Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2015, Side 96

Frjáls verslun - 01.04.2015, Side 96
96 FRJÁLS VERSLUN 4 tbl. 2015 V ið sem vinnum á viðskiptasviði Kaup­ hall arinnar höfum umsjón með viðskipta­ kerfinu sem við bjóðum upp á og erum í samskiptum við kauphallaraðila, sem eru okkar helstu fjármálastofnanir og þeirra miðlarar. Allt tölfræðiefni kemur frá okkur; við búum til fjöldann allan af yfirlitum og einnig höfum við umsjón með vísitölum. Þá vinnum við náið með skráning­ arsviði Kauphallarinnar við að kynna markaðinn. Ég hef verið dugleg að kynna mér nýsköpun­ arumhverfið og heimsótt fjölmörg fyrirtæki þar sem við erum að kynna kauphöllina og hennar hlutverk í efnahagslífinu. Maður fær að vera með puttana í mörg­ um verkefnum, það er kosturinn við að vinna á litla Íslandi vs. erlendis í stærri fyrirtækjum, fjöl­ breytnin verður meiri. Við í kaup­ höllinni fáum því að njóta þess besta; að vera hluti af stóru, alþjóðlegu fyrirtæki sem Nasdaq er en vinna á litlum markaði sem Ísland er.“ Kristrún Kristjánsdóttir er með BS­próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og MBA­próf með áherslu á fjármál og alþjóðaviðskipti frá Pace University á Manhattan í New York. „Þegar ég var í námi í New York fékk ég vinnu með skól an­ um hjá American Stock Ex­ change sem var kauphöll fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Eftir út skrift réðu þeir mig í fullt starf í greiningardeild og vann ég þar í sjö ár eða þangað til ég flutti heim til Íslands. Ég réð mig síðan í Kauphöll Íslands og hef því eingöngu unnið í kauphöllum frá því ég útskrifaðist.“ Kristrún er gift Gunnari Fjalari Helgasyni, framkvæmdastjóra hjá Símanum, og eiga þau þrjú börn; Daníel Darra, 14 ára, Oliver Orra, 10 ára, og Söru Sól, níu ára. Þegar Kristrún er spurð um áhugamál nefnir hún fyrst hlaup. „Ég er í hlaupahópi í Mosfellsbæ sem heitir Mosóskokk og hleyp með þeim tvisvar til þrisvar í viku. Ég reyni að stunda ein­ hverja líkamsrækt fjórum til fimm sinnum í viku. Ég er búin að taka þátt í tveimur maraþonum og hver veit nema maður taki fleiri seinna. Við hjónin höfum mikinn áhuga á matargerð og mér finnst fátt skemmtilegra en að fá fólk í mat. Við lifum mikið fyrir að fara á góða veitingastaði erlendis og prófa eitthvað spennandi. Svo er auðvitað gaman að bralla eitthvað skemmtilegt með fjöl ­ skyldunni, fara á skíði, sund og ferðalög, bæði innanlands og utan. Strákarnir mínir eru báðir að æfa fótbolta og hafa sumrin farið mikið í að elta þá um landið á fótboltamót. Dóttirin er hins vegar í ballett.“ Fjölskyldan fór til London yfir hvítasunnuhelgina og svo verður farið til Ítalíu síðar í sumar. „Við fljúgum til Mílanó og eyðum einni viku í Toscana. Við ætlum svo að keyra um Ítalíu og fara til Feneyja og jafnvel Rómar. Krakkana lang ar síðan ofboðslega til að sjá skakka turninn í Pisa. Ég held að við hlökkum mest til að borða góðan ítalskan mat!“ TexTi: Svava JónSdóTTir / Mynd: Geir ólafSSon Kristrún Kristjánsdóttir, sérfræðingur á viðskiptasviði Nasdaq á Íslandi. Nafn: Kristrún Kristjánsdóttir. Starf: Sérfræðingur á viðskipta­ sviði Nasdaq á Íslandi. Fæðingarstaður: Hafnarfjörður, 25. maí 1971. Foreldrar: Kristján Tryggvason og Jóna Hafsteinsdóttir. Maki: Gunnar Fjalar Helgason. Börn: Daníel Darri, 14 ára, Oliver Orri, 10 ára, Sara Sól, 9 ára. Menntun: BS í hagfræði frá HÍ og MBA frá Pace University. Kristrún KristJÁnsDóttir – sérfræðingur á viðskiptasviði Nasdaq á Íslandi fólk „Við hjónin höfum mikinn áhuga á matargerð og mér finnst fátt skemmtilegra en að fá fólk í mat. Við lifum mikið fyrir að fara á góða veitingastaði erlendis og prófa eitthvað spennandi. Svo er auðvitað gaman að bralla eitthvað skemmtilegt með fjölskyldunni.“

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.