Þjóðlíf - 01.06.1988, Blaðsíða 31
MENNING
tíðar og félagsgjald hefur ekki verið rukkað
inn síðan 1978, en þá var það 5 krónur segir
Sigurður og hlær.“
Hvernig er félagslífíð?
„Pað er mjög fjölbreytt, í upphafi tófu-
daga sem eru frá 6. júní til 12. júlí, kemur
stjórnin saman og býður mökum sínum í
Tófuvinur og
Freysdýrkandi
Daginn sem ég hitti Sigurð Hjartarson lamdi
regnið götur og hús. Hann sagði að ég sækti
fremur illa að sér og hann hefði sofnað um
hádegið og vaknað þegar ég hringdi dyra-
bjöllunni, samt tók hann mér ljúfmannlega
og bauð til sætis í vinnuherbergi sínu til að
svara spurningum um Hið íslenska tófuvina-
félag og önnur áhugamál hans.
„Ég hef mikla félagsþörf eins og annað
fólk og félög eru til um flest milli himins og
jarðar og hví ekki Hið íslenska tófuvinafélag?
Félagið var stofnað í Reykjavík árið 1977,
vegna þess að þörfin var mikil og þetta dýr
hefur verið ofsótt og myrt frá upphafi. Pegar
norskir bændur, svokallaðir víkingar komu
hingað með sauðfé sitt hafði tófan búið hér í
þúsundir ára og í stað þess að færa henni
lambakjötið hófust kerfisbundnar ofsóknir á
hendur henni.“
Er ekki óæskilegt að gera upp á milli kynja
í nafni félagsins?
„Alls ekki, félagið var stofnað á kvenfrels-
istímum og við gerðum þetta til að fá stuðn-
ing kvenþjóðarinnar enda er þetta innlegg í
kvennabaráttu áttunda áratugarins og þetta
hljómar betur en Refavinafélag. Það er tófan
sem á hug okkar allan.
Hið íslenska tófuvinafélag er karlafélag og
við leggjum sérstaka rækt við íhaldssemi líkt
og öll æðri samtök. Það fær ekki hver sem er
inngöngu heldur eru félagar valdir af kost-
gæfni þó auðvitað sé hægt að sækja um aðild.
Umsækjendum ber að leggja fram ættartölu
og athugar stjórnin hvort einhver forfaðir
umsækjanda hefur tekið þátt í ofsóknum
gegn tófunni. Komi slíkt í ljós er hægt að
iðrast og bæta fyrir brot feðranna. Þetta er
hreinsunareldur líkt og þegar menn eru
teknir í dýrlingatölu. Flestir hinna 60 félags-
manna fengu inngöngu á fyrsta starfsárinu.
Fundir okkar eru aldrei auglýstir en eftir
stjórnarfundi sendum við skýrslu til helstu
fjölmiðla. En yfirleitt fréttir almenningur lít-
ið af störfum okkar. Við höldum aldrei aðal-
fund vegna þess að stjórnin er skipuð til lífs-
Sigurður Hjartarson leiðtogi
Tófuvinafélagsins horfist í
augu við , ja — látinn ref?
Viðtal við Sigurð
Hjartarson, leiðtoga
Tófuvinafélagsins,
Suður-Ameríkufara,
menntaskólakennara
og forstöðumann,
„Hins íslenska
reðursafnsu
Myndir: Marissa Arason
31