Frjáls verslun - 01.09.2008, Blaðsíða 126
126 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 8
Hvernig eyddu lífsstílsblaðamennirnir tímanum?
„Á þessu þriggja vikna tímabili komu síðan ýmsir sérhópar
um helgar, m.a. tískublaðamenn, m.a. frá lífsstílsblöðum
eins og Vogue, Cosmopolitan og InStyle. Þeir höfðu rýmri
tíma en bílablaðamennirnir og við vorum með allt öðru-
vísi dagskrá fyrir þá. Við leigðum nokkur veitingahús undir
þá og gerðum þeim kleift að kynnast íslenskri hönnun og
arkitektúr.
Þeir voru mjög ánægðir með Reykjavík og sögðu hana
nýjustu tískuborgina til að heimsækja. Við fórum með þá
í 45 manna hópum og sýndum þeim áhugaverða staði,
litum inn hjá nokkrum hönnuðum og höfðum með
arkitekt í för sem skýrði frá byggingarlist borgarinnar og
framtíðarsýn.
Erlendu blaðamennirnir fara mjög mikið í svona ferðir
og stöðugt er reynt að ná athygli þeirra svo okkur fannst afar
mikilvægt að í þeirra huga yrði þetta ekki „enn ein ferðin“.
Enda fannst þeim öll upplifunin einstök og voru þeir yfir
sig hrifnir af hinni hörðu, sérstæðu náttúru Íslands.“
Hver voru almenn viðbrögð gestanna?
„September var mjög erfiður mánuður í veðurfarslegu til-
liti, það rigndi stanslaust og Bláfjöllin voru ekki upp á sitt
besta. Húsið þar var með stórum glerfronti svo að á stuttum
tíma sáu gestirnir ýmis veðrabrigði; þoku, rigningu, sól og
fjölmarga regnboga. Andstæðurnar í mosanum fyrir utan
voru stórkostlegar og blómaskreytingar í glervösum með
hraunmolum í voru fallegar í flútti við glervegginn og
vöktu aðdáun gesta.
Þegar eru farnar að birtast umsagnir í blöðum þeirra
erlendis. Það sem við höfum séð er mjög gott. Þeir voru
þakklátir fyrir að fá „loksins að prófa bíl við almennilegar
aðstæður, ekki bara í sól og sælu“ og töldu sig geta lagt
miklu betra mat á ökuhæfni bílsins fyrir vikið.
Sérstakt tímarit var gefið út fyrir blaðamennina sem
komu til landsins. Það var veglegt og sameinaði myndir
og upplýsingar um land og þjóð, innan um myndir af nýja
Golf-bílnum. Við erum búin að útvega Útflutningsráði
u.þ.b. 150 eintök af þessu blaði enda nýtist það ákaflega
Fyrirkomulagið var þannig að
blaðamennirnir komu í 80 manna
hópum og stöldruðu við í einn
sólarhring. Þeir lentu hér um
hádegisbil og þá biðu þeirra 40 lúxus
VW Phaeton bílar á flugvellinum, en
hver tók tvo blaðamenn.
Gífurlegt fjármagn streymir inn
í landið í kringum svona viðburði,
í þessu tilfelli líklega einn milljarður króna.
Gómsætur matseðill íslensku matreiðslumannanna kitluðu
bragðlauka erlendu blaðamannanna, ekki síst íslenski
humarinn sem sló í gegn!
Músíkantarnir Börkur, Daði og Eyjólfur voru frábærir.
FV0808X.indd 126 10/28/08 2:49:58 PM