Fréttatíminn - 10.04.2015, Síða 34
heilsa Helgin 10.-12. apríl 201534
Tvö 6 vikna námskeið hefjast í Hlíðasmára 15, Kópavogi,
þriðjudaginn 14. apríl: kl. 16.30 og 17.30
Byrjendahópur kl. 16.30 Framhaldshópur kl. 17.30
Ef ekki næst full þátttaka verða námskeið felld niður eða sameinuð.
Takmarkaður fjöldi
Skráning og nánari upplýsingar:
grindarbotn@gmail.com
eða í síma 564-5442
Grindarbotn
kvennaheilsa
S J Ú N
Hættu að borða sykur
– en ekki súkkulaði
Gunnar Már Kamban gaf út sína fyrstu bók: Lágkolvetna-
lífsstílinn, fyrir tveimur árum og seldist hún í yfir 12.000
eintökum. Nú hefur hann gefið út nýja bók á rafrænu
formi: Hættu að borða sykur, en með henni fylgir sex
vikna leiðarvísir um hvernig hægt er að minnka sykurinn í
markvissum skrefum.
G unnar hefur starfað sem einkaþjálfari í 20 ár en seg-ir að það hafi líklega komið
fáum á óvart að hann hafi leiðst út
í að skrifa matreiðslubækur. „Ég
lærði til kokks einhvern tíma á síð-
ustu öld og hef í raun alltaf, frá því
ég man eftir mér, haft áhuga á mat.
Í dag er ég heillaður af þeim mætti
sem matur getur haft á líkama okk-
ar, hug og heilsu og það er alltaf að
koma betur í ljós að við höfum okk-
ar eigin heilsu í hendi okkar.“
Minnkaðu sykurinn, skref fyrir
skref
Eftir að hafa gefið út þrjár bækur um
lágkolvetnalífsstílinn á skömmum
tíma ákvað Gunnar að fara óhefð-
bundnari leiðir með næsta verkefni
sitt sem hann kallar einfaldlega:
Hættu að borða sykur. „Bókin er
fræðslu- og hvatningarrit í formi raf-
bókar sem er í raun sex vikna áætlun
sem gengur út á að fólk stórminnki
sykurneysluna án þess að finna mik-
ið fyrir því. Sex vikna prógrammið
er sett upp þannig að þú færð sendan
póst alla virka daga næstu sex vik-
urnar, samtals 30 pósta. Hver vika
styðst við vikukaflana í bókinni og
daglegu póstarnir virka
eins og mjög ítar-
legt viðhengi
v ið hver ja
v i k u og
innihalda
hvatn-
ingu, fullt
a f upp -
skriftum
og auð -
lesnum
fróðleik og
leiða lesand-
ann í gegnum
prógrammið,“
segir Gunnar, en
með þessu fyrir-
komulagi lang-
aði hann að
halda betra
sambandi við
aðilann sem
kaupir bókina.
Prógrammið
snýst fyrst og
fremst um að
taka burt löng-
unina í sykur
með v issu m
breytingum á
mataræðinu. „Þú ert í raun að
borða í þig viljastyrk gegnum
vissan mat og næringarefni
því það er mjög erfitt að taka
þetta á hnefanum eins og þeir
vita sem hafa prófað það,“ seg-
ir Gunnar.
Enginn sykur en nóg af
súkkulaði
Gunnar hefur
alla tíð verið
mjög áhuga-
samur um
allt sem við
kemur mat
í tengslum
við heils -
una. „Ég
er kannski
óþarflega
nýjunga-
gjarn en mér
f innst nauð -
synlegt að prófa alla
hluti á eigin skinni til
að vita hvort það henti
mér og þá mögulega
f leirum. Mataræði
sem takmarkar
sykurneyslu og
leggur ríka áherslu
á tref jarík kol-
vetni, góðar fitur
og prótein er það
sem hentar mér
best. Fitan skipt-
ir mjög miklu
máli og til þess
að takast það að halda sykurþörf í
lágmarki þarf að leggja áherslu á að
næg fita sé í matnum.“
Gunnar fer mjög skemmtilega
leið til að borða þennan auka fitu-
skammt. „Ég geri daglega mitt eigið
súkkulaði úr kókosolíu og hágæða
kakói ásamt nokkrum bragðbæt-
andi hráefnum. Hver fílar það ekki
að borða súkkulaði daglega?“ Það
þarf því alls ekki að vera svo hræði-
legt að hætta að borða sykur. Gunn-
ar ráðleggur fólki að minnka sykur-
inn í litlum, markvissum skrefum
í stað þess að breyta um lífsstíl á
einni nóttu. „Þetta snýst bara um
að taka fyrsta skrefið.“
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
M atcha te hefur notið auk-inna vinsælda upp á síð-kastið, svo mikilla að það
var aðaldrykkurinn á tískuvikunni
í New York sem fram fór í febrúar.
Matcha er japanskt grænt te í púð-
urformi sem er margfalt öflugra en
hefðbundið grænt te. Það er stút-
fullt af andoxunarefnum en virku
efnin í þeim eru flavoníð sem ver
frumur líkamans og vinnur gegn
öldrun og catechin sem talið er
hefta útbreiðslu krabbameins-
fruma, lækka blóðþrýsting, halda
blóðsykurmagni stöðugu og draga
úr líkum á blóðtappa og flúor sem
ver gegn tannskemmdum. Sterk
tengsl eru á milli matcha tes og
hugleiðslu en það voru búdda-
munkar í Japan sem byrjuðu að
drekka matcha te við hugleiðslu
fyrir 800 árum. Þessarar tegundar
af tei var lengi vel aðeins neytt af
hástéttinni en það er eitt sjaldgæf-
asta, elsta og vandaðasta afbrigði
af grænu tei. Matcha te inniheldur
þrefalt meira af koffeini en hefð-
bundið grænt te, þar sem heil
telauf eru í matcha. Þú færð því
næga orku úr einum bolla og ekki
skemmir fyrir að þetta er mun holl-
ari valkostur en kaffibolli.
Matcha te – náttúruleg orka