Listin að lifa - 01.06.2005, Síða 28
Fræösluhorniö
Ágætu lesendur!
Bestu þakkir fyrir góðar
undirtektir við þáttunum mínum.
Hvert á aö leita - hvaö er til ráöa?
Leiðbeiningastöð heimilanna heíur veitt alhliða neytenda-
firæðslu i 42 ár. „Við veitum upplýsingar um allt mögulegt
sem tengist því að halda heimili," segir Hjördís Edda
Broddadóttir íramkvæmdastjóri. „Kvenfélagasamband
Islands hefur starífækt leiðbeiningastöðina, sem er ein
sinnar tegundar, allt frá árinu 1963.“ Þarna eru veittar
upplýsingar um matreiðslu, bakstur, geymsluþol matvæla,
mataræði, þrif og þvotta, blettahreinsun og fleira. Einnig
er hægt að fá upplýsingar um evrópskar gæðakannanir á
heimilistækjum.
Nóg er að gera á Leiðbeiningastöð heimilanna allt árið, en
fyrirspurnir eru nokkuð árstíðabundnar. Algengustu fyrir-
spurnir í kringum stórhátíðir eru t.d. hvernig best sé að skipu-
leggja veislu og matarborð, hvaða veitingar henti best og eins
hversu mikið þarf að áætla af veitingum. Ekki má gleyma
smákökubakstrinum, matreiðsluaðferðinni á jólasteikinni og
fleira. A haustin er mikið spurt um geymsluþol grænmetis,
frystingu og súrsun, sultu- og sláturgerð. Fyrirspurnir, eins
og hvernig sé auðveldast að ná blettum úr fötum, teppum
og húsgögnum, ráðleggingar vegna kaupa á heimilistækjum,
geymsluþol og meðferð matvæla, svo og spurningar varðandi
ofnæmi og óþol berast jafnt yfir árið. Aukning hefur orðið á
alls kyns ofnæmi og óþoli. Fólk þolir ekki ákveðnar fæðuteg-
undir, algengast er óþol vegna eggja, mjólkur og hveitis. Fólk
með sykursýki leitar upplýsinga varðandi sitt fæðuval. Aðrir
Fljótlegur ábætisréttur
frá Ernu Helgu
1 pk makkarónukökur
200 g Toblerone súkkulaði, saxað
3 eggjarauður
3- 4 msk flórsykur
1 peli rjómi, þeyttur
Myljið makkarónukökurnar í grunna skál og bleytið með
dálitlum safa ef vill. Súkkulaði stráð yfir.
Þeytið eggjarauðurnar með flórsykrinum í þétta froðu,
blandið þeytta rjómanum varlega saman við og hellið yfir
kökumylsnuna. Kælið.
Stráið t.d. bláberjum, jarðarberjabátum, hálfum vínberjum og
melónukúlum yfir ábætinn áður en hann er borinn fram.
vilja draga úr fitunni. Fólk þarf sérhæfðar uppskriftir og reynt
er að koma til móts við það.
Við höfum fundið fyrir aukinni þörf á fræðsluefni um heimil-
ishald og heilbrigðara líferni. Markmið okkar er að ná til sem
flestra neytenda. Því hefur sú leið verið valin að auka útgáfu
á fræðsluefni sem nýtist öllum, óháð vinnu og búsetu,“ segir
Hjördís. Hún vill sérstaklega benda á nýjasta fræðsluefni leið-
beiningastöðvarinnar. Um er að ræða litskrúðug spjöld með
skýrum leiðbeiningum sem um leið eru auðveld í notkun.
• Mælieiningar
• Þvottaleiðbeiningar
• Geymsluþol matvæla í kæli
Fræðsluefnið er fáanlegt á skrifstofunni Túngötu 14, einnig má
panta það og senda í tölvupósti, leidbeiningar@kvenfelag.is
Annað fræðsluefni eins og rit um blettahreinsun, gerbakstur,
frystingu matvæla og fleira er einnig fáanlegt á skrifstofunni.
Þjónusta Leiðbeiningastöðvar heimilanna er öllum opin frá
kl. 9:00-12:30, mánudaga til fimmtudaga. Ath. breyttan síma-
tíma í desember. Sími: 908-2882.
Leitið nánari upplýsinga á heimasíðu Kvenfélagasambands
Islands www.kvenfelag.is
Sumarsalat
frá Daníel
1 poki klettasalat blandað
(eða annað blaðsalat)
2-3 tómatar (smátt skornir)
1/3 gúrka í litlum bitum
paprika t.d. gul í litlum bitum
100 g vínber skorin í tvennt
1/3 krukka fetaostur
1/3 krukka sólþurrkaðir tómatar
1/3 poki furuhnetur, ristaðar á þurri pönnu
Blandið öllu varlega saman og berið fram með fisk- eða
kjötréttum.