Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.2011, Side 31

Frjáls verslun - 01.08.2011, Side 31
FRJÁLS VERSLUN 8.- 9. TBL. 2011 31 Aðgreining vöru - merk isins mikilvæg Jón Snorri Snorrason talar um það þegar forsvarsmenn at­vinnulífsins lýstu nánast vantrausti á ríkisstjórnina og gáfu henni falleinkunn og verkalýðsleiðtogar tóku í sama streng. Almenningur sé einnig að rísa upp gegn ríkisstjórn inni, eins og sést­hafi­við­setningu­Alþingis.­ „Það er kominn trúnaðarbrestur á milli stjórnvalda og aðila vinnu markaðarins, sem kann ekki góðri lukku að stýra. Þess­ ir aðilar þurfa auðvitað að vera samstiga því annars fáum við ekki hjól atvinnulífsins til að snúast aftur. Ég skil að mörgu leyti forráðamenn atvinnulífsins vegna þess að andstaðan sem hefur verið innan ríkisstjórnarinnar við nýjum fjárfestingum er nánast eins og trúarbrögð öfgahópa og ekki hvetjandi fyrir forráða­ menn fyrirtækja í landinu eða nýja fjárfesta. Þessir aðilar verða að slíðra sverðin og koma sér saman um einhverja atvinnu­ stefnu þannig að menn geti farið að tala um bjartsýni frekar en bölmóð.“ Hann segir að án stefnu og bjartsýni missi menn móðinn og­við­sjáum­enn­frekari­fólksflótta­úr­landi­vegna­stefnu­­og­ aðgerðaleysis stjórnvalda. Trúnaðarbrestur FYRIRTÆKIÐ OG ÞJÓÐFÉLAGIÐ Jón Snorri Snorrason, lektor við viðskiptafræð ideild Háskóla Íslands: Hlutabréf á alþjóðlegum markaði lækkuðu meira á þriðja ársfjórðungi­2011­en­þau­hafa­gert­síðan­haustið­2008.­Lækkunin náði til allra kauphalla veraldar og nemur víða um 15­25% á tímanum júlí til september.“ Sigurður segir að í mörgum kauphöllum sé verð nú meira en 20%­lægra­en­þegar­hlutabréf­náðu­hágildi­vorið­2011­eða­haustið­ 2010­og­víða­sé­lækkun­meiri­en­30%. „Helstu­vísitölur­í­Bandaríkjunum­og­Bretlandi­hafa­lækkað­ rétt­innan­við­20%.­Lækkun­um­meira­en­20%­á­tímabili­sem­er­ lengra en tveir mánuðir er algeng skilgreining á lækkunarskeiði hlutabréfa,­svonefndum­„Bear­Market“­á­ensku­sem­við­nefnum­ „bjarndýrsmarkað“. Meðallengd slíkra tímabila síðustu hálfa öld er 18 mánuðir. Fram undan gæti verið ennþá meiri lækkun, jafnvel 20­30%­til­viðbótar. Þrátt fyrir þetta alvarlega ástand bendir margt til þess að í októ ­ ber eða á næstu vikum myndist lággildi og síðan taki við hækkun ef til vill í fáeinar vikur. Á hverjum fjórðungi eru oftast tímabil hækk­ unar á hlutabréfum þrátt fyrir að langtímastefna sé til lækkunar. Þetta­gerðist­haustin­2000,­2001­og­2002­og­síðan­2008­jafnvel­ þótt lækkunarskeið ríkti þessi ár.“ Sigurður bendir á að efnahagsmál standi í blóma í Asíu, til dæm­ is­í­Malasíu,­Indónesíu­og­Taílandi­auk­stóru­landanna­Kína­og­ Indlands. Hann segir að þrátt fyrir að útlit sé lakara en fyrr á árinu 2011­sé­líklegt­að­aftur­birti­upp­þegar­líða­tekur­á­árið­2012.­„Enn­ er­reiknað­með­4­5%­aukningu­heimsframleiðslu­árin­2011­og­ 2012.­Hlutabréfaverð­mun­því­ná­botni­og­langtímastefna­snúast­ aftur­til­hækkunar­hugsanlega­á­árinu­2012.