Frjáls verslun - 01.08.2011, Page 84
84 FRJÁLS VERSLUN 8.- 9. TBL. 2011
Jakob Sigurðsson, forstjóri Prómens:
Dregur úr tortryggni
1. Hver verða forgangs verk
efni fyrirtækis þíns næstu
mánuði?
Helstu verkefnin munu ein
kenn ast af frekari sam þættingu
í rekstri, örvun innri vaxtar og
ný sköpunar, auk stefnumótunar
tengdr ar nýjum vaxandi mörk
uðum.
2. Hvernig metur þú endur
reisn atvinnulífsins eftir
hrun?
Ljóst er að einhver árangur hef
ur náðst, en mun betur má ef
duga skal. Ég tel að enn sé langt
í land áður en við sjáum eðlilega
og nauðsynlega fjárfestingu í
lykil atvinnugreinum þjóðar innar
sem og góða dreifingu eignar
halds á nýjan leik.
3. Hversu mikið vantar upp á
að skuldavandi fyrirtækja sé
leystur?
Það er erfitt að átta sig á hver
stað an er í raun og veru en
eitt hvað virðist vera að rofa
til eftir hæga byrjun. T.d. hafa
þónokkur fyrirtæki farið í gegn
um endur skipu lagningu skulda
sem gerir þeim kleift vaxa og
dafna á nýjan leik.
4. Hvaða árangur ert þú
ánægðastur með hjá fyrir
tæki þínu á þessu ári?
Við höfum náð að bæta af
kom una umtalsvert frá því á
kreppuárinu 2009 og árið 2011
verður betra en 2010. Við höf
um treyst hluthafahópinn og
erum langt komin með að ljúka
endurfjármögnun sam stæðunnar
með erlendum bönk um.
5. Finnst þér gæta tortryggni
í garð atvinnulífs og stórfyrir
tækja eftir hrunið?
Nei – ekki almennt. Held að
flestir hér geri sér grein fyrir því
að öflugt atvinnulíf er undir
staða þess velferðarkerfis sem
við Íslendingar gerum kröfu til
og ekki sé hægt að skella skuld
inni á þennan hóp einan og sér.
6. Hversu skaðleg eru gjald
eyr ishöftin að þínu mati?
Það gefur augaleið að höft af
þess u tagi valda tregðu í við
skipt um, aftra erlendri fjár
fest ingu á Íslandi og minnka
fjár fest inga kosti Íslendinga
sem hefur óæski leg áhrif á sam
keppni um fjár magn innan
lands. Því fyrrr sem hægt er að
aflétta höft un um því betra.
7. Hvaða styrkleika sérð þú
í íslensku viðskiptalífi um
þessar mundir?
Flestar útflutningsgreinar
virð ast standa vel um þessar
mundir og þar er núverandi
gengi krónunnar ekki eina
ástæð an heldur hátt afurðaverð
einnig. Annars held ég að mesti
styrkurinn liggi í duglegu,
metn aðarfullu og vel menntuðu
fólki og þar stöndum við vel
sem fyrr – þetta þarf að virkja
enn betur.
Jakob Sigurðsson, forstjóri Prómens.
„Við höfum treyst hluthafahópinn
og erum langt komin með að ljúka
endurfjármögnun samstæðunnar
með erlendum bönkum.“
arionbanki.is – 444 7000
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.IS
A
R
I5
67
57
1
0/
11
Sævar Freyr Þráinsson
forstjóri Símans Hvað skiptir þig máli?
„Það skiptir máli að stunda
umhverfisvæn viðskipti
og senda út rafræna
greiðslu- og launaseðla.“
Arion banki leggur ríka áherslu á að vera leiðandi í rafrænum
viðskiptum og bjóða heildarþjónustu hvað varðar rafræn viðskipti.
Komdu í næsta útibú og ræddu við fyrirtækjaráðgjafa eða kynntu
þér rafræna þjónustu á arionbanki.is/fyrirtaeki
Rafræn þjónusta
fyrir fyrirtæki