Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.2011, Side 165

Frjáls verslun - 01.08.2011, Side 165
FRJÁLS VERSLUN 8.- 9. TBL. 2011 165 É g hef starfað sem framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar í rúmt ár. Það sem m.a. er skemmtilegt við vinnuna er að Fríhöfnina þekkja langflestir Íslendingar, og svo til allir hafa skoðanir á starfsemi hennar. Starf mitt er fyrst og fremst fólgið í að reka fyrirtækið á sem hagkvæmastan hátt, og leitast ég við að gera það með mínu góða fólki. Mér finnst sérstaklega skemmtilegt að vera með samstarfsfólki mínu í að þjónusta viðskiptavinina – vera á gólfinu, eins og sagt er. Ég reyni að gera það sem oftast, enda nauðsynlegt fyrir sérhvern stjórnanda að vera með puttann á púlsinum. Ákveðið var að fara í miklar breytingar á nokkrum verslun um okkar og höfum við m.a. notað íslenskar ljósmyndir til að ná fram ákveðinni upplif un, ekki síst fyrir erlenda við skiptavini. Mark­ mið okkar með breytingun um er að þegar viðskiptavinir koma inn í versl unina upplifi þeir eitthvað sér stakt og öðruvísi en þeir eru vanir. Þessu teljum við okkur ná, m.a í gegnum útlit verslananna, með góðu vöruframboði og með persónulegri þjónustu. Eins erum við nýbúin að breyta heimasíðunni okkar á þann hátt að viðskiptavinir geta nú pantað vöruna, látið taka hana til og pokinn bíður annaðhvort við brottför eða við komu til landsins.“ Ásta Dís er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún er í sambúð með Jakobi Bjarnasyni, for­ stöðu manni eignasviðs gamla Landsbankans, og á tvær dætur. „Ég lauk BA­prófi í félags fræði og meistaranámi í stjórnun og stefnumótun í Há­ skóla Íslands. Um tíma kenndi ég við Háskóla Íslands og eitt árið fékk ég þá flugu í höfuðið að það gæti verið gagnlegt að taka doktorspróf í alþjóðleg­ um viðskiptum. Ég flutti því til Kaupmannahafnar þar sem ég og fjölskylda mín bjuggum í nokkur ár. Eftir að við fluttum til Íslands varð Mosfellsbær fyrir valinu, m.a. vegna þess að Ágúst Einarsson, rektor á Bifröst, fékk mig til að koma og kenna þar. Síðar gerðist ég forseti viðskipta­ deildar á Bifröst. Mosfellsbær er einhvern veginn í útjaðri Reykjavíkur, og ég vildi ekki fara lengra. Því má segja að ég hafi alltaf eytt talsverðum tíma á ferð­ inni og geri enn, nú keyrandi á milli Reykjavíkur og Keflavíkur. Ég tók nýlega sæti í stjórn Byggð astofnunar, sem er á Sauð árkróki eins og flestir vita, og því er gott að hafa góðan síma, handfrjálsan búnað og útvarps tæki sem virkar. Mitt helsta áhugamál undanfar­ in ár, að fjölskyldunni frátalinni auðvitað, hefur verið laxveiði. Jakob smitaði mig af þeirri dellu og hef ég notað hvert tækifæri sem gefst til þess að komast í góða á. Í sumar náði ég 32 löxum í Blöndu, Ytri­Rangá, Vatnsdalsá og Haffjarðará. Að fara í Haffjarðará hefur verið toppurinn. Auðvitað er áin sjálf stórkostleg, en fyrst og fremst eru það veiðifélagarnir. Ég hef farið þangað undanfarin ár með sama hópnum og alltaf haft jafnmikla ánægju af. Ég setti mér það markmið fyrir rúmu ári að gera eitthvað nýtt í hverjum einasta mánuði, eitt hvað spennandi sem ég hef aldrei prófað áður. Þetta hef ég reynt að standa við. Í síðasta mánuði var það til dæmis að fljúga sjálf flugvél, og í þess­ um mánuði að syngja inn á geisladisk, svo eitthvað sé nefnt. Sumir segja – og líklega með réttu – að ég sé frekar ólagviss, en er ekki sagt að svo verði hver að fljúga sem hann er fjaðraður? Ég söng því af innlifun.“ Ásta Dís Óladóttir – framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar Ég setti mér það markmið fyrir rúmu ári að gera eitthvað nýtt í hverjum einasta mánuði, eitt­ hvað spennandi sem ég hef aldrei prófað áður. Þetta hef ég reynt að standa við. Nafn: Ásta Dís Óladóttir Fæðingarstaður: Reykjavík, 4. desember 1972 Foreldrar: Þuríður A. Steingrímsdóttir og Óli H. Þórðarson Maki: Jakob Bjarnason Börn: Jóhanna Helga, 15 ára, og Þuríður Anna, 6 ára Menntun: MSc í stjórnun og stefnumótun og doktor í alþjóðlegum viðskiptum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.