Listin að lifa - 01.06.2005, Page 15

Listin að lifa - 01.06.2005, Page 15
Gunnlaugur með sonum sínum.Gísla og Jónasi, uppi í fjalli. Maður sér sitthvað sem þarf að mála og bæta, en finnur sig ekki í formi til slíkra hluta. Afar brýnt er að leita félagsskapar, þegar aldurinn færist yfir. Fyrir mig skiptir miklu máli að taka þátt í söngnum. Þar hitti ég félaga mína - og á æfingum er bæði sungið og spjallað. Sunnukórinn er orðinn 70 ára, var stofnaður í janúar 1934. Stofnfundurinn var haldinn hér þar sem við sitjum, þá var fundarsalur hér á efri hæðinni. Ég vissi lítið af þeim stofnfundi, þótt ég væri staddur í húsinu. Skíðaganga, bóklestur og söngur styrkja andlega og líkamlega vellíðan, segir Gulli í Bókhlöðunni Sonur Jónasar Tómassonar: „Faðir minn kenndi söng í barnaskólanum og stofnaði, að ég tel, fyrsta tónlistarskólann á íslandi hér á ísafirði árið 1911 og rak hann í nokkur ár. Kennsla féll hinsvegar niður í frostunum miklu 1918, eins og í öðrum skólum vegna kolaskorts, og var ekki hleypt af stokkunum aftur fyrr en löngu síðar.“ Jónas var kirkjuorganisti í 50 ár, alltaf með sönginn og tónlistina í sér. Sunnukórinn stofnaði hann í fundar- salnum íyrir ofan bókabúðina sína 1934. Skiltið í búðarglugganum sýnir aldur Bókhlöð- unnar. Nú er ein besta afþreying sonar hans að mæta á söngæfingar Sunnukórsins. „Pabbi stofnaði Bókhlöðuna árið 1920. Ég tek svo við búðinni nokkru eftir að ég lýk námi í Menntaskólanum í Reykjavík um 1952. Annar Jónas tók svo við fyrir tíu árum síðan, þriðja kynslóðin sem rekur Bókhlöðuna. En ég held áfram mínu starfi, laus undan ábyrgð af rekstrinum, það eru heilmikil forréttindi." Bóklestur, hefúr honum hrakað? „Menn eru alltaf að lesa bækur. Eilítillar svartsýni gætir vegna unglinganna sem hafa minni áhuga á bóklestri. Áður voru spennubækur besta jólagjöfin til karl- manna. Nú er myndbandið vinsælla og tímafrekara. Tímaritin draga líka lesendur meira til sin. Nú eru færri krakkar sem flokkast undir að vera lestrarhestar eða bókaormar. Nema þegar maður kemur í yngri aldurshópana, þá er mikið lesið og skoðað, enda gott úrval af bókum fyrir fýrstu 5-6 árin. Nú eru flestir krakkar með tölvu og geta vafrað á milli, lifa sig ekki lengur inn í „Árna“ og „Oddu“ bækur eins og áður. Skemmtilegt að sjá hvað íslenskir höf- undar eru meira áberandi, og skrifa góðar bækur sem fólk talar um og vill fylgjast með. Áður voru það 3-4 karlar sem háru höfuð og herðar yfir bókamarkaðinn. Nú er meiri gróska í rithöfundum, bækurnar fjölbreyttari, og meira um góðar skáld- sögur sem skilja eitthvað eftir. Menningarlífið? Jú, það má fullyrða að mikil fjölbreytni er í menningarlífi ísafjarðar. Öflugur tónlistarskóli með nær 300 nemendum hér og á fjórum stöðum í nágrannabyggðum. I Listaskóla Rögn- valdar Olafssonar er boðið upp á tilsögn í ýmsum listgreinum, tónlist, myndlist, leiklist o.fl. Leikklúbbur starfar hér og atvinnuleikhús. Kómedíuleikhúsið er ekki stórt í sniðum, en er núna með skemmti- lega sýningu um Gísla Súrsson, hrein- ræktað, vestfirskt leikverk sem hefur verið sýnt víða. Að ógleymdu Safnahúsinu sem nýlega er búið að endurnýja. Þar er rekin öflug starfsemi bóka-, skjala- og listasafns í fallegu umhverfi. Hvort ég taki sjálfur þátt í menn- ingarlífmu? Ég held nú það. Tel mig hafa tekið drjúgan þátt í því, hef verið hér í miðbænum að selja bæjarbúum góðar og fróðlegar bækur síðustu 50 árin og rúm- lega það! Það er nú líkast til.“ O.Sv.B Frá Eftirlaunadeild símamanna Eins og undanfarin ár efnir Eftirlauna- deild símamanna til nokkurra daga ferðar um landið okkar. í ár verður farið í 7 daga ferð til Austur- lands, ekið um Suðurströndina, um Suðurfirðina og steinasafn Petru m.a. skoðað, farið til Mjóafjarðar og út á Dalatanga, til Borgarfjarðar eystri, að virkjunarsvæðinu við Hafrahvamma- og Dimmugljúfur og víðar. Frá Akureyri verður ekið suður um Kjalveg. Lagt verður af stað kl. 9 að morgni 21. júlí frá Umferðarmiðstöðinni. Gist veröur á Hótel Eddu í Nesjaskóla, Norðfirði, Eiðum og Akureyri. Hafi einhverjir símamenn, sem komnir eru á eftirlaun, ekki fengið bréf frá ferðanefndinni eru þeir beðnir um að hafa samband við Ragnhitdi Guðmundsdóttur, fyrrv. formann FIS, í síma 551-1137 eða 898-4437, hafi þeir áhugaáaðkoma meðíferðina. Ferðanefnd Eftirlaunadeildar símamanna. 15

x

Listin að lifa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.