksins og þjóðarinnar allrar
eftir aldri, kyni og búsetu. Því má ætla að
úrtakið endurspegli þjóðina 18-75 ára,
allvel.
Kvennó á þing). En auk þess vilja 97%
þeirra sem kjósa Sjálfstæðisflokk á þing
einnig kjósa hann til borgarstjórnar.
Fylgi Kvennalistans í borgarstjórn kemur
frá Alþýðuflokki(8%) og Sjálfstæðisflokki
(3% af þeim sem vilja kjósa Sjálfstæðisflokk-
inn í þingkosningum). Og auk þess vilja 64%
þeirra sem velja Kvennalistann til þings
einnig gera það til borgarstjórnar.
Allir þeir sem velja Alþýðubandalagið til
þings(100%) vilja einnig kjósa það til borgar-
stjórnarkosninga en auk þess 12% þeirra sem
kjósa ætla Kvennalista til þings. Alþýðu-
flokkurinn fengi 48% af fylgi flokksins til
þings og 4% þeirra sem kysu Framsókn á
þing kysu krata í borgarstjórnarkosningum.
„Ekkert verið rætt“
„Það er nú fyrst til að taka að það hefur engin
ákvörðun verið tekin um framboð“, sagði
Elín G. Ólafsdóttir sem tekur við störfum
borgarfulltrúa fyrir Kvennalistann í næsta
mánuði.,,
Fylgi hreyfingarinnar hefur verið að auka-
stað undanförnu og ein skýringin gæti verið
sú að fólki líkaði okkar vinnubrögð, sem eru
allt önnur en þessara flokka. Við buðum
fram upphaflega gegn öllu því sem fyrir var
og ekkert hefur breyst síðan sem valdið gæti
breytingu hjá okkur. Við tökum ákvörðun
um framboð hverju sinni og við höfum vegna
alþingiskosninga aðeins rætt um hugsanleg
sameiginleg framboð á tveimur stöðum en
ekki í borgarstjórn. Þetta hefur alls ekkert
verið rætt í okkar hreyfingu enda hefur engin
ósk um slíkt komið fram. En ef til kæmi,
myndum við ræða málið alvarlega. Annars
er ég aðeins eitt strá í þeirri grasrót sem
myndar okkar hreyfingu og ég hef ekkert
umboð til að tjá mig persónulega um þetta
mál fyrr en það hefur verið rætt í hreyfing-
unni“.
9