Frjáls verslun - 01.09.2008, Blaðsíða 130
130 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 8
Bílar
í útvarpinu mátti heyra viðvörun: Þæfingur,
slydda og vont skyggni er á Hellisheiðinni,
leggið ekki á heiðina nema brýna nauðsyn
beri til. Þetta hljómaði svo spennandi fyrir
Land rover discovery að honum héldu engin
bönd. yfir heiðina fór hann í krapa og við
verstu aðstæður; en fann ekki fyrir neinu.
enda er bæði fjórhjóladrifið og undirvagninn
rómaður fyrir akstur í vondu færi og veg-
leysum. discovery stóðst prófið með glans.
Nýjasti discoveryinn kom á markaðinn
fyrir rúmum tveimur árum, þriðja kynslóðin
af þessum vinsæla bíl sem fyrst var settur
á markað fyrir nítján árum. Hann hefur vaxið
og dafnað, er tæpir fimm metrar að lengd,
rúmgóður; vel fer um fimm manns og þess
utan eru tvö sæti aftast, svo alls rúmar hann
sjö manns.
Vélin er öflug 2.7L V6 sem er tæp 200
hestöfl og ættuð frá peugeot. öflug en ekki
snögg, enda er þetta stór og mikill bíll. Hann
er byggður með sjálfstæðri fjöðrun og loft-
púðum ñ sem kemur sér vel í borgarumferð.
en bestur er hann þegar komið er út fyrir
borgarmörkin. Þar er hann eins og ljúfur gæð-
ingur sem liggur eins og klessa. sætin fín og
langferð ekki vandamál. Mælar og mælaborð
eru smekkleg og haganlega fyrir komið, þó er
stokkurinn, með miðstöð og útvarpi, nokkuð
takkamikill. Venst eflaust.
Það góða við Land rover discovery er að
hann hefur ekki gleymt fortíðinni. Þetta er
alvöru jeppi, með millikassa og ótal hjálp-
artækjum til að koma manni áfram í erfiðustu
torfærum. en nokkuð hefur borið á því að nýj-
ustu „jepparnirì eru ekki byggðir fyrir torfærur
heldur frekar fyrir hraðbrautir. Útlitið er sterk-
legt, það er „Land-roverlegt“ og smekklegt,
það eina sem mér finnst að við útlitið er hvað
afturljósin eru stór. eins og bíllinn.
Yfir heiðina
páll stefánsson reynsluekur Land rover discovery
texti oG LjósMyNd: páLL stefánsson
Land Rover Discovery
FV0808X.indd 130 10/28/08 2:50:35 PM