Þjóðlíf - 01.06.1988, Page 28
ERLENT
Fádæma vinsæll forseti
Richard von Weizsácker þykir hafa gott samband við marga úr hópi stjórnarandstæð-
inga. Hér er hann ásamt Joscha Ficher einum leiðtoga Græningja og fyrrum umhverf-
ismálaráðherra í fylkinu Hessen.
í júlímánuði næstkomandi heldur forseti ís-
lands í opinbera heimsókn til Vestur-Þýska-
lands. Gestgjafi forsetans þar verður hinn
vinsæli forseti Sambandslýðveldisins,
Richard von Weizsacker. Forsetinn, sem
kosinn er af þinginu, nýtur ekki síður vin-
sælda utan flokks síns en innan, hann þykir
frjálslyndur — og hefur verið nefndur „feg-
ursti karlmaður Vestur-Þýskalands.“
Hinn 68 ára gamli Weizsácker hefur að
flestra dómi verið óvenjufarsæll forseti þau
fjögur ár sem hann hefur setið í embætti, og
áunnið sér virðingu víða um lönd. Fullyrða
má að eftir ræðu hans á friðardaginn 8. maí
1985, þegar fjörutíu ár voru liðin frá lokum
síðari heimsstyrjaldarinnar, hafi sól hans ris-
ið hærra en flestra annarra vestur-þýskra for-
seta. Þessi ræða vakti gífurlega athygli, eink-
um vegna þess að þar andmælti Weizsacker
því að almenningur í Þýskalandi hefði ekki
vitað neitt um útrýmingarherferð nasista
gegn gyðingum í heimsstyrjöldinni. Svo vin-
sæl varð ræðan meðal Þjóðverja að hún var
prentuð og gefin út á bók ásamt öðrum ræð-
um Weizsackers. Sú bók hefur selst í tveimur
og hálfri milljón eintaka í Vestur-Þýska-
landi! Sömuleiðis hefur hinni frægu ræðu
verið snúið á tuttugu og eitt tungumál.
Richard von Weizsácker hefur verið ötull
við að ferðast um heiminn í nafni lands síns.
Heimsókn hans til ísraels í október 1985
þótti óvenjufarsæl og Weizsácker sýnd mun
meiri virðing þar en fyrri forsetum landsins.
Sömuleiðis hefur Weizsácker ferðast um
Suður-Ameríku, Suður-Asíu og Afríku,
meðal annars Suður-Afríku. Hann hefur
þótt sýna skilning á vanda þróunarlanda og
einnig verið harður andstæðingur Apart-
heidstefnu. Þykir ýmsum, sem Weizsácker
hafi tekist að leiðrétta misskilning varðandi
viðhorf Vesturlandabúa til Suður-Afríku
eftir umdeildar ferðir Margrétar Thatcher
og Franz-Josef Strauss þangað.
Forseti Vestur-Þýskalands hefur lítil bein
völd en getur hins vegar haft mikil áhrif, eins
og Richard von Weizsácker hefur sýnt. For-
setinn er kjörinn til fimm ára í senn af þing-
inu í Bonn. Þetta þýðir að þeir flokkar sem
meirihluta hafa þar, koma sér yfirleitt saman
um frambjóðanda. Richard von Weizsácker
var frambjóðandi stjórnarliða 1984. Hann
hafði verið borgarstjóri í Vestur-Berlín og
einn af þekktustu stjórnmálamönnum úr
hópi Kristilegra demókrata. En við kosning-
arnar 1984 brá svo við að mikill hluti stjórn-
arandstæðinga studdi Weizsácker og hann
hlaut fleiri atkvæði en nokkur annar forseti í
sögu landsins eða 832 af 1028.
Horfur eru á því að við næstu forsetakosn-
ingar sem fram fara 1989 verði svipað uppi á
teningnum. Leiða menn jafnvel að þvígetum
að Weizsácker muni með stuðningi stjórnar-
andstöðunnar takast að slá met sitt frá 1984.
Opinberar yfirlýsingar stjórnarandstæðinga
hníga allar í sömu átt. Þannig hafa leiðtogar
jafnaðarmanna, Hans-Jochen Vogel og
Johannes Rau, sem og forystumenn úr hópi
Græningja eins og Otto Schilly lýst því yfir,
að þeir óski þess að Weizsácker sitji áfram.
í raun má segja að Richard von
Weizsácker hafi á ýmsan hátt notið ein-
dregnari stuðnings stjórnarandstæðinga en
stjórnarliða í valdatíð sinni. Eftir ferð sína til
Sovétríkjanna í fyrra var hann til dæmis
gagnrýndur af eigin flokksmönnum fyrir
óþarfa frjálslyndi gagnvart kommúnistum.
Sovétmenn höfðu óskað þess að
Weizsácker heimsækti landið á undan kansl-
aranum Helmut Kohl; en kulda hafði gætt
meðal austanmanna í garð Kohls eftir þau
ummæli hans, að áróðurstækni Mikhafls
Gorbaschovs minnti sig á brögð Josephs
Goebbels.
Vel fór hins vegar á með Richard von
Weizsácker og sovéskum valdamönnum.
Forsetinn þýski var til dæmis ófeiminn við að
rifja upp ýmsa atburði heimsstyrjaldarinnar
en sjálfur var Weizsácker foringi í umsáturs-
liðinu við Leningrad. Vakti heinskilni hans
athygli og þótti liðka fyrir öllum viðræðum
hans við hina sovésku gestgjafa.
Heima fyrir mæltist heimsókn þessi hins
vegar misjafnlega fyrir. Sérstaklega var hinn
bæverski armur Kristilegra undir forystu
Franz-Josef Strauss harðorður í garð
Weizsáckers. Hinn bæverski flokkur var líka
seinn á sér að lýsa yfir stuðningi við framboð
Weizsáckers til endurkjörs og var þar með
nokkrum semingi gert þegar að því kom.
Richard von Weizsácker er lögfræðingur
að mennt og var meðal annars verjandi föður
síns, sem var ákærður fyrir stríðsglæpi í
Niirnberg 1946. Þess má geta að bróðir for-
setans Karl-Friedrich von Weizsácker er
þekktur eðlisfræðingur í Vestur-Þýskalandi
og sérstaklega kunnur fyrir forystu sína í
ýmsum fríðarhreyfingum. Hann er yfírlýstur
vinstrimaður og haft er fyrir satt, að á meðan
jafnaðarmenn voru í stjórn í landinu á árun-
um 1969-83 hafi verið hart lagt að honum að
bjóða sig fram til forseta sem frambjóðandi
þeirra. Karl-Friedrich von Weizsácker hafn-
aði hins vegar öllum slíkum áskorunum.
Víst er að meðal almennings í Vestur-
Þýskalandi nýtur Richard von Weizsácker
yfirburðastuðnings, hvað sem líður efasemd-
um ýmissa íhaldsmanna. Stefna hans þykir
frjálslynd á flestum sviðum, hann er sagður
mannasættir og boðberi mannlegra, kristi-
legra viðhorfa. Og hylli hans meðal þjóðar-
innar einskorðast ekki við pólitísk afreks-
verk. í almennri skoðanakönnun var hann
nýlega tilnefndur „fegursti karlmaður" Vest-
ur-Þýskalands, og skaut þar helstu tennis- og
knattspyrnuhetjum, dægurlagasöngvurum
og stjörnum úr „Schwarzwaldklínikinni"
langt aftur fyrir sig.
Einar Heimisson / Freiburg
28