Frjáls verslun - 01.08.2011, Page 70
70 FRJÁLS VERSLUN 8.- 9. TBL. 2011
Hermann Björnsson, nýr forstjóri Sjóvár:
endurreisn tekið of langan tíma
1. Hver verða forgangs verk
efni fyrirtækis þíns næstu
mánuði?
Sjóvá er eitt þekktasta vöru
merki landsins og býður upp á
allar tegundir trygginga. Verk
efnið framundan er að hlúa
enn frekar að sambandi okkar
við viðskiptavini með því að
koma til móts við þarfir þeirra í
tryggingavernd og þjónustu.
2. Hvernig metur þú endur
reisn atvinnulífsins eftir
hrun?
Endurreisnin hefur tekið of
langan tíma. Mörg félög glíma
enn við erfiðan fortíðar vanda
sem hamlar getu þeirra til
virkrar þátttöku í endur reisn
inni. Önnur félög sem ekki eru
í vanda halda að sér höndum í
fjárfest ingum vegna óvissu.
3. Hversu mikið vantar upp á
að skuldavandi fyrirtækja sé
leystur?
Af tölum má sjá að bönk um
gengur misvel að klára mál
með sínum viðskipta vin um.
Það þarf annað og meira að
koma til en ein ungis endur
setn ing skulda. At vinnu lífið
þarf að snúast miklu hraðar
og verðmæta sköp un að aukast
svo ekki þurfi að koma til enn
frekari lækk unar skulda. Það er
slæmur víta hringur.
4. Hvaða árangur ert þú
ánægðastur með hjá fyrir
tæki þínu á þessu ári?
Ég er afar ánægður með það
hversu vel viðskiptavinir fél
ags ins hafa staðið með Sjóvá.
Þann árangur ber að þakka
bæði góðu starfsfólki, sem
leggur sig fram í störf um sín
um, en ekki síður viðskipta
vinum félagsins sem treysta
okkur fyrir tryggingum sínum.
Aðkoma nýrra eigenda að fél ag
inu er einnig afar ánægju leg.
5. Finnst þér gæta tortryggni
í garð atvinnulífs og stórfyrir
tækja eftir hrunið?
Já, a.m.k. í garð ákveðinna geira
innan atvinnulífsins. Flestir
hins vegar gera greinarmun á
fortíð og framtíð í þessum efn
um. Það er grunnforsenda þess
að við hreyfumst úr stað og að
glatað traust endurvinnist.
6. Hversu skaðleg eru
gjaldeyrishöftin að þínu
mati?
Til lengri tíma litið eru höftin
neikvæð. Þau draga úr sam
keppnisstöðu landsins, halda
fjárfestingum í lág marki og úti
loka eðlilega áhættu dreifi ngu
íslenskra fjárfesta.
7. Hvaða styrkleika sérð þú
í íslensku viðskiptalífi um
þessar mundir?
Útflutningsatvinnuvegirnir eru
mikilvægustu stoðirnar núna,
þótt vissulega séu blikur á lofti
hvað varðar sjávarútveginn.
Mikil aðlögunarhæfni margra
fyrirtækja eftir hrun er einnig
aðdáunarverð. Við sjáum hana
m.a. í vaxandi fjölda verkefna á
þeirra vegum erlendis.
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár.
„Mikil aðlögunarhæfni margra
fyrirtækja eftir hrun er einnig
aðdáunarverð. Við sjáum hana
m.a. í vaxandi fjölda verkefna á
þeirra vegum erlendis.“
Við tökum
símann
fyrir þig
118 ja.is Símaskráin
Nýttu þér skiptiborðsþjónustu Já, við svörum símtölum
undir merkjum þíns fyrirtækis, í takt við þínar þarfir.
Kynntu þér skiptiborðsþjónustu Já í síma 522 3200 eða á Já.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
8
2
5
9