Listin að lifa - 01.06.2005, Blaðsíða 32
Svo líða þrjú ár að ég flýg aldrei og er orðinn nitján ára. Þá
býðst mér vinna í Bandaríkjunum í mínu fagi og ég ákveð að
fara. Aætlunarflug til New York var þá hafið og notuð flugvél
af Skymaster gerð, fjögurra hreyfla vél sem gekk undir nafninu
Fjarkinn. Flugtíminn til New York þá var 14 klst. með viðkomu á
Gander til að taka eldsneyti. Mikil upplifun var að koma til New
York með 10 dollara i vasanum.
Síðan ég sá flygildið fljúga yfir dalinn heima árið 1941 og
vissi ekki hvað var á ferðinni, hefur maðurinn flogið til tunglsins
og aftur til baka, hann hefur sent gervihnetti út um allan geim
sem senda okkur myndir til jarðar, þotur fljúga hraðar en hljóðið,
„Airbussinn“ er kominn á loft sem getur tekið 800 manns i sæti
og manngengt inni í vængjunum. Sú vél kæmist ekki fyrir í Aust-
urstræti, og stélið er svipað á hæð og turninn á Landakotskirkju.
Þótt „Airbussinn" sé svona stór og þungur, þá getur hann hafið
sig á loft. Hvílík tækni! Hefur önnur kynslóð upplifað aðrar eins
breytingar á sínu lífshlaupi? Eg veit að svo er ekki.
Mannlífið í öðru Ijósi
Nítján ára í New York - með tíu dollara í vasanum og farang-
urinn í lítilli handtösku. Eg þurfti að taka leigubíl og ætlaði aldrei
að skilja leigubílstj órann sem heimtaði: „tip, tip, tip.“ A endanum
gaf ég honum dollaraseðil, 10% af öllum peningunum sem ég
var með. Mannlífið birtist í öðru ljósi þegar maður kynnist svo
framandi umhverfi á mótunarárunum. Þarna var ég að sækja mér
starfsreynslu í garðyrkju í New York fylki. Eftir heimkomuna
vann ég á Veðurstofu Islands á Keflavíkurflugvelli í fjögur ár, tók
áður námskeið í veðurfræði.
Vestfirðirnir toguðu alltaf í mig svo að ég flutti vestur og
stofnaði garðyrkjubýlið Laugarás út úr Laugalandi. Þar upp-
skar ég bragðbestu tómata og agúrkur sem ég hef nokkru sinni
Þarna situr Jón Fanndal uppi á bílnum sínum fýrir framan gróðurhúsin
í Iþöku N.Y. þar sem hann vann 1953. Bíllinn er Hudson, árgerð 1950,
sem eru sjaldgæfir bílar. „Með þennan bíl kom ég með heim til Islands
1954,“ segir Jón.
bragðað. Loftslagið innst í Djúpinu er svo sólríkt að suðrænu
ávextirnir spruttu vel.
- Nyrsta gróðurstöð í heimi, sagði Sigurður Bjarnason frá
Vigur, þá ritstjóri Morgunblaðsins.
Eg annaði öllum Vestfjörðum, þótt ekki væri hægt að flytja
vöruna nema með skipum. Eg var jafnvel farinn að selja á Snæ-
fellsnes! Mjólkurbíllinn tók farma af tómötum og agúrkum í
Búðardal og flutti áfram til Stykkishólms og Grundarfjarðar. Ég
var með umboðskonur á hverjum firði til að selja sumarblómin
á vorin. Ein þeirra var Gerður í Flónni, sem bjó þá á Suðureyri.
Önnur var Karen Ragnarsdóttir sem leysir mig af á vellinum
þegar ég fer núna á Landsþingið - að ógleymdum heiðurskon-
unum Katrínu á Þingeyri og Hildi í Bolungarvík. Þetta voru allt
miklar blómakonur, sannkallaðar blómarósir. Nú er stórfram-
leiðslan það eina sem gildir.
Við stofnuðum líka Saumastofu Margrétar. Sú saumastofa
saumaði frystihúsasloppa fyrir nær öll frystihús á norðanverðum
Vestfjörðum. Margrét breiddi út rúllustrangann og sniðin, en ég
skar þau út með skurðarhnif. Ég fór síðan með ósaumaða sloppa
á bæina í kring, ein bændakonan saumaði 10 sloppa, önnur 20, og
þær fengu vissa borgun á slopp. Þetta var ágætis aukavinna fyrir
sveitakonurnar.
Skiptinemi frá Arizona kom til okkar. Kristen María Svenson
vildi vera yfir veturinn, en ég hræddi hana á norðaustan snjó-
byljunum. „Þú ættir að vita um sandstorminn heima! íslenskir
snjóbyljir eru ekkert hjá honum,“ sagði hún. Nú er Kristen María
gift kona hér og meiri Islendingur en margir aðrir.
Félag eldri borgara á
ísafirði í mikilli sókn
Ég tók við félaginu fyrir einu ári - og fannst ég vera að taka
við vél sem erfitt væri að koma í gang, en ég er búinn að gang-
setja hana. Aukningin er stöðug. Nú eru skráðir 330 félagsmenn,
sagaMedica
Aukin orka og vellíðan, sjaldnar kvef
Fjölbreytt virkni í einum skammti.
„Ég hef tekið Angelicu jurtaveig með ráðlögðum hléum í fjögur ár.
Mér fínnst hún vera orkugefandi, skapa vellíðan og langt er síðan
ég heffengið kvefeða flensu. Þetta þakka ég
ekki síst reglulegri inntöku Angelicu."
Sækjum styrk
íslenskt náttúruafl!
Fæsl í lyljii og heilsuvöruverslunum