Þjóðlíf - 01.06.1988, Blaðsíða 54
UMHVERFI
Vantar hreinsibúnað á bílana
Blýlausa bensínið
einungis fyrsta
skrefið
Fyrir slysni kom heill farmur af blýlausu
bensíni til íslands og síðan hafa margir meng-
að eitthvað minna af umhverfinu en áður. Á
hinn bóginn hefur breytingin orðið minni en
margur hugði og af hálfu stjórnvalda er ekk-
ert gert til að hvetja til notkunar blýlauss
bensíns. Munu stjórnvöld ákveða verðlækk-
un til að hvetja til meiri notkunar blýlauss
bensíns? Hvarvetna hefur verið litið á blý-
laust bensín einungis sem hluta af minni
mengun af völdum útblásturs — í framhald-
inu eru gerðar kröfur um hreinsibúnaö á
bifreiðar.
Hollustuvernd ríkisins hefur eftirlit með
loftmengun og innan þeirrar stofnunar
mengunvarvarnardeild. Það er sú deild,
undir forystu Sigurbjargar Gísladóttur sem
séð hefur um mengunarmælingar við Mikla-
torg. Við spurðum hana hvenær væri að
vænta minni mengunar í kjölfar blýlausa
bensínsins. „Það fyrsta sem ætti að sjást er
einfaldlega að blýið minnki í því ryki sem við
mælum. En það er auðvitað ekki nema lítill
hluti af menguninni frá útblæstri og spurn-
ingin hlýtur að vera sú hvort í framhaldi af
blýlausu bensíni, verði gerðar kröfur um
hreinsibúnað á bílana. Hér er því um tvíþætt
mál að ræða annars vegar að losna við blý úr
bensíni og hins vegar að búið er að opna
möguleikana fyrir að hreinsa útblásturinn
með þar til gerðum útbúnaði", sagði Sigur-
björg Gísladóttir.
Loftmengunarmælingarnar eru bæði tíma-
frekar og fjárfrekar og þeim hefur ekki verið
sinnt nema að mjög takmörkuðu leyti hér-
lendis. Yfirleitt fara mörg sýni frá löngum
tíma til rannsóknar og greiningar í einu. Af
þessum ástæðum gæti t.d. liðið langur tími
þar til raunhæfar upplýsingar fengjust um
loftmengun eftir að blýlausa bensínið kom til
sögunnar. Sigurbjörg benti enn fremur á að
enn sem komið væri gæti notkun blýlausa
bensínsins verið einungis milli 20% og 30%
en yfirgnæfandi meirihluti bifreiða notaði 98
oktana bensín. Ef sú tilgáta væri rétt, væri
þess ekki að vænta að minni mengun mældist
nú en á sama tíma í fyrra.
Sigurbjörg kvaðst ekki vita hvers vegna
stjórnvöld hvettu ekki til notkunar á blý-
lausu bensíni, erlendis væri þetta m.a. gert
með því að lækka verð á því. „Ef til vill er
það eðlilegt, vegna þess að blýlausa bensínið
Magni Ólafsson afgreiðir hreinna bensín
en umhverfið bíður eftir hreinsibúnaði á
bílana.
(Myndir: Marissa Arason)
kom aftan að öllum ef svo má segja hingað til
lands. Hollustuverndin átti ekki frekar en
aðir von á þessu núna, — við munum náttúr-
lega mæla með því að sem mest sé notað af
blýlausu bensíni“.
Fram að þessu hefur verið sáralítil um-
ræða hér á landi um blýlaust bensín og
hreinsibúnað á bifreiðar, þrátt fyrir að ein-
mitt slík umræða hafi verið snar þáttur í póli-
tík bæði í Vestur-Evrópu og Bandaríkjun-
um. Guðrún Helgadóttir lagði fram tillögu á
alþingi um að þetta mál yrði sérstaklega
skoðað og sl. vor var samþykkt að setja
nefnd á laggirnar til að kanna hvort lögleiða
ætti blýlaust bensín hérlendis og hvernig ætti
að standa að því máli. Rétt eftir að nefndin
tók til starfa kom farmurinn af blýlausa bens-
íninu öllum að óvörum, þannig að erindi
nefndarinnar hefur verið breytt. Formaður
nefndarinnar er Solveig Pétursdóttir, en aðr-
ir í henni eru: Jón Bragi Bjarnason, Margrét
Frímannsdóttir, Bjarni Snæbjörn Jónsson og
Jónas Bjarnason, en starfsmaður nefndar-
innar er Ágúst Þór Jónsson.
