Frjáls verslun - 01.09.2008, Blaðsíða 88
88 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 8
F
orstjóri Mannvits, Eyjólfur Árni Rafns-
son, segir að víðtæk sérþekking starfs-
manna tryggi fyrirtækinu trausta
samkeppnisstöðu, bæði á alþjóð-
legum mörkuðum og gagnvart erlendum
fyrirtækjum sem sækjast eftir verkefnum á
Íslandi. Starfsemi Mannvits er skipt í sex
sjálfstæð kjarnasvið sem flest tengjast með
einum eða öðrum hætti þ.e. í Iðnað, Orku,
Byggingar, Framkvæmdir og rannsóknir.
Umhverfi, samgöngur og veitur og Upplýs-
ingatækni. Þegar til stóð að Rafhönnun og
VGK-Hönnun sameinuðust var ákveðið að
taka upp nýtt nafn og má segja að frá síðustu
áramótum og þar til í apríl hafi verið unnið
að því að finna það: „Mannvit varð ofan á,
einfalt og grípandi nafn sem hefur þegar fest
sig í sessi.
Starfar í alþjóðlegu umhverfi
Við störfum í alþjóðlegu umhverfi þar sem
vaxandi áhugi er á grænni eða vistvænni orku.
Okkar tækifæri liggja í þessum aukna áhuga
og þar njótum við ákveðins forskots vegna
þekkingar á sjálfbærri orkuframleiðslu.“
Hjá Mannviti starfa um 400 manns og
eru þá ekki meðtaldir starfsmenn sem starfa
í erlendum fyrirtækjum sem Mannvit á eða á
hlut í. Hluthafar eru á annað hundrað sem
allir eru starfsmenn fyrirtækisins. Mannvit
á hlut í nokkrum fyrirtækjum sem tengjast
verkfræði. Meðal þeirra eru HRV Engineer-
ing ehf., sem býr yfir sérhæfðri tækniþekk-
ingu og reynslu í uppbyggingu álvera. VGK-
Invest sem á hlut í Geysir Green Energy, fjár-
festingafélagi sem einbeitir sér að tækifærum
á sviði endurnýjanlegra orkugjafa, einkum
jarðvarma. Þá er Mannvit hluthafi í Vatna-
skilum ehf. og Loftmyndum ehf.
Þjónusta við álverin
„Stærstu verkefnin innanlands tengjast
þjónustu við álverin, sem við vinnum í
gegnum HRV, meðal annars nýbyggingu í
Helguvík, stækkun álversins í Straumsvík,
en sú stækkun liggur í framleiðsluaukn-
ingu álversins, vinnu við undirbúning álvers
Alcoa á Bakka og ýmislegt fleira sem lítur
að þjónustu við álverin. Þá má nefna að við
erum í samstarfi við önnur fyrirtæki um
undirbúning og hönnun jarðvarmavirkjana á
Hellisheiði og vatnsaflsvirkjana allt frá Búð-
arhálsi niður í Urriðafoss. Einnig er þjónusta
við sveitarfélög og veitufyrirtæki stór hluti af
okkar starfsemi.
Við höfum ekki mikið verið í hönnun
íbúðarhúsnæðis sem hefur gert það að verkum
að við höfum getað að mestu haldið okkar
striki það sem af er ári. Í bygginariðnaðinum
höfum við helst verið að vinna í stærri mann-
virkjum í atvinnu-, skóla- og skrifstofu-
húsnæði eins og nýbyggingu Háskólans í
Reykjavík, Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu og
verslunar- og skrifstofuhúsnæði fyrir Smára-
garð og fleiri aðila.“
Úrval lausna á sviði
verkfræði og tækni
Mannvit hf. er sameinað fyrirtæki verkfræðistofanna vgk-Hönnunar hf. og raf-
hönnunar hf. fyrirtækið er stærsta ráðgjafarfyrirtæki landsins á sviði verkfræði og tækni.
FV0808.ok.indd 88 10/29/08 11:56:52 AM