Þjóðlíf - 01.06.1988, Blaðsíða 32

Þjóðlíf - 01.06.1988, Blaðsíða 32
MENNING Upp á vegg trónir stolt hvalsins, fremsti hluti búrhvalsreöurs.... veislu og þá eru eingöngu sauðfjárafurðir á boðstólnum. En eins og allir vita er þetta sá tími þegar yrðlingar læra að veiða lömb, svo er stjórnarfundur í sláturtíðinni á haustin.“ Þegar ég spyr hvort verið sé að ögra land- búnaðarstefnu ríkisstjórnarinnar segir hann að félagið kappkosti að efla hana. „Til dæmis er kvótastefnan runnin frá okkur. Við vorum fyrstir til að boða fækkun sauðfjár með ýms- um ráðum eins og að smala illa eða sleppa því og færa lömbin frá mæðrum sínum og reka þau á fjall. Þetta var 1977. Einnig bent- um við á nauðsyn þess að flytja umframfram- leiðslu á fjöll svo tófan fengi að njóta hennar. Við höfum alltaf verið á undan tímanum. Líkt og í öðrum félögum gegna stjórnar- menn embættum sem voru lögfest til lífstíðar ásamt nöfnum stjórnarmanna." Hvers vegna? „Við erum lítið gefnir fyrir lýðræðishjal og getum með þessu móti stýrt af festu og fram- sýni og forðast framapot og lýðræðisþrýsting sem stöðugt er ýtt undir. Og er á góðri leið með að eyðileggja Sambandið." Það væri fróðlegt að vita eitthvað um stjórnina. „Þorsteinn Jónsson ættfræðingur frá Still- holti er ritari og sér um bréfaskriftir innan- lands og utan. Gjaldkeri er Grétar Jónsson, afkomandi fjármála- og útgerðarmanna á Austurlandi. Tengiliður við bændur er valin- kunnur jarðfræðingur og bóndasonur að norðan, Árni Hjartarson. Forseti H.Í.T. er svo ég, Sigurður Hjartarson kennari af traustum norðlenskum ættum.“ Eru fjölmiðlar ekki áhugasamir um bar- áttumál ykkar? „Við stofnun félagsins heillaðist þjóðin og fjölmiðlar birtu allt sem frá okkur kom, nema Morgunblaðið, starfsmenn þess ráku okkur út þegar við komum þangað með fyrstu blaðaskrifin. Blaðið hefur þurft að gjalda þessa og ekki fengið að birta neitt um verndun tófunnar. Tíminn skilur ekki hin dýpri rök Tófuvina- félagsins og hefur vegna viðkvæmni sinnar oft neitað að birta skrif okkar. Blað alþýðunnar er alltaf mjög erfitt í um- gengni af ástæðum sem við þekkjum ekki. DV, sem er frjálslynt blað hefur oft birt ályktanir okkar en Þjóðviljinn birtir þó lang flest, hvort sem það er vegna hagsmunaleysis í landbúnaðarmálum eða hann skilur ekki eðli málflutnings okkar. Tilkynningar okkar og áróður hafa átt greiða leið að hinum fijálsu útvarpsstöðvum, en RÚV og sjónvarpið eru hlynntari Sauð- fjárverndinni en okkur þó við leggjum sér- staka rækt við íhaldssemi.“ Um fjáröflun segir Sigurður: „í tíð núverandi ríkisstjórnar höfum við ekkert leitað til fjárveitingavaldsins. Hins- vegar sótti ég um embætti veiðistjóra árið 1984, en markmið hans er að útrýma tófu- stofninum. En bændur þekktu ekki sinn vitj- unartíma og réðu annan mann. Markmiðið var að komast á jötuna, nota peningana til tófuverndar í krafti embættisins. Umsóknin olli talsverðu ullarfoki og með blaðaskrifum var reynt að sverta Hið íslenska tófuvinafé- lag. Fremstir fóru ýmsir landsbyggðarmenn sem fylgdust of vel með „Tímanum". Það hefur mikið dregið úr öllum ofstopa í garð félagsins og ungt fólk skilur þessa baráttu betur en sú kynslóð sem óðum hverfur." Sigurður er maður sem nýtur þess að tala um áhugamál sín þegar hlé gefst frá daglegu striti og hugir okkar reika víða, en nú verð ég aftur að beina samtalinu að fjármálunum. „Peningamálin já, eins og ljóst er af félags- gjaldinu þá snýst starf okkar ekki um pen- inga, þó neitum við ekki gjöfum og áheitum framsækinna manna. Því fé yrði varið í áróð- ursherferðir og vísindaleiðangra stjómar- manna innanlands og utan. Svo væri gott að 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.