Meðal þess sem verið er að velta fyrir sér
eru reglur fyrir Bifreiðaeftirlit ríkisins um
takmörkun á útblástursmengun. íslendingar
hafa verið mjög á eftir nágrannaþjóðum um
reglur varðandi mengun að ekki sé minnst á
eftirlit. Að sögn Sigurbjargar var stofnunni
fyrst á árinu 1987 falið að fylgjast með blýi,
benzeni og hexani, en þetta eru efni í bens-
íni, sem hafa áhrif á oktantölu og eru meng-
unarefni. Það var gert án sérstaks samráðs
við stofnunina.
Efnasamsetning bensíns hefur verið dálít-
ið breytileg á síðustu tímum. Þannig minnk-
aði blýinnihald bensíns úr 0,4 g. í 0,15 g. á
lítra á síðasta ári. Og í stað 93 varð bensínið
92 oktana. Fyrsta skrefið var þannig stigið í
júlímánuði í fyrra og nú er bensínið sem sagt
nær blýlaust.
Blýlausa bensínið inniheldur m.a. efnið
„benzen" sem kemur að einhverju leyti í
staðinn fyrir blýið, þ.e. til að halda uppi
oktan—styrk. Mengunarvarnadeild Holl-
ustuverndar hefur ekki fylgst með þessari
samsetningu þrátt fyrir reglugerðarákvæði
heldur hafa olíufélögin sjálf og FÍB séð um
það eftirlit. Vert er að vekja athygli á, að
samkvæmt lögum og reglugerðum eru
ákveðin mörk á áðurnefndum þremur efnum
í bensíni, þ.e. ákvæði um hámark leyfilegs
magns af þessum efnum.
Jónas Bjarnason framkvæmdastjóri FÍB
upplýsti að Félag íslenskra bifreiðaeigenda
hefði fyrir löngu þrýst á um að hingað yrði
flutt blýlaust bensín, og þau svör hefðu alltaf
fengist að það yrði fyrst upp úr 1990. „Þessi
fyrirvari nú, um tvær vikur, er náttúrlega
enginn fyrirvari og ekki hefur fundist neitt
tóm til að haga þessum málum eðlilega",
segir Jónas.
Jónas kvaðst hafa ófullnægjandi upplýs-
ingar um verð á „katalysatorum", hreinsi-
búnaðinum fyrir bifreiðar. Hann hefði heyrt
að bifreiðar með þeim útbúnaði væru 15%-
17% dýrari í innkaupum, en hreinsibúnaður-
inn hreinsar um 65% af útblæstrinum. Hann
kvaðst vita um einn bíl í landinu sem væri
með„ katalysator". Hann kvað nauðsynlegt
að átta sig á því að ísland væri langt á eftir
nágrannalöndunum í margvíslegu tilliti.
Þannig væru einungis tvö ár síðan lands-
mönnum hefði gefist kostur á fleiri en einni
tegund af bensíni og hvorki neytendasjónar-
miðinu né umhverfissjónarmiðinu hefði
verið sá gaumur gefinn sem í nágrannalönd-
unum.
Hann kvað nær útilokað að settur yrði
hreinsibúnaður á þá bíla sem fyrir eru í land-
inu. Slíkt krefðist víðtækra og kostnaðar-
frekra aðgerða við bílvélar. Að líkindum
yrði þetta gert þannig að fyrst yrðu allir nýir
bflar að vera útbúnir með „katalysator“ t.d.
1. janúar 1990 eða 1991. Og nokkrum árum
síðar yrðu bifreiðar án hreinsibúnaðar ein-
54