Þjóðlíf - 01.06.1988, Page 76
BÍLAR
vart vatni halda af hrifningu við þessi kynni,
fyrst og fremst vegna aksturseiginleika
Fimmunnar. Þeir gerast tæpast öllu betri í
venjulegum fólksbfl á almennum markaði.
Þar kemur bæði til hinn nýi hjóla- og fjöðr-
unarbúnaður og sú staðreynd að bfllinn er
lengri og breiðari á milli hjóla en fyrirrennar-
inn. Auk þess eru þyngdarhlutföll bflsins
ákjósanleg, 50% þunga hvfla á afturhjólum
og 50% á framhjólum (kemur sér líka vel í
hálkunni). Það var sama hversu krappar
beygjur voru teknar, innan löglegra hraða-
marka, og nánast sama hvernig vegurinn
var, Fimman lét fullkomlega og áreynslu-
laust að stjórn. Meira að segja 90 gráðu
beygja á þvottabretti á töluverðri siglingu
kom henni ekki til að bregða. Eina skiptið
sem bfllinn skrensaði ofurlítið að aftan í
beygju var á lausamöl ofan á hörðu undir-
lagi, en hætt er við að margur bfllinn hefði
snúið sér aldeilis þversum við þær kring-
umstæður.
Og það þarf varla að nefna að hvort sem
ekið var á bundnu slitlagi eða malarvegi leið
Fimman yfir sviðið eins og léttstíg ballerína.
Annar þáttur í þeirri akstursgleði sem
Fimman veitir, samofinn framangreindum
eiginleikum, er stýrisbúnaðurinn. Bíllinn er
að sjálfsögðu með vökvastýri, hæfilega léttu,
og það er hárnákvæmt við allar aðstæður,
hvort sem er í Þingholtunum eða á Þrengsla-
veginum. Þar við bætist að stilla má bflstjóra-
sætið á alla vegu, einnig hallann á setunni
(það gildir líka um farþegasætið frammí),
sem og má draga stýrishjólið að sér, þ.e.a.s.
stytta og lengja stýrislegginn. Þegar bflstjór-
inn hefur fundið þær stillingar á stýri og sæti
sem hæfa best vexti hans og smekk er hann
líkt og samgróinn bílnum. Og þá skiptir litlu
máli hve langt á að aka; þægindin og ánægjan
við aksturinn halda aftur af þreytunni.
Það fer jafn vel um farþegana, bæði fram-
mí og afturí. Rúm er fyrir þrjá í aftursætinu,
en sætið er þó fyrst og fremst lagað að tveim-
ur farþegum. Hvort þeir eru langir eða stutt-
ir, mjóir eða breiðir, skiptir engu. Það er nóg
pláss.
VÉLIN í BMW 5201 ER ÞRAUTREYND.
Hún er sú sama og í fyrirrennaranum, sem og
í 320-gerðinni sem hér hefur farið um vegi
um árabil. Strokkarnir eru sex, og sem fyrr
segir er sprengirýmið um tveir lítrar og bens-
íninnspýtingin tölvustýrð. Hestöflin eru 129
talsins við 6000 snúninga og hámarkstog-
kraftur 164 Nm við 4300 snúninga. Og þeir
sem njóta þess að hlusta á þýðan og fallegan
vélargang fá vissulega sitt, ósvikið sex
strokka mal.
Það er alltaf dálítið erfitt að meta vélarafl
bfls. Það er óhjákvæmilega háð smekk eða
eigum við að segja bfladellustigi hvers og
eins. Nýja Fimman hefur vissulega dágott
afl, feykinóg við allar venjulegar aðstæður,
en það þykist ég viss um að margir bfladellu-
kallar mundu láta sig dreyma um 525i-útgáf-
una í staðinn. I henni eru hestöflin um fjöru-
tíu fleiri og togið mun meira. En þeir verða
þá að safna svo sem eitt ár í viðbót, nema
þeir eigi nóg af peningum. En það vill nú
brenna við að stækir bfladellukallar eiga ekki
nóg af peningum; þeir eru búnir að eyða
þeim — í bfla.
Þá er þess að geta að bfllinn sem ég hafði
undir höndum var sjálfskiptur og viðbrögð
hans því töluvert hægari en í sams konar bfl
beinskiptum. Hraðaaukning úr kyrrstöðu í
100 km hraða er 13.9 sek, sem þykja nú engin
ósköp, miðað við 11.9 sek íþeim beinskipta.
Þessu til viðbótar skal á það litið að he-
stöflin verða ekki 129 fyrr en við mjög háan
snúningshraða vélarinnar (6000 þús. snún-
inga á mín.). Það finnur maður glöggt í
venjulegum akstri, en þá er snúningshraðinn
alla jafna á mun lægri nótum. Sé bíllinn hins
vegar tekinn með beinskiptingu má spila
meira á snúningshraða vélarinnar og nýta
aflið betur.
Reyndar er sjálfskiptingin þannig úr garði
gerð að skipta má með handafli milli allra
fjögurra gíranna. En það er nú einu sinni svo
að kaupi menn sjálfskiptan bfl eru þeir ein-
mitt að borga fyrir gírskiptingaþjónustu til
þess að þurfa ekki að hafa fyrir því sjálfir að
skipta um gír.
Með þessu er engan veginn verið að segja
að BMW 520i sé máttlaus. Hann hefur, sem
fyrr segir, feykinóg afl í öllum venjulegum
akstri og er bráðskemmtilegur sé á hann litið
sem alhliða fjölskyldubfl með lúxusívafi. En
það er engin tilviljun að fáanlegar eru þrjár
vélarstærðir sem eru öflugri en þessi tveggja
lítra vél.
ÞAÐ ER SATT AÐ SEGJA DÁLÍTIÐ
ERFITT að skrifa um bfl eins og þennan, jafn
erfitt og það var gaman að hafa hann undir
höndum eina helgi. Því það er nánast ekki
hægt annað en að hrósa hverju atriði. Margt
er reyndar ótalið hér af búnaði bflsins, atriði
sem flest hver hljóta að vera í bfl í þessum
gæða- og verðflokki. En ritstjórinn þarf víst
að koma ýmsu fleiru að í blaðinu. Ég læt því
nægja að fullyrða hiklaust að nýja Fimman er
ríkulega búin af þægindum og nútímalegri
tækni svo enginn verður svikinn af, jafnvel
þótt hún kosti sitt.
Vinir og kunningjar fylgdust með reynslu-
akstrinum og höfðu sínar athugasemdir.
Listakonan í Garðabænum sagði: „Ég hef
alltaf verið svo hrifin af hlutföllunum í þess-
um BHM-bflum.“ Konan í næsta húsi, sem á
stráka á hjólreiðaaldri, spurði: „Er þetta
þessi nýi BMX? Ofboðslega er hann sætur.“
Og véltæknifræðingurinn í Kópavoginum
andvarpaði þegar hann sagði eftir stuttan
ökusprett: „Það verður a.m.k. ekki sagt um
Þjóðverja að þeir kunni ekki að búa til bfla!“
Ásgeir Sigurgestsson
76