Frjáls verslun - 01.09.2008, Blaðsíða 144
144 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 8
F élag kvenna í atvinnurekstri var stofnað 1999 með þau meginmarkmið að efla samstöðu kvenna í atvinnurekstri og
auka sýnileika þeirra og tækifæri í viðskipta-
lífinu. Félagið hefur eflst og dafnað þessi ár
og eru nú um 700 konur í félaginu. Sofía
G. Johnson er framkvæmdastjóri FKA: „Ég
hef mikil samskipti við félagskonur, sé um
fjármál og bókhald, félagatal og margs konar
undirbúningsvinnu fyrir fundi og ráðstefnur
sem félagið stendur fyrir eða er aðili að. Við
fórum nýlega með hóp 50 kvenna til Hels-
inki og er það þriðja utanlandsferð félagsins.
Þar hlýddum við m.a. á mjög áhugaverðan
fyrirlestur Eiju Ailasmaa, forstjóra Sanoma
Magazines, sem er fjórða stærsta tímarita-
útgáfa Evrópu en hún hefur verið kjörin
viðskiptakona ársins í Finnlandi.“
Sofía og eiginmaður hennar, Jón Ólafs-
son, ráku eigið fyrirtæki í 20 ár en seldu
það á vordögum 2005 og ákváðu að „setjast
í helgan stein“. „Eiginmaðurinn hefur
haldið sig við það en ég tók þetta hlutastarf
hjá FKA sjálfri mér til ánægju og dundurs.
Starfið hefur veitt mér mikla ánægju, ég hef
kynnst fjölda dugmikilla og frábærra kvenna
og eignast margar góðar vinkonur og það
met ég mikils.
Börnin eru að sjálfsögðu löngu flogin úr
hreiðrinu og hafa fært okkur sjö barnabörn
á aldrinum 1 árs til 18 ára. Þessi 18 ára býr
hjá okkur og poppar upp heimilislífið en
hún er í námi í FB. Dóttir okkar er búsett á
Spáni með þrjú barna sinna en sonurinn er
hér með sína fjölskyldu.“
Sofía segir að ekki hafi verið mikill tími
fyrir áhugamálin þegar þau hjónin ráku
eigið fyrirtæki: „Okkur fannst samt alltaf
gaman að skoða landið og fórum m.a. í
gönguferðir með allt á bakinu í nokkra daga.
Svo eignuðumst við sumarbústað í Hraun-
borgum í Grímsnesi og vorum þar allflestar
helgar á sumrin og oft á veturna á meðan
við vorum að vinna og nú reynum við að
vera þar mestallt sumarið. Við erum að ljúka
byggingu gestahúss svo betur fari um börnin
Fólk
Sofía G. Johnson:
„Utanlandsferðir
síðustu ár hafa verið
ýmist til Spánar að
heimsækja dóttur
okkar og taka í
leiðinni nokkra golf-
hringi eða til Flórída
og spila golf.“
framkvæmdastjóri FKA
sofía G. Johnson
Nafn: Sofía Guðrún Johnson
Fæðingarstaður: Reykjavík,
30. nóvember 1947
Foreldrar: örn Ó. Johnson og
Margrét Þ. Johnson
Maki: Jón Ólafsson
Börn: Margrét (f. 1969) og
Ólafur örn (f. 1971)
Menntun: Stúdentspróf. Próf úr
rekstrar- og viðskiptafræði hjá
Endurmenntun HÍ
og barnabörnin ef þau vilja heimsækja
okkur í sveitina.
Áður en við hættum í rekstri höfðum
við lengi gælt við hugmyndina um að snúa
okkur að golfi svo við skelltum okkur af
fullum krafti í golfið vorið 2005. Þegar
við erum í sumarbústaðnum spilum við
aðallega á golfvellinum á Kiðjabergi en á
Nesinu þegar við erum í bænum. Vellirnir
eru afar ólíkir og skemmtilegar andstæður.
Kiðjabergsvöllurinn reynist mörgum erf-
iður á fótinn en okkur finnst þetta hin
besta ganga og góð líkamsrækt.
Utanlandsferðir síðustu ár hafa verið
ýmist til Spánar að heimsækja dóttur okkar
og taka í leiðinni nokkra golfhringi eða til
Flórída og spila golf. Ekki kemur til greina
að fara úr landi á sumrin og missa af okkar
björtu sumarnóttum og íslenskri náttúru
þegar hún skartar sínu fegursta. Við erum
á leið til Spánar nú seinni hluta október og
gerum ráð fyrir að fara til Flórída í mars á
næsta ári.“
FV0808X.indd 144 10/28/08 2:53:20 PM