Þjóðlíf - 01.06.1988, Blaðsíða 45
MENNING
Að vera tónlistinni trúr
Árið 1983 fór Gunnsteinn með 40 manna kór MK og 20 manna hljómsveit í hljómleika-
ferð til Danmerkur, sem flutti m.a. verk eftir stjórnandann. Á myndinni sést Gunnstein
stjórna kórnum í Óðinsvéum. (Mynd Pétur Már)
Einn efnilegasti tónlistarmaður íslendinga er
óefað Gunnsteinn Ólafsson. f fjögur ár
stundaði hann nám í tónsmíðum í Búdapest í
Ungverjalandi, en er nú við nám hér í Frei-
burg. Hann er 25 ára Kópavogsbúi, en ættað-
ur frá Siglufirði og Hellissandi, sonur hjón-
anna Áslaugar Gunnsteinsdóttur og Ólafs
Jens Péturssonar.
Ferill Gunnsteins er á margan hátt mjög
óvenjulegur. Hann byrjaði til dæmis mjög
ungur að semja tónverk. „Ég samdi lög til að
eiga auðveldara með að læra ljóðin í skólan-
um. Var líklega tíu ára þegar ég samdi það
fyrsta. Hins vegar fór ég ekki að taka veru-
lega skipulega á þessum hlutum fyrr en ég
komst til Jóns Ásgeirssonar í einkatíma, 16
ára gamall. Áður hafði þetta verið hálfgert
pukur hjá mér en hjá Jóni kynntist ég fyrst
raunverulega tjáningarkrafti tónlistarinnar;
hún var allt í einu orðin eitthvað stórkost-
legt. Það að komast til Jónas Ásgeirssonar
skipti sköpum fyrir mig.
Gunnsteinn var ráðinn stjórnandi Kórs
Menntaskólans í Kópavogi, 17 ára gamall, þá
nemandi í öðrum bekk skólans. Er það ef-
laust einsdæmi á Islandi, að svo ungur maður
taki að sér slíkt verkefni. Hann stjórnaði
kórnum í fjögur ár og skildi við hann með
tónleikaferð til Danmerkur, sumarið 1983. í
þeirri ferð var flutt messa fyrir einsöngvara,
kór og hljómsveit eftir Haydn og tónverk
eftir Gunnstein sjálfan, meðal þeirra verk
við ljóð Jónasar Hallgrímssonar, Ferðalok.
„Ég lauk við Ferðalok á miðvikudegi og
Uftarkæfa
Kjötbúðingur
Nautakjöt
KinrJakjöt í karrý
l! Kjötbúðingur
ureyrí. S. 96-21400.
VEISLAIHVERRIDOS
i ferðalagínu, í sumarbústaðnum
eða í eldhúsinu heíma.
45