Þjóðlíf - 01.06.1988, Síða 47
MENNING
fylgja með nóturfyrir þá sem vilja. Myndskreytingin á þessari
síðu er eftir Ragnheiði Jónsdóttur.
Meira til söngs
Um þessar mundir er að koma út bók með kvæðum eftir Jónas
Árnason við lög eftir bróður hans Jón Múla Árnason , og við stríðs-
áralög, barnalög og fleiri góð lög. Nótur í útsetningu Karls Sighvats-
sonar fylgja með. Myndskreytingar eru eftir þær Ragnheiði Jóns-
dóttur, Katrínu Briem, Guðrúnu Svövu Svavarsdóttur, Svölu Sigur-
leifsdóttur, Ragnheiði Gestsdóttur og Sigrúnu Eldjárn.
Þessari fallegu bók fylgja einnig skýringar sem að líkindum eru
eftir Jónas sjálfan. Þar segir m.a. frá því að lögin hafi alltaf orðið til á
undan kvæðunum í söngleikjasamvinnu þeirra Múlabræðra (Deler-
íum bóbonis, Járnhausinn, Rjúkandi ráð og Allra meina bót) — eða
Brennubræðra. Jón Múli samdi fyrst lögin og ráðskaðist þannig með
bragarháttinn hjá bróður sínum. Og með þessu vinnulagi fann Jónas
líka nýja bragarhætti sem falla að söngnum eins og karl að konu —
eða meyja að sveini.
Þessi bók er það vel úr garði gerð að vera í sjálfu sér eigulegasti
gripur. Auk þess eru söngtextarnir í bókinni gamlir kunningjar
flestra íslendinga þannig að gera má ráð fyrir að Meira til söngs verði
á hvers manns heimili, ekki síst vegna þess að þjóðin er söngvin. Svo
er líka sagt að söngurinn sé sálarbætandi og ómissandi meðal gegn
efnahagsþrengingum. Þess vegna var líka þörf þessarar bókar.
—óg
[N^VACJ
SKAK-
M
TOLVAN
SEM
SIGRAÐI
Eigum mikið úrval
NO\AG skáktölva
allt frá 1500 til 2150 eló-stig
Verðfrákr. 2.700.-
Eigum einnig mikið úrval af
taflmönnum, borðum, bókum og
öllu því sem skáklistinni fylgir.
SKÁKHÚSIÐ
Laugavegi 46 • Sími 19768