Þjóðlíf - 01.06.1988, Blaðsíða 40

Þjóðlíf - 01.06.1988, Blaðsíða 40
Sykurmolarnir hafa verið á hvers manns vör- um síðan það spurðist að Ammæli hefði verið valið lag mánaðarins í breska tónlistar- blaðinu Melody Maker síðasta haust. Þá fór skriðan af stað ytra og íslenskir fjölmiðlar tóku þá margir eftir því að Sykurmolarnir voru hljómsveit sem mark var á takandi. í dag hafa Molarnir náð lengra á alþjóða- markaði en nokkur íslensk hljómsveit og eins og mál standa eru miklar líkur á að hljóm- sveitin eigi eftir að ná enn lengra. Það er ekkert smámál að selja kannski 6-700.000 plötur á einu ári og reyndar ekki á færi nema ráðsettra poppsveita erlendra. Sú sem þetta ritar er ein þeirra lánsömu sem áttuðu sig snemma á Sykurmolunum og gerði sér því far um að sjá þá á sem flestum tónleikum sér til skemmtunar. Þegarþetta er ritað hef ég séð Sykurmolana sautján sinnum frá því í ársbyrjun 1987 og staðan því 17-0, því aldrei hefur hljómsveitin komið að sjá mig. Frammistaða sveitarinnar hefur verið misgóð á þeim tíma, sem vonlegt er, en þó alltaf á þann veg að fáar eða engar sveitir standa henni á sporði. Af þessum sautján tónleikum eru allmarg- ir sem eru eftirminnilegir í meira lagi, s.s. tónleikar á Hótel Borg 30. júlí, í Town and Country Club 14. október, í Hart rokk kaffi 22. október, í Casablanca 30. október 1987, í Town and Country Club 11. desember, í Hót- el íslandi 17. mars, í Duus 27. og 28. apríl ogí Cambridge Theater 21. maí. A öllum þeim tónleikum sem taldir eru hér að framan hafa Sykurmolarnir staðið sig með slíkum ágæt- um að ekki verður um villst að það fer ein fremsta tónleikasveit Vestur-Evrópu. Hér verður reynt að segja eilítið frá tón- leikum Sykurmolanna í Cambridge Theater, en þeir tónleikar voru punkturinn yfir i-ið í tónleikaför Molanna um endilangt Bretland. Tveimur kvöldum áður hafði sveitin leikið í Astoria tónleikastaðnum í Lundúnum og tryllt þar um 2.000 áheyrendur. Á Astoria- tónleikunum voru þeir sem féllu fyrir Mol- unum þegar í upphafi í Bretlandi; þeir sem láta sig ekki vanta á fyrstu Lundúnatónleik- ana en koma kannski ekki á aðra tónleikana, „lausafylgið". í Cambridge Theater voru aft- ur á móti annarskonar áheyrendur, í flestu settlegri og venjulegri áheyrendur, sem telja má næstu bylgjuna, næsta hóp sem fellur fyrir tónlist Molanna (uppar?). Cambridge Theater er ólíkt glæsilegri tónleikastaður en Astoria, enda voru þetta fyrstu rokktónleik- arnir sem haldnir voru í húsinu. Það er allt hlaðið skrauti og dyraverðir einkennis- klæddir. Á undan Molunum þetta kvöld lék drep- leiðinlegur breskur dúett, Sleeping Dogs Wake, og í kjölfar hans sigldi síðan ein þekktasta neðansjávarsveit Breta, The Jesus and Mary Chain, sem kölluð hefur verið Da- isy Hill Puppy Farm Bretlands. Jesús og Ma- ríukeðjan er þekkt fyrir það að halda yfirleitt ekki tónleika en að þessu sinni lék sveitin ein fjögur lög nær órafmögnuð. Það kom mörg- um á óvart þegar það spurðist út að Jesus and Mary Chain léki sem upphitunarhljómsveit fyrir Molana, en forfallnir Molaaðdáendur kippa sér ekki upp við slíkt. Tónleikarnir Sykurmolanna hófust á því að Einar og Björk komu fram á sviðið og buðu fólk velkomið á íslensku. Þau ræddu við áheyrendur'um stund á íslensku og báðu fólk að láta fara vel um sig á allan hátt, enda myndi sveitin kappkosta að leika sem þægi- legasta tónlist og bentu fólki á að reykingar væru ekki leyfðar í tíu fremstu sætaröðun- um. Einar bætti því við að hljómsveitin væri komin alla leið frá íslandi til að láta áheyr- 40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.