Frjáls verslun - 01.09.2008, Blaðsíða 22
KYNNING22 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 8
E
ignarhaldsfélagið KVOS var stofn-
að árið 2006. Helstu dótturfélög
eru Prentsmiðjan Oddi á Íslandi
og InfoPress Group sem starfar í
suðausturhluta Evrópu. Fyrirtæki Kvosar á
Íslandi voru fyrir sameiningu Oddi, Guten-
berg, Kassagerðin og OPM, sem er fram-
leiðsluhluti félagsins.
„Framleiðslan hefur verið sameiginleg
fyrir öll fyrirtækin, sem og skrifstofuhald,
tölvudeildir, birgðahald og fleira sem tilheyr-
ir stoðdeildum. Þetta skref felur því einungis
í sér að sölustarfsemin er sameinuð undir
einu sterku nafni,“ segir Jón Ómar.
Allir starfsmenn undir sama þaki
Í prentfyrirtækjunum sem sameinast undir
merkjum Odda liggur löng og mikil saga.
Gutenberg er elsta prentsmiðja landsins, með
mjög breiða skírskotun inn á markaðinn, hefur
þjónað fyrirtækjum, einstaklingum og síðast
en ekki síst opinbera geiranum. Oddi á langa
og farsæla sögu að baki sem alhliða prentsmiðja
en löngum hefur aðal fyrirtækisins verið bóka-
prentun og þjónusta við fyrirtæki. Þá hefur
Kassagerðin verið burðarás í umbúðaprentun
hér á landi um áratuga skeið.
„Að starfseminni koma nú um 300 manns
og með þeirri miklu þekkingu og reynslu sem
starfsmenn okkar búa yfir getum við þjónað
viðskiptavinum á þann hátt sem enginn
annar getur á íslenskum markaði. Með því
að starfa undir einu þaki og einu vörumerki
náum við enn betri árangri en hver í sínu lagi
og viðskiptavinir okkar munu njóta þess.“
Þjónustan meiri og betri
Jón Ómar nefnir að prentiðnaðurinn sé mun
meiri þjónustugrein en áður var og að unnið
sé í nánum tengslum við viðskiptavinina sem
gera kröfur um að allt sé fyrsta flokks: „Prent-
gæðin eru alltaf að aukast. Markaðurinn og
markaðssetning fyrirtækja kallar á meiri prent-
gæði þar sem litið er á allt sem fyrirtækin láta
frá sér, hvort sem það er pappakassi, nafnspjald
eða ársskýrsla, sem markaðssetningu og því er
mikilvægt að gæðin séu alltaf fyrsta flokks. Við
hjá Odda höfum alltaf lagt okkur fram um að
vera með bestu tækin og hæfasta starfsfólkið,
þannig höfum við náð sterkri stöðu á markaði
þar sem ríkir mikil samkeppni.“
Þá segir Jón Ómar að fjölbreytt þjón-
ustuúrval sé lykilatriði til að halda velli á
íslenskum markaði. „Íslenski prentmarkaðu-
rinn er þannig að nær útilokað er að ætla sér
að vera stór nema að geta leyst mjög fjölbreytt
verkefni. Ekkert verk er of stórt fyrir okkur og
ekkert of smátt.“
Aukin áhersla er lögð á fjölbreyttri aðgang
að þjónustu en áður. „Við höfum tekið í
notkun vefpöntunarkerfi sem auðveldar fólki
prentkaup til muna. Þar hefur viðskipta-
vinurinn möguleika á að breyta skjölum,
Hversu stórt eða smátt
sem verkið er þá höfum
við réttu lausnina
Hinn 1. október síðastliðinn sameinuðust prentfyrirtækin Oddi, Gutenberg og Kassagerðin
undir nafni Odda. Sameiningin styrkir stöðu Odda sem öflugustu prentsmiðju landsins
og gerir fyrirtækinu kleift að bæta enn þjónustu sína við stóra og smáa viðskiptavini.
Sameiningin felur ekki í sér breytingu á eignarhaldi en fyrirtækin hafa öll verið í eigu
Kvosar hf. frá 2006. Framkvæmdastjóri Odda er Jón Ómar Erlingsson.
FV0808X.indd 22 10/28/08 2:12:21 PM