Frjáls verslun - 01.08.2011, Side 17
FRJÁLS VERSLUN 8.- 9. TBL. 2011 17
Í stuttu máli
Gengi krónunnar
Janúar Október
Evra: 154,2 kr. Evra: 159,7 kr.
Dollar: 115,1 kr. Dollar: 116,1 kr.
Dönsk króna: 20,7 kr. Dönsk króna: 21,5 kr.
VerðbólGa 5,7%
slökkt á bakka – ekkert rafmaGn
Það var mikið áfall fyrir
Húsvíkinga þegar Tómas
Már Sigurðsson, forstjóri
Alcoa, tilkynnti á fundi fyrir
norðan að fyrirtækið hefði
hætt við að reisa álver á
Bakka. Fyrirtækið hafði sett
á annan milljarð króna í
verk efnið og unnið að undir
búningi þess frá árinu 2006
en til stóð að það hefði 250
þúsund tonna framleiðslu
getu á ári. Tómas Már
sagði að útséð væri að
það tækist að útvegja nýju
álveri Alcoa næga raforku.
Til væri vilja yfirlýsing af
hálfu Landsvirkj unar um að
selja orkuna fyrir norðan til
annarra verkefna og ekki
hefði tekist að fá viljayfirlýs
ingu um orkusölu til Alcoa,
hvorki af hálfu ríkisstjórnar
innar né Landsvirkjunar.
Húsvíkingar eru margir
hverj ir allt annað en ánægð
ir með ríkisstjórnina í þessu
máli og telja að Alcoa hafi
verið dregið á asnaeyrun um.
Tómas Már Sigurðsson. Á annan milljarð sett í verkefnið en rafmagn ekki tryggt.
mörður og björn
Valur fögnuðu
Í umræðum á Alþingi fögnuðu
þing mennirnir Mörður Árnason
og Björn Valur Gíslason því að
Alcoa hefði hætt við að reisa álver
á Bakka. „Ég óska vinum mínum
í Þingeyjarsýslunni til hamingju
með að slökkt hafi verið á þessu
villuljósi,“ sagði Mörður meðal
annars og átti þar við fyrirhugað
álver.
Salan á Iceland:
malcolm er heitur
Nýlega var sagt frá því að grein ing
ar fyrirtækið CACI teldi að sam
keppnisreglur gætu tafið það sölu ferli á
Icelandkeðjunni í Bret landi sem nú er
hafið. Skilanefnd gamla Landsbankans
er helsti eigandi Iceland.
CACI telur að samkeppnisreglurnar
komi Malcolm Walker, forstjóra
Iceland, til góða en hann hefur áhuga
á að kaupa keðjuna. Í frétt á vefsíðunni
Retail Week segir að Walker hafi átt
í viðræðum við fjárfestingarsjóðinn
Blackstone um fjármögnun á kaup
unum. Verð miðinn á Iceland er í
kringum 1,5 milljarðar punda eða um
273 millj arðar kr.
Malcolm Walker, forstjóri og stofnandi
Iceland.
Í viðtali Morgunblaðsins við
Tómas Má Sigurðsson, for
stjóra Alcoa, vegna ákvörðun
ar fyrirtækisins að hætta við
að reisa álver á Bakka kom
fram að Norðurál hefði lagt
20 milljarða í framkvæmdir í
Helguvík en allt er í óvissu um
hvort þeirri framkvæmd verði
nokkurn tíma lokið. Ástæðan
er sú sama og fyrir norðan á
Bakka; ekki liggur fyrir að hægt
sé að útvega nægilegt rafmagn.
Óvissa ríkir um þann samning
sem Norðurál gerði árið 2007
um kaup á raforku af HS Orku
til Helguvíkur og hvort semja
þurfi upp á nýtt eða gamli
samningurinn standi.
Kominn er nýr eigandi að HS
Orku, Magma Energy, en for
stjóri þess, Ross Beaty, hefur
rætt um að hækka verðið á raf
orkunni frá þeim samningi sem
gerður var fyrir fjórum árum og
var forsenda þess að Norðurál
hóf framkvæmdir í Helguvík.
Fram hefur komið að Stein
grímur J. Sigfússon ræddi við
Ross Beaty í ágúst 2009 um
eignarhaldið á HS Orku – en
hann þvertekur fyrir að hann
hafi rætt um það við Beaty
að hann hafi óskað eftir því
að fyrirtækið leitaði leiða til
að auka fjölbreytileika í við
skiptamannahópi sínum eins
og haldið hefur verið fram.
„Ég hef engin áhrif á það við
hverja HS Orka semur, það eru
viðskiptalegar ákvarðanir,“
sagði Steingrímur.
20 milljarðar
Í HelGuVÍk – en
HVað sVo?