Þjóðlíf - 01.06.1988, Blaðsíða 10
INNLENT
Persónufylgi Davíðs hvarvetna
dalað frá1986...
Framsóknarflokkurinn fengi nær eingöngu
fylgi úr kjósendaröðum eigin flokks til þings,
eða 53% þeirra sem kjósa vildu flokkinn í
þingkosningum. Draga mætti þá ályktun að
Steingrímur Hermannsson væri svona vin-
sæll að yfirskyggði annað hjá Framsóknar-
flokki.
Davíö með minnihluta
Persónufylgi Davíðs virðist hvarvetna
hafa dalað frá 1986, en könnunin var þá gerð
u.þ.b. viku fyrir kosningar. Þá kváðust 94%
allra sem kjósa vildu Sjálfstæðisflokkinn
einnig vilja Davíð áfram sem borgarstjóra,
en núna reyndust 87% kjósenda flokksins
vilja Davíð áfram.
Fyrir tveimur árum vildu 54% kjósenda
Alþýðuflokksins að Davíð yrði áfram borg-
arstjóri og þá vildu 32% kjósenda Framsókn-
arflokksins að Davíð gegndi því hlutverki
áfram. En í könnuninni núna vildu einungis
um 25% kjósenda þessara flokka beggja að
Davíð yrði áfram borgarstjóri.
í könnuninni 1986 vildu 16% Alþýðu-
bandalagskjósenda Davíð áfram og 10%
Kvennalistakjósenda, en íkönnuninni á dög-
unum vildu einungis 9% þessara beggja
flokka að Davíð yrði áfram borgarstjóri.( Sjá
neðanmáls við töflu 4).
Davíð Oddsson var með ævintýralegt
persónufylgi 1986. I könnuninni viku fyrir
kosningar vildu 64.7% að hann yrði áfram
borgarstjóri og einungis 29% vildu þá annan
sem borgarstjóra. Nú er svo komið að minni-
hluti eða 49.2% vilja Davíð áfram og 44.4 %
vildu einhvern annan en hann.
Kostir og gallar
borgarstjórans
Niðurstöður þessarar skoðanakönnunar
endurspegla „stemmníngu" í höfuðborginni
gagnvart borgarstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn
telst þó koma mun, mun betur út úr könnun-
inni en ætla mætti af almannarómi. Og það
er greinilegt að Davíð hefur tekist að greina
borgarstjórn sína frá þingmála og ríkisstjórn-
arpólitík flokksins. En áfram með almanna-
róm:
Þegar rætt er um kosti Davíðs Oddssonar
sem borgarstjóra vísa margir til þess að hann
sé „sterkur stjórnandi" og hafi „charissma“,
jákvæða áru og sé afskaplega fyndinn og
skemmtilegur, og að hann sé traustur vinur
vina sinna. Einnig er honum talið til tekna
framkvæmdasemi; svo sem bygging ráðhúss,
hringhússins og fleiri stórhuga framkvæmdir
vitna um. Reykjavík — „borg framkvæmd-
anna“. Honum er einnig hrósað fyrir menn-
ingarlega afstöðu til ýmissa mála svo sem
borgarleikhúss, auk þess sem Viðeyjarstofa
og fleira er til sannindamerkis um. Hann er
einnig talinn góður áróðursmaður.
Sömu atriði koma við sögu þegar rætt er
um galla borgarstjórans. Þá er hinn sterki
stjórnandi sakaður um gerræði og einræði,
hann er gagnrýndur fyrir offjárfestingar og
sóun almannafjár og nefnd dæmi af ráðhús-
inu í Tjörninni, hringhúsinu borgarleikhúsi
og jafnvel Viðeyjarstofu. Þá er bent á að við
ákvarðanatöku sé hann óbundinn af flestum
hefðbundnum leikreglum. Hann er gagn-
rýndur fyrir fjandsamlega afstöðu gagnvart
ýmsum hópum launafólks hjá borginni svo
sem uppákomur gagnvart slökkviliðsmönn-
um og fóstrum eru nefndar til dæmis um.
Hann er einnig sakaður um að hygla flokks-
hestum og vinum sínum og eru bílakaupin
fyrir Ragnar Júlíusson stjórnarformann upp
á 1.5 milljónir króna nefnd til dæmis. Reynd-
„Raunhæfur
möguleiki“
„Það ber að skoða þennan möguleika af
fullri alvöru", sagði Kristín Ólafsdóttir
borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins er
Þjóðlíf bar sameiginlegt framboð minni-
hlutaflokkanna undir hana.
„Fyrst og fremst ber okkur að skoða þetta
vegna þess að sameiginlegt framboð eyk-
ur möguleikana á að hnekkja einveldi
Sjálfstæðisflokksins. Samstarf þessara
flokka í borgarstjórn sýnir það glögglega
að þessi möguleiki er vel raunhæfur."
—h.hj.
„Fróðlegt að ræða
málið“
„Þetta mál hefur ekkert verið rætt í
borgarmálaráði okkar á þessu kjörtíma-
bili, en þetta var rætt nokkuð í kringum
síðustu borgarstjórnarkosningar að frum-
kvæði Málfundafélags félagshyggju-
fólks“, sagði Sigrún Magnúsdóttir borg-
arfulltrúi Framsóknarflokksins í stuttu
spjalli við Þjóðlíf.
„Þá var frekar dræmt tekið í þetta í
flokknum, en það er geysileg pólitísk
gerjun í þjóðfélaginu og það væri fróðlegt
að ræða þennan möguleika í samhengi
við hana. Samstarf flokkanna í vetur hef-
ur líka verið mjög gott, t.d. varðandi fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar."
10