Frjáls verslun - 01.09.2008, Blaðsíða 39
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 8 39
setið fyrir svörum
Er fall krónunnar og hlutabréfa að
undanförnu versta krísa sem þú hefur
upplifað sem stjórandi?
Nei. Varðandi veikingu krónunnar þá er hún
of veik núna en það ríkti óeðlilegt ástand
þegar hún var ofursterk síðastliðið ár. Sú
styrking orsakaði að hluta það ástand sem
nú ríkir. „Útrásin“ svokallaða fékk gjaldeyr-
istekjur sem útflutningsgreinarnar sköpuðu
á útsölu og hefur nú sóað því fé. Varðandi
hlutabréf þá tekur hver og einn áhættu með
hlutafjárkaupum og verður að taka því að
tapa því ef illa fer.
Hvaða lærdóm getum við dregið af
þessari krísu?
Fyrst og fremst að treysta á útflutnings-
greinar, sjávarútveg, landbúnað og allar
gjaldeyrisskapandi greinar. Læra að meta
landið okkar og öll gæði þess og standa
vörð um auðlindir okkar. Eyða ekki um efni
fram, hvort sem það eru fyrirtæki eða ein-
staklingar.
Hvað hefur staðið upp úr hjá fyrirtæki
þínu á árinu?
Það sem alltaf stendur upp úr er samstillt
átak starfsmanna og okkar að gera sem
mest verðmæti úr því sem við höfum til ráð-
stöfunar.
Telur þú að krónan sé búin að vera
sem gjaldmiðill Íslendinga?
Nei, krónan er ekki búin að vera. Öll
umræða um að núverandi ástand sé
krónunni að kenna er röng að mínu mati.
Sveiflur á gjaldmiðli fara eftir hagstjórn
landsins en ekki nafni gjaldmiðilsins.
Ert þú hlynnt því að Ísland gangi í Evr-
ópusambandið ef það er eina leiðin til
að taka upp evru?
Ég er ekki hlynnt því að taka upp annan
gjaldmiðil og alfarið á móti hugmyndum um
inngöngu í Evrópusambandið né nokkurt
annað ríkjasamband.
Hefur þú trú á að hin alþjóðlega láns-
fjárkreppa leysist á næstu mánuðum?
Því miður er ég ekki bjartsýn á að alþjóðleg
lánsfjárkreppa leysist á næstunni, enda
erum við ekki núna búin að sjá hvað skulda-
söfnun felur í sér.
Ef þú ættir að gefa Geir H. Haarde for-
sætisráðherra eitt gott ráð, hvaða ráð
yrði það?
Ég er ekki fær um að gefa neinum ráð,
hvorki forsætisráðherra né öðrum, nema að
koma fram af hreinskilni og segja sannleik-
ann hvort sem hann er óþægilegur eða ekki
og meta landið okkar með öllum okkar auð-
lindum sem ég veit að hann gerir. Ennfremur
að láta þá sem eiga sök á þessu ástandi
sem nú ríkir taka afleiðingunum en ekki
setja byrðarnar á vinnandi fólk í þessu landi.
Og ekki síður að gæta þess að hengja ekki
bakara fyrir smið, en þar á ég við umræðuna
um Kastljósþáttinn 7. október og ásakanir
fólks í garð davíðs Oddssonar, sem þorði að
segja sannleikann í þessu fréttaviðtali.
GuðRÚN LÁRuSdóTTIR,
ÚTGERðARKONA HJÁ STÁLSKIpuM:
Ekki eyða um efni fram
Guðrún Lárusdóttir, útgerðarkona hjá Stálskipum:
„Það sem alltaf stendur upp úr er
samstillt átak starfsmanna og okkar
að gera sem mest verðmæti úr því
sem við höfum til ráðstöfunar.“
FV0808X.indd 39 10/28/08 2:26:05 PM