Frjáls verslun - 01.04.2015, Blaðsíða 64
64 FRJÁLS VERSLUN 4 tbl. 2015
F
yrir mína tíð var Kópavogur
kallaður svefnbær. Það
er ekki hægt að segja það
leng ur um Kópavog, sem
er orðinn bæjarfélag með
afar fjölbreyttu atvinnulífi
– hjarta höfuðborgarsvæðisins slær í
Kópavogi,“ segir Ármann Kr. Ólafsson,
bæjar stjóri Kópavogs, sem varð sextíu ára
11. maí. Þegar Kópavogur fékk kaup staðar
réttindi 1955 voru íbúar þrjú þúsund sjö
hundruð áttatíu og þrír en nú eru þeir komnir
yfir þrjátíu og þrjú þúsund. Í aðal skipulagi
fyrir Kópavog er gert ráð fyrir að íbúar verði
fjörutíu þúsund í lok skipu lagstímabilsins
2024. Það má því ætla að eftir níu ár verði
Kópavogur nær full byggður.
„Ég legg mikla áherslu á að við styrkjum
alltaf þá hlekki sem eru byrjaðir að gefa
sig, þannig náum við að halda saman
sterkri liðsheild í bæjarfélaginu okkar.
Við höfum það hugfast að engin keðja
er sterkari en veikasti hlekkurinn,“ segir
Ármann og segir að það sé bjart fram
und an í Kópavogi. „Heildarskuldir hafa
lækkað og rekstur bæjarfélagsins er hag
kvæmur. Við munum nú einbeita okkur að
því að hlúa að Kópavogi; fjörutíu þúsund
íbúa sveitarfélag getur verið mjög hag
kvæmt í rekstri.
Við höfum tekið þá ákvörðun að fara
ekki í meiri uppbyggingu á Vatnsenda á
meðan málin eru að skýrast hjá eigendum
svæðisins. Fjölgun íbúa verður því fyrst
og fremst inn á við. Það er óneitanlega
hag kvæmt fyrir okkur að stækka bæinn
þannig. Við nýtum þá betur alla innviði
sem við höfum, eins og skóla og leikskóla,
gatnakerfið og íþróttamannvirkin,“ segir
Ármann, en íbúafjölgun í Kópavogi á
næstu árum vezrði á þremur svæðum:
Á Glaðheimasvæðinu svonefnda – fyrir
ofan Bæjarlind. Þar verða fimm hundruð
íbúðir og segir Ármann að nánast sé
búið að ljúka úthlutun á tvö hundruð og
sextíu íbúðum. Framkvæmdir eru hafnar á
svæðinu.
Á svæðinu fyrir ofan Smáralind til
suðurs, sem verið er að hanna. Þar verða
hátt í fimm hundruð íbúðir.
Þá verður fjögur hundruð íbúða
bryggjuhverfi á Kársnesi. Einnig er
fyrirhugað að þétta byggð á Kársnesinu.
Í góðuM FARVegi
„Við erum ánægð með að uppbygging
bæjar ins skuli vera komin í þennan far
veg. Við styrkjum það sem við eigum
og hlú um að ýmsu sem betur má fara.
Hugum að viðhaldi, að breikka göngu og
hjólastígakerfið, sem við höfum markvisst
byggt upp, og fegra enn frekar falleg úti
vistarsvæði.
Þá þurfum við að lífga upp á margar eldri
byggingar bæjarins sem hafa verið látnar
sitja á hakanum síðan kreppa fór að.
Við eigum núna betri möguleika á að
standa okkur betur í að þjónusta íbúana.
Vera með vakandi auga fyrir hvar betur má
gera. Við höfum fengið spennandi tækifæri
til að fegra umhverfi okkar þannig að öllum
líði vel. Við viljum gera betur í því sem við
erum að gera og fást við,“ sagði Ármann.
SKólARniR næR FullbyggðiR
Að sögn Ármanns eru skólarnir í Kópavogi
nær fullbyggðir í nýjustu hverfunum. Það
vantar þó íþróttahús við Vatnsendaskóla,
sem er í farvatninu og er lokahnykkurinn
við skólann. Það hús verður í stærri
kantinum og sérstaklega hannað fyrir
Fimleikafélagið Gerplu.
„Þá höfum við verið að stækka Hörðu
valla skóla, höfum innréttað hluta Kórsins
fyrir efstu stig skólans – áttunda, níunda og
tíunda bekk. Þannig léttum við á skólanum.
Við leggjum mikla áherslu á þjónustu við
ármann kr. Ólafsson bæjarstjóri
er ánægður með stöðu kópavogs á
60 ára afmælisári bæjarins
Kópavogur
SteFnir í 40
ÞÚsuNd ÍBÚa
texti: siGMundur Ó. steinarsson / Myndir: aðsendar
kópaVogur 60 Ára
kópAvoGur er í mIðju
hÖFuðBorGArsvæðIsIns
Kópavogsbúar eru núna yfir 33
þúsund. Í aðalskipulagi Kópavogs er
gert ráð fyrir að íbúar verði fjörutíu
þúsund í lok skipulagstímabilsins
2024. Það má því ætla að eftir níu ár
verði Kópavogur nær fullbyggður.