Frjáls verslun - 01.08.2014, Síða 18
18 FRJÁLS VERSLUN 8-9 tbl. 2014
og sjónvarpsþáttum. Þau hafa
breytt því hvernig fólk hlustar
á tónlist og útvarp, les bækur
og blöð, fylgist með fréttum og
horfir á sjónvarp. Þau hafa líka
breytt samskiptum og daglegu
lífi fólks. Markaðsstaða þeirra
er orðin svo sterk að erfitt er
fyrir önnur fyrirtæki að komast
að.
Netflix haslar sér völl í
Evrópu
Netflix starfar í 40 löndum og
eru áskrifendur þess þegar
orðnir 50 milljónir, þar af 37
milljónir í Bandaríkjunum.
Fyrir tækið er um þessar mundir
að koma sér fyrir í Evrópu. Það
ætlar sér að þrefalda áskrif
enda hópinn á næstum árum.
Það hefur nú þegar náð fótfestu
á Bretlandi, í Hollandi og
Norðurlöndum. Núna bætast
við sex Evrópulönd: Frakkland,
Þýskaland, Sviss, Austurríki,
Belgía og Lúxemborg. „Evrópa
hefur lengi verið á döfinni hjá
okkur; þar eru stórkostleg
tæki færi,“ segir Reed Hastings,
stofnandi fyrirtækisins.
Áskriftargjaldið í Frakklandi
er 8 til 12 evrur fyrir mánuðinn,
allt eftir því hvað er í boði.
Með því hefur áskrifandinn
aðgang að þúsundum þátta
og kvikmynda sem hægt er að
horfa á í sjónvarpinu, tölvunni
eða farsímanum. Þannig velur
hver sína dagskrá og horfir á
þegar honum hentar, eins lengi
og mikið og hugurinn girnist.
Netflix fylgist svo grannt með
smekk viðskiptavina sinna og
kemur með vel valdar uppá
stungur að efni – í takt við það
sem Amazon og aðrar veitur
gera. Um 800 verk fræð ingar
starfa hjá Netflix við að bæta
viðmótið á síðunni og mæta
kröfum og þörfum not andans.
Netflix á Íslandi
Áskrifendur Netflix á Íslandi
eru rúmlega 20.000, sem er
svipaður fjöldi og áskrif enda
hópur Stöðvar 2. Þetta þýðir
að einn af hverjum sex Íslend
ingum er með aðgang að Net
flix. Það er athyglisvert því í
rauninni er Netflix ekki í boði á
Íslandi og það er umdeilt hvort
þjónustan sé lögleg, þótt fólk
borgi fyrir hana.
Flestir notendur Netflix á
Íslandi eru ungt fólk, náms
menn, stjórnendur og tekjuháir
einstaklingar. Íslenskar
sjónvarps stöðvar hafa brugðist
við þessari samkeppni með því
að bjóða upp á efni sitt á net
inu í auknum mæli. Hægt er að
horfa á ýmsa framhalds þætti,
alla í röð. Sterkast í stöðunni
fyrir íslensku sjónvarps stöðv
arnar væri sennilega að auka
innlent efni og beinar útsend
ingar, sem Netflix getur trauðla
keppt við.
Staða og markmið
Netflix
Netflix hefur keypt og greitt
fyrir sýningarrétt á öllum þeim
kvikmyndum og þátt um sem
það býður upp á. Fjárhags
staða fyrirtækisins virðist
vera afar sterk; Netflix ætlar á
næstu misserum að verja 500
milljónum dollara í mark aðs
starf og 400 milljónum doll ara
í tækniþróun. Þá eru ótaldir
allir þeir fjármunir sem verja
á í kaup á nýju efni og í fram
leiðslu nýrra sjónvarps þátta.
Netflix hefur framleitt þætti
á borð við House of Cards
og Orange Is The New Black
sem slegið hafa í gegn og
laðað að nýja viðskiptavini.
Með innkomu fyrirtækisins á
evrópskan markað hefur það
kynnt framleiðslu á nýjum
þáttum í Evrópu. Nýlega
var tilkynnt um framleiðslu
á nýjum frönskum þáttum í
Frakk landi. Netflix ætlar sér
því að verða annað og meira
en bara einhver vídeóleiga á
netinu sem einungis býður upp
á efni frá Hollywood.
Vandamál og hörð
samkeppni
Enn eru nokkur ljón á veginum
því ekki er hægt að nálgast allt
efni á Netflix. Mörg sjónvarps
og kvikmyndafyrirtæki neita að
semja við Netflix. Til að mynda
bandaríska sjónvarpsfyrirtækið
HBO, sem m.a. framleiðir
Game of Thrones og fleiri þætti
og harðneitar öllum viðskiptum
við Netflix. Þessum tveimur
sjónvarpsrisum hefur verið stillt
upp sem höfuðandstæðingum.
HBO er gömul og vinsæl
áskriftar sjónvarpsstöð með
ríflega 30 milljónir áskrifenda.
Hún framleiðir ógrynni af
þáttum og kvikmyndum sem
hafa notið mikilla vinælda.
Staða HBO þykir afar sterk,
það er virt fyrirtæki, en hægt
og sígandi hefur Netflix sótt að
þeim. Oft hefur andað köldu á
milli stjórnenda þessara stöðva
og í þeim kristallast kannski
togsteita tveggja forma og
tíma – áskriftarsíðunnar og
áskriftarsjónvarpsins.
Síðar á eftir að koma í ljós
hvað risarnir Google og Apple
ætla sér á þessum markaði. Þeir
gætu hæglega gleypt Netflix í
einum bita, slík er staða þeirra
og styrkur, og Netflix gæti því
mögulega misst af eigin vagni.
Saga Netflix
Netflix var stofnað í Kaliforníu
1997 af Marc Randolph og
Reed Hastings. Saga Netflix
byrjaði á einni vídeóspólu.
Þegar Hastings þurfti að
greiða heila fjörutíu dollara
í sekt á myndbandaleigu
fyrir að skila kvikmyndinni
Apollo 13 nokkrum dögum
of seint fór hann í bræði sinni
að upphugsa nýja stafræna
myndbandaleigu. Honum
fannst myndbandaleigur vera
orðið úrelt, ósanngjarnt og vont
fyrirkomulag sem þyrfti að
breyta.
Það á eftir að koma
í ljós hvað risarnir
Google og Apple ætla
sér á þessum markaði.
Þeir gætu hæglega
gleypt Netflix í einum
bita, slík er staða þeirra
og styrkur, og Netflix
gæti því mögulega
misst af eigin vagni.
Áskrifendur Netflix á Íslandi eru rúmlega 20.000 sem er svipaður fjöldi og áskrifendahópur Stöðvar 2.
Veldu Clevertouch, markaðsleiðandi, gagnvirka snertiskjáinn frá Sahara.
Stærðir: 32” - 84”. Nýjasta snertitækni er innbyggð í skjáinn og geta
margir notendur unnið á hann í einu. Háskerpu upplausn og hábirtu,
gljálaus skjár birtir myndir í hágæðum fyrir rými með lágt eða hátt
birtustig. Hægt að fá ýmsar festingar, lyftur og standa fyrir snertiskjáina.
Allar nánari upplýsingar í síma 580 0000
Þessi hugbúnaður fylgir öllum snertiskjám frá Sahara!
www.a4.is / sími 580 0000
Snertu
framtíðina!
D
2
-
A
12
38
GLÆSILEGAR OG HAGNÝTAR LAUSNIR FYRIR
FUNDA- OG RÁÐSTEFNURÝMI!
Netflix