Frjáls verslun - 01.09.2008, Blaðsíða 146
146 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 8
spak
UMSJÓN: páll Bjarnason
mæli
Spakleg orð um fjölmiðla
Dagblöðin hafa
líka sína kosti ...
Dagblöðin hafa líka sína kosti.
Maður sér ekki framan í eig-
inmanninn við morgunverð-
arborðið.
Danielle Michaux
Sjónvarpið hefur breytt amer-
ískum börnum úr því að vera
ómótstæðileg í það að vera
óbifanleg.
Laurence J. Peter
Sjónvarpið gerir þér kleift að
fá skemmtikrafta heim í stofu
sem myndu aldrei annars heim-
sækja þig.
David Frost
Blaðamenn segja ýmislegt sem
þeir vita að er ekki satt, í þeirri
von að með því að endurtaka
það nógu oft verði það satt.
Arnold Bennet
Bækur gáfu mönnum kost á
hægum endursýningum löngu
áður en íþróttafréttir sjónvarps
komu til sögunnar.
Bern Williams
Ef maður bætir einhverju
skáldlegu og gáfulegu við orð
viðmælandans er manni hrósað
fyrir gott minni. Ef maður hins
vegar skrifar nákvæmlega það
sem sagt var er kvartað undan
að ekki sé haft rétt eftir.
Ole Vinding
Viðtal við stjórnmálamann felst
í því að blaðamaðurinn reynir
að notfæra sér lausmælgi
stjórnmálamannsins og stjórn-
málamaðurinn trúgirni blaða-
mannsins.
Emery Kelen
Ég las það í blaði að ekki sé
auðvelt að vera barn. Ég varð
mjög undrandi því að dagblöð
birta ekki á hverjum degi svo
heilagan sannleik.
Astrid Lindgren
Heimurinn hefur ekki verið að
versna svo mikið, heldur hefur
fréttamiðlunin verið að batna.
G.K. Chesterton
Sjónvarpið er miðill sem fær
milljónir manna til að hlæja að
sama brandaranum samtímis,
en vera samt einmana.
Dennis Potter
Blaðamenn sem skrifa um
rokktónlist eru menn sem geta
ekki skrifað, hafa viðtöl við fólk
sem getur ekki talað, fyrir fólk
sem getur ekki lesið.
Frank Zappa
Blaðamenn lifa ekki á orðum
einum saman, þó að þeir verði
stundum að éta þau ofan í sig.
Adlai E. Stevenson
Í Kaliforníu fleygja menn ekki
rusli heldur búa til sjónvarps-
þætti úr því.
Woody Allen
Hvers vegna trúa makar
blaðamanna aldrei því sem
stendur í blöðunum?
Poul Malmkjær
Ég skil ekki hvers vegna alltaf
er beðist afsökunar á töfum og
truflunum í sjónvarpi, en aldrei
á dagskránni.
Otto Preminger
Enginn mælir slúðurfréttum bót,
en allir vilja heyra þær.
Joseph Conrad
Mér finnst sjónvarpið mjög
fræðandi. Í hvert skipti sem
einhver kveikir á því fer ég í
næsta herbergi og les í góðri
bók.
Groucho Marx
HugurAx Guðríðarstíg 2-4 www.hugurax.is hugurax@hugurax.is
Cognos er stjórnendahugbúnaður sem margir helstu leiðandi aðilar
viðskiptalífsins hér á landi og erlendis nota til að stýra og halda
utan um reksturinn.
Cognos gerir þér kleift að greina lykiltölur úr öllum upplýsinga-
kerfum á einfaldan og hraðvirkan hátt. Betri og stöðugri yfirsýn,
bætt stjórnun og betri vinnuferlar eru aðeins hluti af þeim kostum
sem Cognos býður upp á.
Kynntu þér málið.
FV0808X.indd 146 10/28/08 2:53:34 PM