Listin að lifa - 01.06.2005, Side 14

Listin að lifa - 01.06.2005, Side 14
Gunnlaugur Jónasson hefur sett svip sinn á bæjarlífið um áratugaskeið Bóksali, skíóa- maður og söngvari „Gulli Jónasar í Bókhlöðunni er einn af félögum í skíðafélaginu. Hann er í tónlistar- félaginu. Syngur í kirkjunni og Sunnukórnum. Gulli er einn af sterkari persónuleikunum við Silfurtorg," segja bsejarbúar. aðrir í veiði, ég fer í göngu. Hér er stutt „Þú finnur Gunnlaug uppi á þriðju hæð,“ segir afgreiðslustúlka í Bókhlöðunni. Eldra fólkið vill búa áfram í miðkjarna bæjarins, vílar ekki fyrir sér að hlaupa upp stigana á 3. hæð. Grannleitur maður, kvikur á fæti, opnar dyrnar brosandi, býður inn, þótt gesturinn hafi ekkert hringt á undan sér. Ég er drifinn inn í fallega stofu með fögrum málverkum á veggjum og píanói upp við vegg. Hér býr maður, alinn upp í anda söngs, bókmennta og lista, enda sonur Jónasar Tómassonar, tónskálds, söngkennara og kirkjuorganista, stofnanda Sunnukórsins og Bókhlöðunnar. Hér er gott að sitja yfir kaffi og kon- fekti, spjalla við mann sem andar af fjall- alofti. Söngur berst neðan frá Silfurtorgi, væntanlegir stúdentar vöktu allan bæinn árla dags með söng og trommuslætti. „Eitt barnabarnið býr hjá okkur. Hún fór á fætur kl. 4 í nótt til að undirbúa sig, koma sér í stemmningu. Þetta er stærsti árgangur sem útskrifast frá Menntaskólanum á Isafirði, 62 krakkar," segir Lára Gísladóttir, kona Gunnlaugs. Þú hefur orð fyrir að vera mikill skíðagöngumaður, Gunnlaugur. „Ég fer mikið í göngu, en þetta er skemmtun hjá mér, ekki keppni. Sumir fara í golf, að fara á gönguskíði og aðstaða mjög góð. Skíðafélagið er núna 70 ára. Sonur minn er formaður félagsins, svo að ég fylgist vel með. Helsta framlag mitt í skíðamálum var hinsvegar þegar við vorum að koma upp lyftunum. Við ísfirðingar vorum í fararbroddi - komum upp stóru og góðu skíðalandi á árunum 1960-70. Nýr skíða- búnaður kom á þessum tíma, ný gerð af skíðum, öryggisbindingar, smelluskór og fleira þess háttar og þá varð að hafa lyftur. Við auglýstum: Seljalandsdalur - paradís skíðamannsins! íþróttin blómstraði og bæjarbúar fjölmenntu á dalinn, en því miður þurrkaðist þetta út á einni nóttu 1994. Snjóflóðið féll skömmu eftir páska, eyðilagði allt í einni sviphendingu. Það var mikið áfall! Nú er búið að flytja skíða- landið upp í Tungudal og byggja upp aftur af miklum dugnaði lyftur og skíðabrautir og veg upp á svæðið. Fossavatnsgangan er á morgun, elsta almenningsgangan sem enn er við lýði á íslandi. Hún heitir svo af því gengið er fyrir fjóra dali í botni Skutulsfjarðar. Byrjað við Fossavatn, gengið fyrir alla dalina og endað á Seljalandsdal með kaffi- samsæti í skíðaskálanum. Þátttakendur geta valið um 7,10 og 20 km, nú jafnvel 50 km gönguleið. Þetta er kappganga fyrir þá sem hafa æft sig, skemmtiganga fyrir hina. Fossavatnsgangan er röð af almennum skíðagöngum um allt land, í Hólmavík, á Akureyri, Olafsfirði og Mývatnssveit og austur á Héraði. Sá sem tekur þátt í 4-5 göngum og stendur sig best, er krýndur göngumeistari. Þú getur líka ferðast víða um heim og tekið þátt í sambærilegum göngum. Nokkrir hafa farið héðan í VASA-gönguna sem er 80 km. Og hingað koma alltaf nokkrir útlendingar til að ganga með okkur. Uppi í fjalli: Ég var á vappi þar um daginn og hitti þá tvo jafnaldra mína, alla 75 ára. I skíðagöngu er ekkert spurt um aldur. Ég rekst líka oft á frænda rninn, Sigurð Jónsson, sem varð 85 ára í vetur. Hann hefur alltaf gengið Fossavatns- gönguna, 40-50 sinnum, ætlar nú enn einu sinni. Ég hef ekki keppt á skíðum síðan ég var unglingur, en fer eins oft og aðstæður leyfa. Skíðagangan er afar holl og góð íþrótt. Við röska göngu hitnar og liðkast allur skrokkurinn. Þú styrkir fætur jafnt sem handleggi, hugsanlegir strengir og stirðleiki hverfa úr baki og herðum. Svo fyllast lungun af hreinu lofti. Veðrið skiptir ekki öllu máli, ef það er hvasst eða dimmt er bara farið styttra. í bjartviðri er gengið lengra og notið útsýnis ofan á annað. Skíðin á veturna, golfkylfan þegar fer að vora. í þessu er fólgin mikil andleg upplyfting, ekki síðri en hin líkamlega. Breytingin: Núna fer ég ekki niður að vinna fyrr en um hádegið. Eitthvað verður að koma í staðinn, þegar breytingin kemur og vinnutími styttist. Maður spyr sjálfan sig: Hvað á ég að gera? Sitja í stól og lesa? 14

x

Listin að lifa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.