Frjáls verslun - 01.08.2011, Síða 65
FRJÁLS VERSLUN 8.- 9. TBL. 2011 65
vantar enn skýr markmið
Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr:
Bjartsýni er að aukast
1. Hver verða forgangs verk
efni fyrirtækis þíns næstu
mánuði?
Skýrr hefur verið að ganga í
gegnum mikið umbreyt ingar
ferli á undanförnum tuttugu
mánuðum sem hefur meðal
annars falið í sér sameiningu
níu fyrirtækja í fjórum löndum
undir einn hatt. Næstu mán
uðir munu einkennast af sam
þætt ingu verkefna, þjónustu
og vöruúrvals með það að
markmiði að gera góða þjón
ustu enn betri. Einnig hyggj
umst við flytja alla starfsemina
á Íslandi undir eitt þak á næstu
tólf mánuðum. Þannig að það
er af nógu að taka hjá okkur!
2. Hvernig metur þú endur
reisn atvinnulífsins eftir
hrun?
Mér sýnist kjarnastarfsemi
flestra fyrirtækja í ágætu
horfi og það er mikil gróska í
atvinnu lífinu, þótt skuldsetning
eigenda fyrirtækja sé víða
erfið. Stemningin í samfélaginu
al mennt horfir líka til betri
vegar og bjartsýni er að auk
ast. Íslenska efnahagslífið
er viðkvæmt fyrir áföllum
vegna smæðar og einsleitni, en
þar með býr líka í því mikill
sveigjan leiki. Ég held að við
höfum séð botninn síðastliðið
sumar og séum núna að hefja
hæga uppsveiflu, þökk sé kraft
miklu atvinnulífi og hinum
mikla mannauði sem hérna býr.
3. Hversu mikið vantar upp á
að skuldavandi fyrirtækja sé
leystur?
Hvort sem horft er til fyrirtækja
eða einstaklinga eru mál að
vinnast alltof hægt. Slíkt skapar
óvissu og biðstöðu sem kemur
illa út fyrir alla. Mitt mat er
að regluverkið og úrræðin séu
nú þegar öll fyrir hendi. Kraft
þarf að setja í að klára mál,
hvort sem það þýðir yfirtöku
lánveitanda á grundvelli veð
réttar, endursamningu á skuld
um og/eða greiðslubyrði eða
hreinlega gjaldþrot í sum um
til fellum. Verst af öllu er að vita
ekki hvar mál standa og hvernig
morgundagurinn verð ur. Í þeirri
stöðu hafa allt of margir verið
allt of lengi.
4. Hvaða árangur ert þú
ánægðastur með hjá fyrir
tæki þínu á þessu ári?
Fyrir utan vel heppnaða sam
einingarlotu var sex mánaða
upp gjörið hjá Skýrr nokkuð
til komumikið, með tíu prósenta
tekjuvexti milli ára og liðlega
níu prósenta aukningu á fram
legð. Velta Skýrrsamstæð
unn ar á fyrri hluta ársins var
lið lega 12,3 milljarðar króna
og áætlanir gera ráð fyrir veltu
upp á 24 milljarða króna og
EBITDAframlegð upp á um
1,4 milljarða króna. Árangur
sem þessi næst einungis með
samstilltu átaki frábærs starfs
fólks og útsjónarsemi í rekstri.
Starfsfólk Skýrr má vera talsvert
hreykið af svona uppgjöri.
5. Finnst þér gæta tortryggni
í garð atvinnulífs og stór
fyrir tækja eftir hrunið?
Nei, ekki umfram það sem eðli
legt er. Í það minnsta upplifum
við hjá Skýrr ekki tortryggni
með al okkar viðskiptavina og
samstarfsaðila.
6. Hversu skaðleg eru gjald
eyrishöftin að þínu mati?
Skýrr er norrænt þjónustu
fyrir tæki í upplýsingatækni,
með um 1.100 starfsmenn og
til tölulega viðamikinn rekstur í
fjórum löndum: Íslandi, Noregi,
Sví þjóð og Lettlandi. Menn
þurfa að vera vel ráðagóðir í
slík um rekstri, þegar hann er
keyrð ur frá Íslandi. Jafnvel ein
földustu hlutir verða flóknir og
mannfrekir í úrlausn. Allt slíkt
bitnar óhjákvæmilega á afkomu
og rekstri. Þá eru ótalin áhrifin
á fjárfestingar hér heima og
erl endis, sem eru vægt til orða
tekið mjög neikvæð.
7. Hvaða styrkleika sérð þú
í íslensku viðskiptalífi um
þessar mundir?
Mest spennandi vaxtarsprot
arnir hérna eru í þekk ingar
iðnaði og ferða mennsku og hafa
lengi verið, þótt ýmis teikn séu á
lofti um skemmtilega nýsköpun
í sjávarútvegi, til dæmis kring
um eldi. Enn fremur virðist
mér skilningur vera að aukast
fyrir nauðsyn þess að auka
fjölbreytni í íslensku atvinnu
lífi. Í framhjáhlaupi vil ég nefna
þá skoðun mína að það myndi
auka stöðug leika efnahagslífsins
til langtíma að losa okkur við
krónuna. Sömuleiðis tel ég að
hagsmunum þjóð arinnar sé
best borgið innan Evrópu sam
bandsins, að því gefnu að okkur
bjóðist hagstæður samn ingur.
„Kraft þarf að setja í að klára mál,
hvort sem það þýðir yfirtöku lán -
veitanda, endursamningu á skuld -
um og greiðslubyrði eða hreinlega
gjaldþrot í sumum tilfellum.“
Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr.