Frjáls verslun - 01.04.2015, Blaðsíða 54
54 FRJÁLS VERSLUN 4 tbl. 2015
A
ndrúmið var þrungið
spennu þegar Ólafía
Rafnsdóttir, formaður
VR, steig á sviðið í
salnum Silfurbergi
í Hörpu og kynnti
niður stöður í árlegri vinnumarkaðskönnun
félagsins yfir fyrirtæki ársins 2015. Þessari
könnun svipar nokkuð til erlendra kannana
yfir fyrirtæki sem eftirsóknarvert er að
vinna hjá. Í könnun VR sem Capacent sér
um gefa starfsmenn einkunnir fyrir átta
mæli kvarða um stjórnun fyrirtækjanna.
Kynnir á verðlaunahátíðinni í Hörpu var
Felix Bergsson. Fyrst voru fulltrúar þrjátíu
fyrirtæja sem urðu í efstu sætum, tíu efstu í
hverjum hinna þriggja flokka, kallaðir upp
á sviðið til að taka við blómum.
Stór fyrirtæki – johan rönning
Johan Rönning sigraði í flokki stórra fyrir
tækja, þ.e. með fleiri en 50 starfsmenn,
Miracle í hópi millistórra fyrirtækja og
Vinnuföt í hópi lítilla fyrirtækja. Þetta var
einstakur sigur; þetta er þriðja árið í röð
sem þessi fyrirtæki bera sigur úr býtum og
verður ekki annað sagt en að starfsmenn
þeirra séu ánægðir.
Þetta er raunar fjórða árið í röð sem
Johan Rönning sigrar í þessum flokki og
er það einstakt í sögu könnunarinnar.
Heildar einkunn fyrirtækisins er 4,65 af 5,0
mögulegum sem er nánast sama einkunn
og á síðasta ári. Hæstu einkunnir Johan
Rönning eru fyrir lykilþættina ímynd fyrir
tækis, 4,85, og ánægju og stolt en þar er
einkunnin 4,82.
Meðaltal stærri fyrirtækja fyrir þessa
þætti er 4,2. Lægsta einkunnin hjá Johan
Rönning, eins og hjá nær öllum fyrir
tækj um, er fyrir þáttinn launakjör. Þar er
einkunnin 3,87 en meðaltal meðal stærri
fyrirtækja er 3,11. Johan Rönning hefur
boðið öllu sínu starfsfólki þátttöku í könn
uninni árlega nánast óslitið frá árinu 2003.
Í öðru sæti í hópi stórra fyrirtækja er
Öryggismiðstöð Íslands með 4,60 í eink
unn. Fyrirtækið var í 23. sæti í fyrra með
einkunnina 4,23. Hæsta einkunn Öryggis
miðstöðvarinnar er fyrir þáttinn ánægju og
stolt eða 4,88 sem er langhæsta einkunn
stærri fyrirtækja fyrir þennan þátt. Í þriðja
sæti varð Nordic Visitor Iceland, sem var
í hópi millistórra fyrirtækja á síðasta ári.
Heildareinkunn fyrirtækisins í ár er 4,47 en
var á síðasta ári 4,38. Hæsta einkunn Nordic
Visitor Iceland er fyrir ímynd fyrir tækis
eða 4,89 og er það hæsta einkunn stærri
fyrirtækja.
meðalStór – miracle
Miracle er sigurvegari í hópi millistórra
fyrirtækja þar sem starfsmenn eru frá 20 til
49 talsins. Miracle sigrar þriðja árið í röð,
heildareinkunn fyrirtækisins hefur hækkað
frá síðasta ári, er nú 4,87 en var 4,81 í fyrra.
Meðaltal fyrirtækja í þessum
stærðarflokki er 4,2. Miracle er eina fyrir
Hæstu einkunnir Johan Rönn
ing eru fyrir lykilþættina ímynd
fyrirtækis, 4,85, og ánægju og stolt
en þar er einkunnin 4,82.
fyrirtæki Ársins 2015
Haraldur líndal Pétursson, forstjóri Johan Rönning og ólafía Björk Rafnsdóttir, formaður VR.
Johan Rönning hefur toppað listann í flokki stórra fyrirtækja fjögur ár í röð.