Frjáls verslun - 01.09.2008, Qupperneq 122
122 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 8
S t j ó r n u n
tvisvar sótt tíma hjá markþjálfum, í fyrra sinnið með góðum
árangri en ekki í því síðara.
Hún hefur líka hvatt stjórnendur á sjúkrahúsinu til að
sækja námskeið og segir: „Enginn getur verið stjórnandi í
gegnum langt líf án þess að fylgjast með.“ Og þetta á bæði
við um stjórnun og alla þróun í greininni.
Námskeið eru þó umdeild. Könnun innan norska heil-
brigðisgeirans hefur leitt í ljós að aðeins 7 prósent þeirra
sem sótt höfðu námskeið töldu sig hafa haft gagn af því.
Flestir litu á námskeiðin sem upplyftingu. Hulda segir að
það gleymist oft að gera kröfur til þeirra sem sækja nám-
seiðin.
„Það gleymist oft að spyrja: Hvernig getum við notað
það sem þú lærðir á námskeiðinu?“ segir hún.
Ekki beðin að sækja
Hulda segir að hún hafi á sínum tíma verið beðin um að
taka við stjórn Aker-sjúkrahússins. Hún sótti ekki um. Var
hún með sama hætti beðin um að taka við stjórn Landspít-
alans?
„Nei, en ég var hvött til að sækja um af fólki bæði innan
og utan spítala,“ segir Hulda. „Mér fannst einfaldlega freist-
andi að fá þarna möguleika til að koma heim og vinna við
það sem er hjarta mínu næst. Þess vegna sótti ég um.“
Og nú, eftir 19 ára útivist í Noregi og glæsilegan feril
þar, snýr Hulda heim til Íslands til að taka við sennilega
erfiðustu stöðunni í íslensku heilbrigðiskerfi. Óttast hún að
það verði litið á hana sem kraftaverkakonu?
Hulda hlær þegar ég nefni kraftaverkakonu. „Það vinnur
enginn kraftaverk einn,“ segir hún. „Þetta er allt háð starfs-
fólkinu og stjórnmálamönnunum. Ég kem með nýjar
hugmyndir og reyni að nýta mér það sem ég hef lært hér.
En þessar hugmyndir eru ekki endilega þær bestu en gætu
skapað umræðu meðal annarra stjórnenda og fagfólks.“
Hún segir líka að það verkefni sem hún tekst nú á
hendur sé síst minna en það að taka við Aker-sjúkrahúsinu
á sínum tíma.
Eiginmaðurinn óvænt forstjóri líka
En þessa heimkomu ber brátt að. Fjölskyldan var ekki
á leið til Íslands. Eiginmaður Huldu er Lars Erik Flatø,
stjórnmálafræðingur að mennt. Hann var nú í haust ráð-
inn forstjóri á Lovisenberg-sjúkrahúsinu í Ósló. Það er
einkastofnun. Áður var Lars aðstoðarráðherra í norska for-
sætisráðuneytinu undir Jens Stoltenberg.
Lars fékk stöðuna eftir að Hulda var ráðin að Landspít-
alanum og eftir að þau höfðu ákveðið að flytja til Íslands.
„Við urðum að stokka spilin upp á nýtt,“ segir Hulda.
„Hann vildi ekki sleppa þessu tækifæri þannig að hann fer
á milli landa og vinnur þrjár vikur í einu í Noregi en þess
á milli á Íslandi.“
Dóttirin Tinna, 10 ára, fer heim um áramót en fjöl-
skyldan hefur tekið á leigu hús í Kópavogi. „Ég er úr
Kópavoginum, foreldrar mínir búa þar og finnst gott að
geta verið nærri þeim,“ segir Hulda. Hún er dóttir Gunn-
laugs Hjálmarssonar, hins kunna handboltakappa, og Guð-
nýjar Andrésdóttur.
„Það verður gott að koma heim í Kópavoginn,“ segir
Hulda.
Hulda á ekki langt að sækja
keppnisskapið. Hún er dóttir
Gunnlaugs Hjálmarssonar,
sem var kunnur keppnismaður í
handbolta á árum áður.
FV0808X.indd 122 10/28/08 2:49:22 PM