Frjáls verslun - 01.09.2008, Blaðsíða 136
136 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 8
lífsstíll
Svo mörg voru þau orð
„Íslenskt viðskiptalíf hefur gengið í gegnum mikla upp-
sveiflu síðastliðin ár. Á þessum tíma hefur innheimtuárangur
innlánsstofnana og fyrirtækja verið mjög góður. Nú hafa
skilyrðin gjörbreyst á stuttum tíma. Við, sem störfum að
innheimtumálum, finnum hvernig verulegar breytingar hafa
átt sér stað á síðustu mánuðum og misserum. Vanskil hafa
verið að aukast og flest bendir til þess að þau eigi eftir að
aukast enn meira. Reyndar hefur breytingin verið svo mikil
að nánast er hægt að merkja aukningu vanskila frá viku til
viku.“
Alexander Þórisson, rekstrarhagfræðingur og fram-
kvæmdastjóri Alskila, innheimtuþjónustu.
Morgunblaðið, 11. september.
„Yfir alþjóðlega fjármálakerfið dynja nú einar þær mestu
hamfarir sem orðið hafa í áratugi.“
Lárus Welding, forstjóri Glitnis.
Morgunblaðið, 18. september.
„Í stað þess að líta á núverandi þrengingar sem ástæðu
til aukinna umsvifa hins opinbera ætti að líta á þær sem
hvata og tækifæri til aðhalds og ráðdeildar. Af undangeng-
inni þjóðfélagsumræðu síðustu vikna vita allir Íslendingar
að aðstæður eru erfiðar. Segja má að andlegt ástand þjóð-
arinnar sé með þeim hætti að nú, fremur en oft áður, ætti að
vera almennur skilningur á því að taka þurfi erfiðar ákvarð-
anir og grípa til óvinsælla aðgerða. Í þessu kristallast raun-
verulegt hlutverk stjórnmálamanna. Það væri allra hagur
að við framlagningu fjárlaga í október rísi þeir undir þess-
ari miklu ábyrgð og haldi aftur af frekari þenslu opinberra
útgjalda.“
Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
Íslands. Morgunblaðið, 18. september.
Golf:
Félagsskapur, sjálFsstjórn
og einBeiting
Hrannar Hólm. „Það er ekki spurning að golf eflir tengsl milli mín
og þeirra sem ég vinn með.“
„Pabbi spilaði golf og ég byrj-
aði að spila sem pjakkur,“
segir Hrannar Hólm, fram-
kvæmdastjóri viðskiptaþróunar
hjá Capacent. „Það var síðan
bylting þegar Halla, konan
mín, fór að spila golf því
golfið getur verið sérlega fjöl-
skylduvænt sport.“ Þess má
geta að stórfjölskyldan hefur
farið í frí til útlanda þar sem
golfið er veigamikill hluti ferð-
arinnar. „Golfið gefur fólki kost
á að vera saman í frábæru
umhverfi.“
Hrannar segir að golfinu
fylgi veruleg hreyfing ef mikið
er spilað. „Maður er stundum
genginn upp að hnjám og
aumur í skrokknum eftir langa
daga. Golfið hjálpar mér að
halda mér í formi.“
Þegar Hrannar er beðinn um
að lýsa golfíþróttinni í nokkrum
orðum segir hann: „Skemmtun,
félagsskapur, keppni, sjálfs-
stjórn og einbeiting.“
Fyrir utan fjölskylduna
stunda margir félagar og
vinnufélagar Hrannars golfí-
þróttina. Starfs síns vegna
fer hann yfirleitt til einhverra
Norðurlandanna í hverri viku og
ef færi gefst er dagurinn tekinn
snemma og farið út á golfvöll
með starfsfélögum áður en
alvaran tekur við.
„Það er ekki spurning að
golf eflir tengsl milli mín og
þeirra sem ég vinn með.“
Hrannar mundar kylfuna.
NYHERJI_KONAN_MIN_FRJALS_V. 2.2.2007 15:33 Page 1
Composite
C M Y CM MY CY CMY K
FV0808X.indd 136 10/28/08 2:52:18 PM