Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2015, Side 79

Frjáls verslun - 01.04.2015, Side 79
FRJÁLS VERSLUN 4 tbl. 2015 79 ARMbAnd FyRiR HeilSunA Tæknin nýtist sífellt betur til að hjálpa okkur að lifa heilsusamlegu lífi. Heilsuarmbönd geta t.d. allt í senn hjálpað okkur að hreyfa okkur meira, tryggt betri svefn og bætt mataræðið. Þannig fylgist t.d. Jawbone UP24 með hverri hreyfingu notandans og skrásetur bæði líkamsrækt og almenna virkni yfir daginn. Ef hreyfingarleysið fer fram úr hófi minnir armbandið mann á að standa upp og hreyfa sig. Svefngreinir fylgist með svefninum, stingur upp á skynsamlegum háttatíma miðað við venjur notandans og vekur hann á besta tíma miðað við svefnmynstur. Þessu til viðbótar má skrá matardagbók í appið sem fylgir, fá ýmsar ráðleggingar og hvatningu. Samsung up24 fæst t.d. hjá epli og kostar 24.690 kr. tónliStin uM Allt HúS Til hvers að hafa mörg aðskilin hljómtæki í hverju herbergi þegar hægt er að stilla upp hátölurum þar sem hentar og stýra svo tónlistarspiluninni í gegnum snjallsímann? Þann- ig virka Samsung Multiroom-hátalararnir, sem skila ekki bara miklum hljómgæðum, heldur er hægt að tengja með svo til öllum hugsanlegum þráðlausum tengistöðlum sem þekkjast. Með því að setja nokkra hátalara upp í helstu herbergjum er heimilið svo komið með fullkomið hljóðkerfi þar sem hægt er að spila þá tónlist sem hver og einn vill í hverju herbergi fyrir sig. Samsung multiroom-hátalararnir fást t.a.m. í Samsungsetrinu og kosta frá 29.900 kr. lG G4. Multiroom. uP24.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.