Frjáls verslun - 01.09.2008, Blaðsíða 13
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 8 13
út í neinn stofnkostnað, allur tæknibúnaður
og 24 klukkustunda viðbragðsafl er innifalið
í mánaðarlegu áskriftargjaldi.
Á Stjórnstöð Securitas er fylgst með
öllum öryggiskerfum viðskiptavina fyrirtæk-
isins ásamt því að hafa eftirlit með örygg-
ishnöppum eldri borgara,
fjarvöktun myndeftirlits-
kerfa og öll önnur neyð-
arsímsvörun. Þaðan er
stýrt útkallsflota örygg-
isvarða Securitas en
útkallsstöðvar eru nokkrar.
Stjórnstöð Securitas er sú
stærsta á landinu í hvaða
formi sem það er mælt,
þ.e. fjölda verkefna, starfs-
manna, tekna.“
Vel þjálfað starfsfólk
Yfir 300 starfsmanna Sec-
uritas eru öryggisverðir, til
viðbótar eru 100 tækni-
menntaðir starfsmenn og
á þriðja tug starfsmanna
fyrirtækisins eru viðskipta-
og verkfræðimenntaðir.
Þessu til viðbótar er á þriðja tug í öðrum
störfum hjá fyrirtækinu.
Securitas er búið að setja upp nýtt
öryggisvarðarnám með bæði Keili og Skóla
atvinnulífsins sem færir námið í hæsta gæða-
flokk. Öryggisverðir Securitas er nú byrjaðir
að fara í gegnum þetta nýja nám sem á eftir
að styrkja fyrirtækið enn meir. Tæknimenn
fyrirtækisins, sem eru í grunninn rafiðnaðar-
og tæknimenntaðir, fá tveggja ára viðbót-
arþjálfun bæði hér heima og erlendis.
Allt starfsfólk Securitas er þjálfað í skyndi-
hjálp, meðferð slökkvitækja og fleiri sérhæfð-
ari öryggisnámskeiðum
þar sem farið yfir meðferð
og notkun tæknibúnaðar
sem fyrirtækið selur og
þjónustar. Securitas selur
fjórar aðaltegundir af
gæsluþjónustu, þ.e. far-
andgæslu, staðbundna
gæslu, verðmætaflutning
og rýrnunareftirlit.
Farandgæsla byggist á
því að komið er í ákveð-
inn fjölda eftirlitsferða
í viðkomandi fyrirtæki,
samkvæmt þeim samn-
ingi sem gerður er um
þjónustuna. Farandgæsla
er víða nauðsynleg þar
sem viðvörunarbúnaði
verður ekki við komið
með góðu móti. Jafn-
framt minnkar fyrirbyggjandi eftirlit líkur á
að eitthvað beri út af í öryggislegu tilliti.
Staðbundin gæsla felst í því að örygg-
isverðir eru alltaf á staðnum, sem dæmi
má nefna Þjóðmenningarhús Íslands. Þjón-
ustan byggist á því að öryggisvörður stundar
öryggisvörslu við sama gæsluverkefni allan
samningstímann, með stöðugri viðveru. Eðli
þessarar þjónustu tryggir nauðsynlegt fyr-
irbyggjandi eftirlit og viðeigandi markviss
viðbrögð ef eitthvað ber út af.
Verðmæta- og peningaflutningar eru í
mikilli aukningu. Sífellt fleiri sjá sér hag í
að láta fagaðila sjá um flutning verðmæta
fyrirtækisins. Securitas er með peningaflutn-
ingabíla á höfuðborgarsvæðinu og eru þeir í
stöðugum verkefnum fyrir helstu fyrirtæki
landsins.
Trausti segir að lokum að alltaf sé það
haft að leiðarljósi að sýna frumkvæði og
færa viðskiptavininum lausnir sem skapa
vinningsstöðu bæði fyrir viðskiptavininn og
Securitas: „Okkar fólk sækir fram af krafti og
frumkvæði og við viljum standa fyrir væntri
upplifun og þjónustu. Viðskiptavinur Sec-
uritas veit hvaða framúrskarandi upplifun
og þjónustu hann fær hjá því alþjóðlega
vörumerki sem Securitas er.“
Viðskiptavinur
Securitas veit hvaða
framúrskarandi
upplifun og þjónustu
hann fær hjá þessu
alþjóðlega vörumerki
sem Securitas er.
Securitas er í hópi
fyrirtækja sem hlotið
hafa nafnbótina
Fyrirmyndarfyrirtæki hjá
Verslunarmannafélagi
Reykjavíkur.
Síðumúla 23 • 108 Reykjavík
Sími: 580-7000 • Fax: 580-7070
Netsíða: www.securitas.is
Um 460 manns starfa hjá
Securitas og öryggisverðir
eru að störfum allan sólar-
hringinn alla daga ársins. Í
viðbragðsstöðu og gæslu-
verkefnum fyrir þúsundir
viðskiptavina fyrirtækisins.
FV0808X.indd 13 10/28/08 2:03:46 PM