Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2008, Page 42

Frjáls verslun - 01.09.2008, Page 42
42 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 8 Er fall krónunnar og hlutabréfa að und- anförnu versta krísa sem þú hefur upp- lifað sem stjórnandi? Fall hlutabréfa snertir okkur lítið því við höfum ekki verið á þeim markaði en hrun fjármálakerfisins setur allan rekstur í upp- nám og mun fella mörg fyrirtæki sem ekki eru með greiðslustöðuna í góðu lagi. Það er skammtíma greiðslustaðan sem skiptir máli núna en ekki skráð eigið fé. Sem betur fer er SS mjög vel statt að þessu leyti. Hvaða lærdóm getum við dregið af þessari krísu? Að ganga hægt um gleðinnar dyr. Sígandi lukka er best og óhóflegur vöxtur án traustrar undirstöðu er fallvaltur. Það er napurt að heimsendaspár danske bank fyrir rúmu einu og hálfu ári síðan um íslensku bankana og fjármálakerfið skuli ganga eftir. Hvað hefur staðið upp úr hjá fyrirtæki þínu á árinu? Góður rekstur sem því miður hefur lent í skugga hækkunar erlendra lána. En núver- andi ástand beinir sjónum þjóðarinnar meira inn á við og við metum verðmæti innlendrar framleiðslu og þess að vera ekki um of öðrum háðir. Það gefur okkur og öðrum sem vinna út innlendum hráefnum byr í seglin. Telur þú að krónan sé búin að vera sem gjaldmiðill Íslendinga? Alls ekki ef við takmörkum umsvif innlendra fjármálastofnana við eðlilegt hlutfall af landsframleiðslu. Þeir sem vilja spila með stærri upphæðir geri það erlendis í erlendum félögum. Það þarf einnig að setja meiri takmarkanir á stöðu- tökur sem eru að sveifla gengi krónunnar langt úr eðlilegu jafnvægisgildi viðskipta- jöfnuðarins. Ert þú hlynnt(ur) því að Íslandi gangi í Evrópusambandið ef það er eina leiðin til að taka upp evru? Þetta er spurning um þjóðarstolt og huglæga þætti. Það er nokkuð ljóst að efnahagslega erum við betur komin í Evrópusambandinu en ég hef enn þá trú að við getum blómstrað sem sjálfstæð þjóð með stolt í hjarta og er því ekki hlynntur inn- göngu að sinni. Hefur þú trú á að hin alþjóðlega láns- fjárkreppa leysist á næstu mánuðum? Nei, það mun taka 2-3 ár að koma málum í góða stöðu aftur. Það versta verður yfir- staðið eftir um sex mánuði en timburmenn- irnir vara lengur. Ef þú ættir að gefa Geir H. Haarde for- sætisráðherra eitt gott ráð, hvaða ráð yrði það? Taka fastar á málum þegar verið er að leika sér með fjöregg þjóðarinnar. Stjórna en ekki bregðast við þegar hlutirnir eru komnir í óefni! STEINÞóR SKÚLASON, FORSTJóRI SS: Að ganga hægt um gleðinnar dyr Steinþór Skúlason, forstjóri SS. „Það versta verður yfirstaðið eftir um sex mánuði en timburmennirnir vara lengur.“ FV0808X.indd 42 10/28/08 2:26:35 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.