Listin að lifa - 01.06.2005, Qupperneq 11
Skemmtilegast í lífinu
er að fá að lifa!
segir Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir,
fulltrúi Seyðisfjarðar á Landsþinginu
„Ég hef oft hugsað um, hvað er gaman að lifa. Ætlarðu aldrei
að verða fullorðin, sagði maðurinn minn. Ég er svo lífsglöð að
ég ræð ekki við mig, er líka óttalegur prakkari - í góðu!“ Inga
Hrefna er nýorðin ekkja og fmnst félagslífið mikils virði. „Er
ómöguleg ef ég kemst ekki,“ segir hún.
Hún segir Seyðisfjarðarbæ koma vel á móti eldra fólkinu. „Við
erum með svo til nýtt íbúðarhús. Að vísu getur orðið þröngt á
þingi á neðri hæðinni, en stór salur á efri hæðinni. Enginn einn
er með lyklavöldin, þetta er eins og hjá kvennalistanum forðum
daga. Og karlarnir laga oftar kaffi en við konurnar!" Inga Hrefna
segir marga félagsmenn orðna harðfullorðna, en ótrúlega margir
taki þátt í félagslífinu. „Þó nokkuð af fólkinu er enn að vinna.
Menn ganga í félagið upp úr sextugu.
Á þriðjudagsmorgnum erum við með molasopa og rabb. Síð-
degis stokkum við spilin, spilum manna, jóker eða annað eftir
því hvað margir mæta. Á miðvikudögum er handavinna með
leiðbeinanda. Á fimmtudögum er tækjasalur og önnur aðstaða
í íþróttahúsinu opin okkur. Nýja íþróttahúsið okkar er á heims-
mælikvarða og sundlaugin ágæt þótt hún sé komin til ára sinna.
Margir nota heitu pottana á morgnana til að rífast um pólitíkina.
Föstudagana erurn við með kaffifund eða spjöllum yfir kaffibolla
og spilum félagsvist.11
Inga Hrefna er innfæddur Seyðfirðingur, „þótt flest sem að
mér snýr sé utan Seyðisfjarðar. Ég hef alltaf átt lögheimili á
Seyðisfirði, þótt ég hafi hleypt heimdraganum í nokkur ár. Mað-
urinn minn, Jóhann Jóhannesson, var frá Isafirði og var kennari
hérna. Hann lést árið 2001. Við áttum 6 börn. Einn son á ég
heima og tvö barnabörn. Önnur stelpan er í háskóla í Reykjavík
- og svo mikil heimþrá í henni að hún er komin heim strax og
skóla lýkur. Mig grunar að barnabörnin setjist að heima, en þótt
þau flytji, fer ég hvergi.
Nú er ekki mikið um að fólk elti börnin sín til Reykjavíkur, erfitt
fyrir eldra fólk að flytja í annað umhverfi, börnin öll að vinna,
svo að maður yrði meira einmana í Reykjavík. I dag býr fólk við
öðruvísi aðstæður, áður var flutt til að vera nær læknisþjónustu,
en nú er ekki sama þörfin. Maður er betur settur í litlum bæ með
sjúkrahúsið við næstu dyr.“
Inga Hrefna þekkir vel til á sjúkrahúsinu, vann þar í 30 ár.
„Ég var gangastúlka eða starfskraftur eins og það heitir nú. Var
hátt í 71 árs þegar ég hætti, en þá var mér ekki stætt lengur vegna
lagaákvæða um hámarksaldur þeirra sem vinna hjá ríkinu og
auðvitað var ég komin með aukna skattaálögu. Líka vitleysa að
geta ekki notið ellinnar. En á meðan sömu sjúklingar og sama
starfsfólk er á sjúkrahúsinu, þá er þetta eins og annað heimili
fyrir mig. Ég kíki alltaf inn, fer i býtibúrið og fæ mér kaffisopa.
Mér þykir vænt um Seyðisfjörð, svo notalegt og gott samfélag
heima. Kaffiskot í kaupfélaginu þegar þú ferð út að versla, allt
svo rólegt og allir þekkja alla. Þú hefðir átt að vera þar í morgun.
Spegilsléttur sjórinn, svo kom sólin upp og litaði alla dýrðina.
Sérstakt umhverfi og yndislegt."
O.Sv.B.
Kaffi og kleinur
að hætti Sigríðar í Brattholti
Velkomin á hótel Gullfoss
Gisting - veitingar
Bjóðum upp á fyrirlestur um
Sigríði í Brattholti ef þess er óskað,
Gerum verðtilboð
16 tveggja manna herbergi með baði og sjónvarpi
ásamt 70 manna veitingasal með fallegu útsýni.
Mjög gott aðgengi fyrir fatlaða. 2 heitir nuddpottar.
HótelGultfoss
v/Brattholt, 801 Selfoss
s.486 89 79, fax 486 86 91
netfang: infotahotelgullfoss.is
www.hotelgullfoss.is