Listin að lifa - 01.06.2005, Side 34

Listin að lifa - 01.06.2005, Side 34
Gagnlegar upplýsingar Veikindi eða slys erlendis Evrópska sjúkratryggingakortið í stað sjúkravottorðsins E-1 11 eir sem eru sjúkratryggðir hér á landi eiga rétt á nauðsyn- legri heilbrigðisþjónustu hins opinbera á ferðalagi í öðru EES-ríki. Frá og með maí 2005 sækja sjúkratryggðir hér á landi um evrópskt sjúkratryggingakort hjá Tryggingastofhun eða umboðum úti á landi. Handhafar þess eiga rétt á heilbrigð- isþjónustu innan EES-ríkja gegn sama gjaldi og sjúkratryggðir í EES-ríkjum. Með heilbrigðisþj ónustu er átt við nauðsynlega læknisaðstoð miðað við áætlaðan dvalartíma. Sjúklingur með Iangvinnan sjúkdóm sem dvelst tímabundið í öðru EES-ríki, og þarfnast Iæknisaðstoðar, á rétt á aðstoð gegn sama gjaldi og sjúkratryggðir í viðkomandi ríki. TR byrjaði að gefa út evrópskt sjúkratryggingakort frá 1. maí. Hægt er að sækja um kortið á heimasíðu TR. Evrópska sjúkra- tryggingakortið veitir handhafa rétt til heilbrigðisþjónustu við tímabundna dvöl í öðrum löndum innan EES á sama verði og heimamenn. Kortið hefur almennt tveggja ára gildistima. Talið er að á fyrsta árinu verði gefin út um 30 þúsund kort. Samtímis hætti TR útgáfu á sjúkratryggingavottorðinu E-lll, evrópska sjúkratryggingakortið kemur í staðinn. Það gildir í flestum löndum Evrópu og veitir rétt á allri heilbrigðisþj ónustu sem telst nauðsynleg til að ljúka tímabundinni dvöl á öruggan hátt. Kortið gildir eingöngu hjá heilsugæslustöðvum, sjúkra- húsum, apótekum og öðrum þjónustuaðilum með samninga við opinbera sjúkratryggingakerfið. Almannatryggingar taka ekki þátt í kostnaði vegna þjónustu sem veitt er á einkareknum sjúkra- stofnunum og kortið gildir því ekki þar. Á árinu 2004 voru gefin út hjá TR tæplega 11 þúsund E-lll vottorð og árið 2003 voru útgefin E-lll vottorð rúmlega 7.500 talsins. Þeir sem þurfa sjúkrahjálp á ferð utan EES-ríkja geta átt rétt á að fá hluta kostnaðarins endurgreiddan hjá TR gegn framvísun frumrita af sundurliðuðum reikningum og greiðslukvittunum. TR greiðir kostnað eins og um læknishjálp innanlands sé að ræða, nema sérstakir samningar séu í gildi við viðkomandi ríki. Þetta á aðeins við þegar leitað er til heilbrigðisþj ónustu hins opinbera í hverju landi, en þessar reglur gilda ekki ef farið er á einkaheilsu- gæslu. Allir íslendingar og aðrir EES ríkisborgarar sem sjúkra- tryggðir eru hér á landi eiga rétt á að fá evrópska sjúkratrygg- ingakortið til notkunar á ferðalögum tímabundið til annarra EES landa. Handhafar evrópska sjúkratryggingakortsins eiga rétt á heilbrigðisþjónustu innan EES-ríkjanna gegn sama gjaldi og þeir sem tryggðir eru í hverju EES-ríki fyrir sig. Með heilbrigðisþjón- ustu er átt við nauðsynlega læknisaðstoð meðan á dvöl stendur. Fyrsta dæmi: Einstaklingur ætlar að dvelja í EES-ríki í tvær vikur, en lendir í slysi og fótbrotnar. Hann á rétt á að búið yrði um brotið, en hann ætti ekki rétt á endurhæfingu sem getur beðið þar til hann fer heim án þess að það skaði hann. Annað dæmi: Ferðamaður veikist og þarf á lyfjum að halda. Hann á rétt á læknisaðstoð og nauðsynlegum lyfjum. Hins vegar þarf að taka tillit til áætlaðrar dvalarlengdar í landinu þegar metið er hversu stórum skammti af lyfjum ber að ávísa. Tannlæknisaðgerðir geta flestar beðið þar til sjúklingur snýr heim, að undanskilinni bráðahjálp. Athygli er vakin á því að sjúkdómur þarf ekki að koma upp meðan á dvöl í öðru EES-ríki stendur. Sjúklingur með langvinnan sjúkdóm sem dvelst tima- bundið í öðru EES-ríki, og þarfnast læknisaðstoðar á þeim tíma, á rétt á aðstoð gegn sama gjaldi og sjúkratryggður einstaklingur í viðkomandi EES-ríki myndi greiða. Ef einstaklingur óskar eftir aðstoð, án sjúkratryggingar, og kemur hingað eða til annars EES-ríkis gagngert til að fá lækn- isaðstoð, þá verður hann að greiða fyrir þjónustuna að fullu. Hann gæti síðan óskað eftir endurgreiðslu í heimalandi sínu. Tryggingastofnun í viðkomandi landi tæki þá ákvörðun um hvort endurgreiða beri kostnaðinn. Stjórn Reykjavíkurfélagsins. Effi röð: Þórir Daníelsson, Marías Þ. Guðmundsson, Margrét Thoroddsen, Baldvin Tryggvason, Hinrik Bjarna- son, Sólveig Pálmadóttir, Herdís Helgadóttir, Bryndís Víglundsdóttir. Neðri röð: Ásgeir Guðmundsson, Þórunn Lárusdóttir ritari FEB, Helgi Seljan varaformaður FEB, Margrét Margeirsdóttir formaður FEB, Stefán Ólafur Jónsson gjaldkeri FEB, Stefanía Björnsdóttir framkvæmdastjóri FEB, Halldóra H. Kristjánsdóttir. Á myndina vantar: Birnu G. Bjarn- leifsdóttur, Maríu H. Guðmundsdóttur, Valgarð Runólfsson, Björgvin Guðmundsson, Stefán M. Gunnarsson, Pál Guðmundsson og Ragnhildi G. Guðmundsdóttur. 34

x

Listin að lifa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.