Listin að lifa - 01.06.2005, Síða 36
Vestfirðir
- paradís ferðamannsins!
r
Aundanförnum árum hafa mögu-
leikar ferðamanna til afþreyingar
á Vestfjörðum eflst svo mjög að
nú jafnast svæðið á við það besta sem
gerist á landinu. Samgöngur við svæðið
og innan þess eru orðnar mjög auðveldar
á sjó og landi og flugleiðis.
Ein helsta perla Vestfjarða er Vigur,
en um 3.000 ferðamenn heimsóttu eyjuna
sumarið 2004. í Vigur gefst ferðamönnum
tækifæri á að skoða fjölskrúðugt fuglalíf
t.d. æðarfugl, lunda og teistu. í eynni
iDAH
er minnsta pósthúsið í Evrópu og eina
vindmylla landsins. Þaðan er víðsýnt og
fagurt um að litast.
Að Hesteyri í Jökulfjörðuin er gaman
að koma, en þar lagðist byggð í eyði
sem kunnugt er upp úr 1950. Binna í
Læknishúsinu tekur vel á móti gestum í
húsinu sem stendur á árbakkanum með
útsýni yfir óteljandi læki hinum megin
fjarðarins. Norsk hvalveiðistöð stendur
innar í firðinum og minnir á gullaldarár
byggðarinnar.
Ein af mörgum nýjum ferðum sem
Vesturferðir bjóða upp á í sumar er skoð-
unarferð út í Grímsey á Steingrímsfirði.
Farið er frá Drangsnesi á Ströndum, en
um tíu mínútna sigling er að eyjunni. í
Grímsey er auðugt fuglalíf og geysilega
mikil lundabyggð, en áætlað er að um 800-
900 þúsund pör af lundum séu í Grímsey.
Skáleyj ar eru einu eyj arnar í Breiðafirði,
utan Flateyjar, sem eru í byggð. í sumar
gefst kostur á að sigla frá Reykhólum út í
Skáleyjar og ganga þar um með leiðsögn
ft! - --
;V-"' ,
heimamanna. Eftir skoðunarferðina er
boðið upp á „alvöru íslenskan mat“, m.a.
selshreifa, harðfisk og tilheyrandi.
Söfn á Vestfjörðum eru mjög mörg og
fjölbreytt. Safnahúsið í Neðstakaupstað,
verbúðin í Ósvör, vélsmiðjan gamla og
fræga á Þingeyri, minja- og flugsöfhin
að Hnjóti og fleiri mætti nefna. Þá eru
ótalin handverkshúsin sem finnast í öllum
þorpum og bæjum. A rölti um Isafjarðarbæ
gefur að líta gömul og sögufræg hús, t.d.
elstu húsaþyrpingu landsins í Neðsta-
kaupstað og nýuppgerða Faktorshúsið í
Hæstakaupstað.
Vesturferðir eru til húsa i Aðalstræti
7, Edinborgarhúsinu á ísafirði og er Upp-
lýsingamiðstöð ferðamála á Vestfjörðum
rekin samhliða ferðaskrifstofunni. Opið
er í sumar ffá 08:00 til 18:00 á virkum
dögum, en frá 10:00 - 15:00 um helgar.
Nánari upplýsingar um allt ofangreint
má finna á vefnum www.vesturferdir.is.
Sjáumst á Vestfjörðum
í sumar!