“­ ERLEND HLUTABRÉF Sigurður B. Stefánsson, sjóðstjóri hjá Eignastýringu Landsbankans: Nú er mikið rætt um sundurlyndi þingmanna manna á meðal. Þess­er­krafist­að­þingmenn­víki­þrasi­til­hliðar­og­einbeiti­sér að því að endurreisa efnahag landsins. Gagnrýni sem þessi­horfir­fram­hjá­mikilvægum­staðreyndum.­Ekki­síst­þeirri­að­ sjaldgæft­er­í­lýðræðisþjóðfélögum­að­allir­hafi­sömu­skoðun,­hvað­ þá í málum sem snerta mikilvæga hagsmuni. Að auki er við lýði á Íslandi þingræði. Í því felst að ríkisstjórnin á hverjum tíma starfar á ábyrgð meirihluta þingsins og jafnframt ræður sami meirihluti stjórn arstefnunni. Aftur á móti er minnihlutinn sama og valdalaus þegar kemur að landsstjórninni. Hlutverk minnihlutans hefur fyrst og fremst falist í að veita meirihlutanum aðhald. Er hægt að gera það öðruvísi en með því að halda á lofti þeim atriðum sem ágreiningur er um? Það vekur hins vegar athygli að ágreiningur innan þingmeirihlut­ ans­sem­nú­ræður­hefur­komið­upp­á­yfirborðið­í­mun­meira­mæli­ en átti við um ríkisstjórnir á undan. Þannig var það t.d. skortur á stuðningi innan ríkisstjórnarinnar við frumvarp um breytingar á Stjórnarráði Íslands, en ekki ræðusnilld stjórnarandstöðunnar, sem varð til þess að frumvarpið tók breytingum í meðförum þingsins á haustþinginu.“ Meirihlutaþingræði STJÓRNMÁL Dr. Stefanía Óskarsdóttir, sjálfstætt starfandi stjórnmálafræðingur: þau hafa orðið Hvað varðar mælingar á neytendahegðun þegar kem­ur­að­markaðssetningu­segir­Valdimar­Sigurðsson­að­mikilægt sé að mæla meira en bara eina vídd. „Ef hegð ­ un neytenda er til dæmis mæld á netinu þá er hægt að skoða mjög ítarlega hvað þeir skoða, kaupa og þess vegna hversu langan tíma þeir dvelja á ákveðnum heimasíðum. Einnig er oft hægt að sjá hvort viðkomandi sé skráður neytandi hjá viðkom­ andi fyrirtæki.“ Valdimar­segir­að­svo­sé­það­spurningin­hvers­vegna­viðkom­ andi­versli­hjá­tilteknu­fyrirtæki­og­af­hverju­hann­hafi­áhuga­á­ ákveðinni vöru eða þjónustu. „Mörgum fyrirtækjum er hægt að skipta­í­tvo­flokka.­Í­fyrsta­lagi­þau­sem­mæla­hegðun­neytenda­ á einhvern hátt og í öðru lagi fyrirtæki sem eru upptekin við að spyrja neytendur. Lykilatriðið er hins vegar að setja saman þessa þætti – þ.e.a.s. að breyta fyrirtækinu í lærdómsheild sem leitast við að svara eftirfarandi spurningum: 1. Hver­er­neytandinn?­(T.d.­í­smásölu­–­þekkjum­við­ okkar neytendur?) 2. Hvað er­hann­að­gera?­(T.d.­hvaða­hlekki­smellir­hann­á?)­ 3. Hvar myndast þörf, hvar er henni fullnægt? ­ (T.d.­hverjir­eru­leiðandi­í­umtali?) 4. Hvernig og­hvenær­velur­hann?­(T.d.­leitar­neytandi­að­ upplýsingum í verslun eða á netinu? Hvar verslar hann svo að lokum? Hver eru tengslin á milli hegðunar á netinu og í raunheimi?) 5. Af hverju er hann áhugasamur og af hverju kaupir hann? MARKAÐSHERFERÐIN Dr. Valdimar Sigurðsson, dósent við við- skiptadeild Háskólans í Reykjavík og gesta- prófessor við Cardiff Business School: Meira en ein vídd sé mæld Hækkun 2012
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.