Þjóðlíf - 01.06.1988, Blaðsíða 57
VIÐSKIPTI
Frá einum af fyrri leiðtogafundum vestrænna valdamanna.
Risarnir sjö funda í Toronto
Nítjánda júní til tuttugasta og fyrsta júní fer
fram hinn árlegi fundur leiðtoga vestrænu
efnahagsrisanna sjö: Bandaríkjanna, Japan,
Vestur-Þýskalands, Englands, Frakklands,
Ítalíu og Kanada. Að þessu sinni fer fundur-
inn fram í Toronto, mestu „bissness-borg“
Kanada.
Vestræni Efnahagsfundurinn var fyrst
haldinn árið 1975 vegna ýmissa vandamála í
alþjóða efnahagsmálum er þá skutu upp
kollinum. Ein aðal ástæðan voru ný efna-
hagsvandamál sem spruttu upp eftir fyrstu
olíukreppuna árið 1973. Önnur ástæða, ekki
veigaminni, var vöntun á alþjóðlegu hag-
fræðiskipulagi, eftir fall„ Breton Woods", til
að koma lagi á efnahagskerfi sem sífellt varð
flóknara og flóknara er viðskipti innan þess
jukust og aðildarríkin urðu sífellt meir og
meir innbyrðis háð efnahagslega.
Frá upphafi hafa aðal málefni þessa funda
að sjálfsögðu verið efnahagslegs eðlis, þótt
oft hafi megin stjórnmál þáverandi tíma bor-
ið á góma, svo sem samskipti Austurs og
Vesturs, hryðjuverk og mál flóttamanna.
Fastlega má búast við því nú að allavega í
matarhléum verði rætt um afvopnun risa-
veldanna og Austurlönd nær, sem og önnur
pólitísk hitamál.
Það hefur verið venja hingað til að gest-
57