Frjáls verslun - 01.09.2008, Side 143
Fólk
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 8 143
Valdís Ásta
Aðalsteinsdóttir: „Í
ár er stefnan sett á
skíðaferð til Akureyrar,
auk þess sem við
vonum að skíðasvæði
Reykvíkinga komi jafn-
sterkt inn þennan vetur
eins og síðasta vetur.“
Flugmálastjórn Íslands fer með heim-ildarveitingar og eftirlit í flugmálum Íslands og starfa um 40 starfsmenn
hjá stofnuninni. Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir
gegnir starfi upplýsingafulltrúa og yfirmanns
sérverkefnastofu og vinnur náið með flug-
málastjóra: „Ég sinni öllum beinum sam-
skiptum við fjölmiðla og þarf töluvert að leita
til sérfræðinga hér innanhúss enda spurn-
ingarnar oft á tíðum sértækar. Verkefni mín
eru margbreytileg en oftar en ekki eiga þau
upphafs- og endapunkt sem á vel við mig,
allt frá útgáfu og samantektar ársskýrslu til
skipulagningar árshátíðar stofnunarinnar.
Fyrirferðarmest þessa dagana er öflun
tölfræðigagna sem okkur ber að skila til
Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) og
Eurostat, m.a. um flughreyfingar til og frá
landinu, farþegafjölda og fraktflutninga, auk
þess sem ég er að svara könnun Evrópusam-
bandsins um starfsmannaleitni (trend) í flug-
iðnaðinum. Þá tek ég þátt í endurskipulagn-
ingu gæðakerfis stofnunarinnar og kem til
með að vera rekstrarstjóri kerfisins þegar
þeirri vinnu er lokið. Þrátt fyrir erfiðleika í
efnahagsmálum í heiminum í dag tel ég og
hef mikla trú á að íslenskur flugrekstur með
sínum sveigjan- og teygjanleika eigi eftir að
koma þokkalega vel út úr þessum þreng-
ingum. Kannski er meginverkefni stofnunar-
innar einmitt í dag að tryggja trúverðugleika
íslenskra flugmála á erlendri grund.“
Eiginmaður Valdísar Ástu er Sveinn Ingv-
arsson, verkefnastjóri tjónamats farmtjóna
hjá Tryggingamiðstöðinni, og eiga þau tvo
syni, 12 og 8 ára: „Fjölskyldan stundar skíði
saman og hefur undanfarin ár farið til Aust-
urríkis í skíðaferð sem hafa verið frábærar. Í
ár er stefnan sett á skíðaferð til Akureyrar auk
þess sem við vonum að skíðasvæði Reykvík-
inga komi jafnsterkt inn þennan vetur eins
og síðasta vetur.
Við höfum verið dugleg að fara í sumarfrí
til Alicante á Spáni þar sem við höfum aðgang
að sumarhúsi en þangað höfum við farið á
hverju ári frá 2002. Ég hrökk því aðeins við
þegar börnin spurðu í sumar af hverju við
gætum ekki bara verið eins og venjulegar
fjölskyldur og farið í útilegur. Snarlega var
bætt úr útileguleysinu og við fórum í nokkrar
eftirminnilegar útilegur í sumar. Við ætlum
að ferðast innanlands næsta sumar og búast
má við að sumarfrísgallinn verði eitthvað efn-
ismeiri þetta árið en bikini.
Ég byrja daginn í World Class Spöng-
inni og mæti þar klukkan sex á morgnana
enda morgunhani mikill og hef alltaf verið.
Fór t.d. á milli Keflavíkur og Reykjavíkur
með rútunni þegar ég var í Menntaskól-
anum í Reykjavík. Ég leysi eina sudoku-
þraut að lágmarki á dag. Ég tel mig alls
ekki vera ofurkonu en segi þó stolt frá
því að ég er búin að sulta og taka slátur
í haust, dreg þó mörkin við kæfugerð!
Sveinn dregur svo björg í bú með gæsa- og
rjúpnaveiðum.“
upplýsingafulltrúi og yfirmaður sérverkefnastofu Flugmálastjórnar Íslands
Valdís Ásta aðalsteinsdóttir
Nafn: Valdís Ásta
Aðalsteinsdóttir.
Fæðingarstaður: Keflavík,
3. nóvember 1969.
Foreldrar: Sigrún Valtýsdóttir
og Aðalsteinn Hólm Guðnason.
Maki: Sveinn Ingvarsson.
Börn: Dagur Darri, 12 ára,
og Goði Ingvar, 8 ára
Menntun: BA-próf frá HÍ í félags-
fræði, með fjölmiðlafræði sem
aukagrein. Mannauðsstjórnun
hjá Endurmenntunarstofnun HÍ.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
4
37
74
1
0/
08
Orkuveita Reykjavíkur starfar í sátt við umhverfið.
Vistvæn
tilvera
www.or.is
Hreint og tært vatn, heitt og kalt, og vistvænir orkugjafar eru
ómetanlegar auðlindir sem hafa búið okkur Íslendingum öfundsvert
hlutskipti. Með einstöku brautryðjendastarfi, rannsóknum og tækni-
framförum við nýtingu á endurnýjanlegum orkugjöfum hefur
Orkuveita Reykjavíkur gert tilveru okkar vistvænni og betri. Njótum þess að vera til í sátt við umhverfið. Nánari
upplýsingar um Orkuveituna og umhverfismál má finna á www.or.is
TExTI:
hilmar
Karlsson
MYNDIR:
geir
ólaFsson
FV0808X.indd 143 10/28/08 2:53:05 PM