Frjáls verslun - 01.09.2008, Page 133
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 8 133
Viggo Mortensen og Ed Harris reyna að
bjarga smábæ úr greipum glæpamanna.
Appaloosa
Átta ár eru liðin síðan hinn ágæti leikari
Ed Harris leikstýrði sinni fyrstu kvikmynd,
Pollock, sem fékk prýðisviðtökur. Myndin
fjallaði um listmálarann Jackson Pollock,
sem Harris lék og var hann tilnefndur til
óskarsverðlauna fyrir leik sinn. Appaloosa
er önnur kvikmyndin sem Harris leikstýrir
og leikur hann annað aðalhlutverkið á
móti Viggo Mortensen, en þeir náðu vel
saman í A History of Violence. Appaloosa
er hefðbundinn vestri þar sem Harris og
Mortensen leika tvo laganna verði sem
koma til smábæjar þar sem búgarðsei-
gandi ræður ríkjum. Sá er ekki vandur
að meðulum og hefur drepið alla þá sem
standa í vegi fyrir honum, þar á meðal
lögreglustjóra bæjarins. Jeremy Irons
leikur illmennið og Rene Zellweger leikur
ekkju sem er tvöföld í roðinu. Appaloosa
hefur fengið fínar viðtökur hjá gagnrýn-
endum vestanhafs.
Í leit að hryðjuverkamanni
Ridley Scott þurfti að fresta tökum á
Nottingham í sumar og óvíst hvenær
hann byrjar aftur. Í Nottingham er ævintýri
Hróa hattar séð með augum erkióvin-
arins, fógetans í Nottingham. Scott situr
þó ekki auðum höndum og er með mörg
járn í eldinum og meðal annars er hann
einn framleiðenda kvikmyndanna Cracks,
sem dóttir hans, Jordan Scott, leikstýrir,
og Welcome to the Rileys, sem sonur
hans, Jake Scott, leikstýrir. Þá er hann
að leggja síðustu hönd á Body of Lies,
sem frumsýnd verður í lok október. Um
er að ræða kvikmynd sem fjallar um
aðgerð á vegum CIA til að koma höndum
yfir leiðtoga hryðjuverkmanna sem hefur
höfuðstöðvar í Jórdaníu. Í aðalhlutverk-
um eru Leonardo DiCaprio og Russell
Crowe. Handritið er eftir William Monahan
sem skrifaði The Departed fyrir Martin
Scorsese.
Leonardo DiCaprio og Russell Crowe í
Body of Lies.
RocknRolla
Guy Ritchie var krónprins breska kvik-
myndaiðnaðarins eftir Lock Stock and Two
Smoking Barrels og Snatch. Hann féll af
þeim stalli þegar hann giftist Madonnu og
Swept Away og Revolver eru langt frá að
vera jafngóðar og fyrrnefndar kvikmyndir.
Með RocknRolla virðist eitthvað vera að
rofa til hjá honum og hefur myndin fengið
góðar viðtökur. Ritchie, sem skrifar einnig
handritið, er kominn á kunnuglegar slóðir
meðal glæpamanna í London. Gerard
Butler leikur aðalhlutverkið, krimmann
One Two, sem leikur tveimur skjöldum.
Þegar fréttist að rússneskur mafíuforingi
sé með snjalla áætlun um að græða
milljónir punda fer allt á annan endann í
undirheimum Lundúna og allir vilja fá bita
af kökunni. Auk Butlers leika í RocknRolla
Tom Wilkinson, Thandie Newton, Jeremy
Piven og Idris Elba.
sem fjallar um rannsóknina á fjöldamorð-
unum í My Lai. Á síðustu stundu hætti
Bruce Willis við þátttöku þar sem hann var
óánægður með handritið og ekki var hægt að
breyta handritinu vegna verkfalls handritshöf-
unda. Þá ákvað Stone að flýta W og frumsýna
hana fyrir forsetakosningarnar.
Ekki er hægt að segja að Stone hafi farið
óundirbúinn í verkið því þeir Weiser höfðu
lesið fjórtán bækur um George W. Bush áður
en ritstörfin hófust og þegar handritsgerðinni
lauk var fjórum sérfræðingum um forseta
Bandaríkjanna sent handritið til yfirlestrar.
Þeir gerðu sínar athugasemdir, en ekki er vitað
hvort Stone fór eftir þeim. Og þegar hans
orð eru höfð í huga, þar sem hann segist vera
orðinn þreyttur á að verja myndir sína fyrir
mönnum sem telja að hann fari rangt með
staðreyndir, þá er óvíst að hann breyti miklu
þótt athugasemdir hafi komið inn á hans
borð.
Leikarar voru lengi að ákveða sig
Þegar kom að því að finna leikara í hlutverk
Bush hafði Oliver Stone strax Joss Brolin í
huga. Hann sá Brolin í No Country For Old
Men og eitthvað sannfærði hann um að Brolin
væri rétti leikarinn í hlutverkið. Brolin segir
að þegar Stone hafði fyrst samband við hann
kvaðst hann hafa haldið að leikstjórinn væri
að grínast. Þegar alvaran kom í ljós var hann
algjörlega mótfallinn að taka að sér hlutverkið.
Það var ekki fyrr en Brolin hafði lesið hand-
ritið og sá að myndin yrði allt öðruvísi en
hann hafði gert sér í hugarlund að hann ákvað
að slá til.
Sama var upp á teningnum með aðra
leikara sem Stone vildi fá til að leika þekktar
persónur, flestir voru andvígir í fyrstu en sam-
þykktu eftir að hafa lesið handritið. Þetta eru
James Cromwell (George Bush eldri), Richard
Dreyfuss (Dick Cheney), Thandie Newton
(Condoleezza Rice), Toby Miller (Karl Rove),
Elizabeth Banks (Laura Bush), Scott Glenn
(Donald Rumsfeld), Ellen Burstyn (Barbara
Bush), Ioan Gruffudd (Tony Blair), Noah
Wyle (Don Evans) og Jeffrey Wright (Colin
Powell).
Eins og áður sagði verður W frumsýnd í
Bandaríkjunum 17. október og hér á landi er
áætlað að hefja sýningar á henni 7. nóvember,
en forsetakosningarnar eru 4. nóvember.
KVIKMYNDAFRÉTTIR
FV0808X.indd 133 10/28/08 2:51:33 PM