Frjáls verslun - 01.04.2015, Blaðsíða 10
10 FRJÁLS VERSLUN 4 tbl. 2015
„Höftin valda óvissu,
ekki síst vegna þess sem
gæti gerst þegar þau eru
úr sögunni.“
kaupmaðurinn
Alþjóðlegri verslun
En margt annað er ólíkt og sumt
hefur breyst, einmitt vegna þess
að Pálmi í Hagkaupum fór nýjar
leiðir og barðist m.a. gegn höftum
í versluninni.
Meðal áberandi breytinga
síð ustu ár er að æ fleiri verslanir
á Íslandi eru annaðhvort hluti af
eða í nánu samstarfi við stórar
alþjóð legar verslanakeðjur.
Þannig er með Sports Direct.
Þetta er bresk keðja með um 600
verslanir í Evrópu. Bara ein er á
Íslandi – enn sem komið er.
Hér er um að ræða nafn
leigu – franc hise – með nánu
samstarfi um birgðir, skipulag
og útlit. Sigurður á 60% af
verslun inni á móti 40%, sem eru
í eigu Sports Direct. Verslunin á
Íslandi nýtur góðs af verulegum
magninnkaup um allrar keðjunnar
og það á stóran þátt í að verð er
hagstætt og veltuhraði mikill.
Fjölskyldufólk
„Okkar markhópur er fjölskyldu
fólk. Hingað kemur ungt fólk
með börn. Þetta er fólk sem
þarf að endurnýja fatnaðinn oft
vegna slits og vegna þess að
börnin eru á innan við ári vaxin
upp úr því sem keypt var síðast.
Við selj um því mikið af skóm til
dæmis,“ segir Sigurður.
Upphaflega var verslunin á
Smáratorgi við hliðina á Bónus
og Rúmfatalagernum en var
svo flutt í Lindir 2013 handan
Reykjanesbrautarinnar vegna
plássleysis. Við það fór hún úr
1.320 fm í 2.000 fm.
Hann segir að staðsetningin
hafi mikil áhrif á veltuna. Smára
torgið hentaði vel í upphafi því
þar eru „ung“ hverfi allt í kring
og aðrar verslanir sem laða að
sama viðskiptahóp, verslanir
eins og Rúmfatalagerinn og
Bónus. Þetta, auk þess að geta
boðið upp á lágt verð í krafti
stórinnkaupa, heillar verslana
„Ég á alltaf eftir síðustu önnina í
hagfræðináminu. Ég fann bara að
ég varð að nota þetta tækifæri og
opnaði verslunina við Smáratorg
26. maí 2012,“ segir Sigurður Pálmi.