Þjóðlíf - 01.06.1988, Blaðsíða 73
BÍLAR
NÝJA FIMMAN FRÁ
BMW - ÞÝSKUR
ÚRVALSGÆÐINGUR
ÞEIR SEM EKKERT VITA UM BMW
skulu upplýstir um það þegar í upphafi að
BMW stendur fyrir Bayerische Motoren
Werke. Það eru þýskar verksmiðjur sem
framleiða gæðabfla. Aðalgerðir BMW eru
þrjár: 300-línan; þeir eru minnstir, en þó
ekki smábflar, þá kemur 500-línan, meðal-
stór bfll, og síðan 700-línan. Þá erum við
komin í flokk stærri lúxusbfla. Hver gerð er
síðan fáanleg með ýmsum hætti hvað varðar
vélar og annan búnað. Auk þessara gerða
smíðar BMW sportlegar útgáfur af stærsta
og minnsta bflnum, sem og mótorhjól.
BMW-VERKSMIÐJURNAR ERU rúmra
sjö áratuga gamlar, byrjuðu í fyrri heims-
styrjöldinni að smíða flugvélar, en bflar og
mótorhjól hafa verið aðalviðfangsefni starfs-
manna þar á bæ síðan á þriðja áratugnum, að
undanskildum árunum 1941-1951.
Bayerische Motoren Werke hafa gengið í
gegnum ýmsar þrengingar á þessum sjö ára-
tugum, einkum vegna þeirrar útreiðar sem
Þýskaland hlaut í heimsstyrjöldunum tveim-
ur. Versalasamningarnir eftir þá fyrri lögðu
bann við smíði flugvéla í Þýskalandi, og ef til
vill var það ein af ástæðum þess að BMW hóf
að smíða bfla á þriðja áratugnum. A fjórða
áratugnum, meðan Þriðja ríkið stóð með
mestum blóma, var uppgangur verksmiðj-
anna töluverður; þær smíðuðu stóra og smáa
bfla, sem og flugvélar og mótorhjól. Á stríðs-
árunum voru verksmiðjurnar vitaskuld á kafi
í hergagnaiðnaði, en smíðuðu þá reyndar
enga bfla.
Að stríðinu loknu var þýskt atvinnu- og
efnahagslíf í rúst sem kunnugt er, en reis hins
vegar fljótt úr öskustónni. Framleiðsla bfla
undir BMW-merkinu hófst að nýju 1951 og
hefur staðið óslitið síðan með góðum ár-
angri.
Það er einkum síðasta áratuginn sem upp-
gangur BMW hefur verið umtalsverður á al-
þjóðamarkaði; þeir selja grimmt austan hafs
og vestan og tegundin er orðin mjög eftir-
sótt, bæði sem úrvalsgæðingur og stöðutákn.
Er svo komið að stórveldi og forystu
Mercedes Benz á gæðabflamarkaðinum er
verulega ógnað og má m.a. líta á litla
Benzinn (190-gerðirnar) sem svar við 300-
línunni frá BMW, en hún hefur gert storm-
andi lukku á undanförnum árum, einnig hér
norður undir heimskautsbaug.
Kristinn Guðnason hf. tók við umboðinu
fyrir BMW 1964, en BMW-bílar urðu þó
ekki algengir á íslenskum vegum fyrr en upp
úr miðjum áttunda áratugnum. Síðan hafa
þeir selst vel og eiga sér stóran aðdáenda-
hóp.
ÞAÐ ER 500-LÍNAN, „FIMMAN", sem er í
sviðsljósinu að þessu sinni. Það er nefnilega
komin ný Fimma. Saga þessarar gerðar er í
73