Listin að lifa - 01.06.2005, Síða 18

Listin að lifa - 01.06.2005, Síða 18
Horft úr Sæbólsfjöru að Hrafnaskálanúpi. Draumspeki, álfakór og ættarmóri Guðmundur Hagalínsson gat lesið í náttúruna á meðan hann bjó á Ingjaldssandi „Guðmundur er svo margfróður maður að hann gæti fyllt blaðið af sögum og sögnum,“ segir Jón Fanndal. „Hann ætlar með þig út í Ingjaldssand þar sem hann var bóndi í 25 ár.“ Guðmundur og kona hans, Guðrún Bjarnadóttir, búa næstum á brimbrjótnum á Flateyri, með hið tign- arlega fjall, Þorfmn, beint framundan. Lengra út með firðinum má eygja fjöllin við Ingjaldssand. Nú er logn, en sker samt í báru. Oft hefur verið erfitt að ská- skera fjörðinn í verslunarferðum, eins og ábúendur gerðu áður á litlum bátskeljum. Guðmundur og Guðrún bíða eftir mér með tilbúið nesti. „Við fáum okkur kaffi- sopa á Hrauni,“ segir Guðmundur. Bæjarskiltið við lieimreiðina að Hrauni er skemmtilega frumlegt. Leiðin yfir á Ingjaldssand er ekki löng með fróðleiksbrunninn Guðmund við stýrið. Hann gæti verið frábær leiðsögumaður hér um slóðir. Sonur hans, Birkir Þór, er búinn að kaupa sérkort sem nær frá Gemlu falli út Fjallaskaga og yfir í Ingjaldssand - sögusvið Guðmundar Hagalínssonar! „Við ætlum síðan að láta gamla manninn skrifa örnefni inn á kortið,“ segir Birkir. Við ökum framhjá lystigarði séra Sigtryggs á Núpi uppi í fjallshlíðinni sem vildi sýna að hægt væri að búa til skrúð- garð á harðbala. A Núpshlaði er safn um séra Sigtrygg, en myndarlegar skóla- byggingar standa ónotaðar. „Mér hefur oft dottið í hug að hér væri gott athvarf fýrir unglinga sem eiga í vandræðum, svona fallegt umhverfi er mikil heilsubót," segir Guðrún. Og framhjá Lækjarósi, fæðingarbæ Guðmundar. „Oftar en ekki þurfti að hátta mann ofan í rúm eftir sullið á leirunum. Þar varð maður að dúsa þar til að fötin þornuðu. Þetta heitir að vera það fátækur að þurfa að dægra!“ Grét þegar hún flutti frá Ingjaldssandi Vegurinn yfir heiðina að Ingjaldssandi er hálfgerður jeppavegur, en Guðmundur segir hann með besta móti. Skyndilega blasir við búsældarlegur dalur, inn á milli hamrabrattra fjalla, með svellandi brim- garðinn úti fyrir. Hér standa myndarleg steinhús auð og yfirgefin, án upphitunar, sem er ávísun á skemmdir. Hraun er hitað allt árið sem kostar sitt, enda notalegt að koma þar inn. Falleg kirkja stendur nálægt sjávarkambinum. Hér var gott samfélag áður fyrr og mikil kirkjusókn, 100 manns þegar mest var upp úr aldamótunum 1800. Nú býr hér aðeins ein kona með 6 ára son sinn, hvílíkur kjarkur! Fróðlegt hefði verið að heimsækja hana. „Hér bjuggum við frá 1957-’95, oft lokuð inni í 6-7 mánuði yfir veturinn," segir Guðrún. „Man hvað ég var heilluð þegar ég sá fýrst snjósleða æða upp brekkurnar yfir heiðina, hvílík bylting í samgöngum! Oft var barningur hjá Guðmundi að keyra krakkana í skólann." „Maður notaði snjósleða, dráttarvél og bíl til að komast á Kíwanisfundi hálfs- mánaðarlega og mætti betur en þeir sem nær bjuggu,“ segir Guðmundur. „A okkar búskaparárum voru hér 25 börn frá vöggu til fermingar þegar flest var. Ég man sérstaklega eftir jólakörfunum með sælgætinu á jólaballinu. Og alltaf fórum við með krakkana í kirkju, þau sátu með sálmabækur, þótt þau væri ekki læs,“ segir Guðrún sem saknar Ingjaldssands, segist hafa grátið þegar þau fluttu alfarin héðan. „Hér var svo mikill friður. Yndislegt á vorin þegar lóan var komin, hlusta á lækjarniðinn og mófuglana í kyrrðinni. Ógleymanlegt að sjá kvöldsólina fljóta ofan á haffletinum í sumarstillunni. Eða á veturna um jólaleytið þegar allt var orðið hvítt og dauðalogn, stjörnubjart og tunglsljós. Þá sátu stelpurnar okkar við gluggann og biðu eftir að sjá jólin koma niður Hraunsdalinn." Nafn árinnar í dalnum hefur fagra merkingu, Ós-ómi eða „ómurinn við ósinn“. Nýárslagið — og raddir álfakórsins 18 ■B

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.