Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.02.2015, Síða 16

Fréttatíminn - 06.02.2015, Síða 16
É g þurfti viku eða tíu daga til þess að ákveða mig,“ segir Haukur Heiðar þegar hann er spurður út í þátttöku sína í Söngva- keppni sjónvarpsins í ár. „Ég var með Júróvisjón fordóma eins og allir aðrir á einhverjum tímapunkti. Mér finnst þetta samt hafa breyst á síðustu árum, fleiri að taka þátt og slíkt. Hér áður fyrr voru þetta alltaf sömu fimm söngvararnir sem tóku þátt en í dag er bara allskonar fólk að taka þátt. Fyrst og fremst fannst mér lagið sem Kalli sendi mér bara gott, og sá mig alveg syngja það,“ segir Haukur Heiðar en höfundur lagsins, Milljón augnablik, er píanóleikarinn Karl Olgeirsson. „Í fyrstu sagði ég þó að ég hefði ekki tíma í þetta vegna þess að Dikta er að leggja lokahönd á nýja plötu og ég er í krefjandi vinnu,“ segir Haukur sem er læknir og er að klára sitt sérnám í heimilislækn- ingum. „Lagið kveikti í mér, mér finnst þetta fínasta lag svo ég sló til eftir að hugsa þetta í smá tíma. Lagið á að skipta máli, ekki flytj- andinn. Ég held meira að segja að þeir hjá RÚV megi skipta út flytj- andanum á sigurlaginu ef þeim sýnist svo, en við skulum vona að það gerist ekki,“ segir Haukur. Færðu að hafa dansspor? „Nei sem betur fer er lítið um dansspor hjá mér, ég mundi frekar kjósa það smíða húsgögn á sviðinu en að dansa eitthvað. Það er ekki mín sterka hlið,“ segir Haukur. Ný plata á réttum hraða Hljómsveitin Dikta, sem Haukur stofnaði með skólafélögum sín- um fyrir 18 árum, er nú í óða önn að leggja lokahönd á sína fjórðu breiðskífu, og þá fyrstu í fjögur ár. Haukur segir að það hafi verið meðvituð ákvörðun að láta þenn- an tíma líða þar sem meðlimirnir hafi nánast unnið yfir sig á síðustu tveimur plötum. „Platan Get It Together, sem kom út 2009, sló í gegn svo um munaði og við spil- uðum alveg ótrúlega mikið í tvö ár, bæði hér heima og erlendis,“ segir Haukur. „Réðumst í aðra plötu árið 2011, Trust Me, sem flaug ekki eins hátt. Við sprung- um eiginlega svolítið á limminu. Við tókum þá plötu upp í mikilli tímaþröng og náðum engan veginn að vinna hana á þann hátt sem við hefðum viljað og fylgdum henni eiginlega ekkert eftir þar sem við vorum eiginlega bara búnir á því,“ segir Haukur. „Þetta hefur verið mun náttúrulegra núna með nýju plötuna. Við höfum leyft lögunum að anda og vinna þetta á okkar hraða.“ Hljómsveitin Dikta hefur verið iðin við að spila í Evrópu og þeirra hróður hefur verið hvað mestur í Þýskalandi. „Við höfum spilað í mörgum löndum en erum með út- gáfusamning í Þýskalandi og árið 2013 fórum við í hljóðver þar með þýskum pródúsent og byrjuðum að vinna að þessari nýju plötu,“ segir Haukur. „Þetta er ungur og efni- legur náungi sem sigraði þýsku X Factor keppnina sem upptökustjóri og það er alveg ótrúlega gaman og lærdómsríkt. Við fórum svo aftur út síðasta sumar í aðra törn til hans og hann kom svo hingað til Íslands í nóvember og var með okkur í upptökunum. Það er gott að fá einhvern utanaðkomandi í þennan þétta hóp sem hefur skoð- anir. Hann er harður húsbóndi en við réðum samt lokaútkomunum yfirleitt,“ segir Haukur. „Hann kom með mjög sterkar hugmyndir og þessi plata verður frábær, þó ég segi sjálfur frá,“ segir Haukur. Haukur, sem er læknir, segir það púsl að tengja saman þessa tvo ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA ÍSLENSK HÖNNUN 1 par - kr. 1.969 LANDINN ÍSLENSKIR ULLARSOKKAR HLÝIR, ÞÆGILEGIR OG ENDINGAGÓÐIR FÁST LOKSINS Í VERSLUNUM HAGKAUPS SMÁRALIND / SKEIFAN / KRINGLAN SELFOSS / AKUREYRI Haukur Heiðar segir oft erfitt að púsla saman læknastarfinu og tónlistinni. Ljósmynd/Hari Ég væri löngu fluttur út ef ég hefði ekki tónlistina Söngvarinn og læknirinn Haukur Heiðar Hauksson tekur þátt í söngvakeppni Sjónvarpsins í fyrsta sinn á laugardaginn. Hann segir þetta vera ansi frábrugðið því sem hann er vanur með hljómsveit sinni Diktu, en segir lagið vera það gott að hann hlakki til að flytja það. Hann er þó feginn því að þurfa ekki að dansa á sviðinu. ólíku starfsvettvanga. „Ég hefði líklegast verið löngu fluttur út ef ekki væri fyrir Diktu,“ segir Hauk- ur sem hefur tekið sitt sérnám í heimilislækningum á Íslandi. „Það er staðreynd.“ Togaðist þetta aldrei á? „Já og nei,“ segir Haukur. „Það hefur alltaf verið planið að fara ein- hvern tímann út, en svo hafa árin bara liðið og ég er bara heima. Það er ekki bara út af Diktu, maður er búinn að stofna fjölskyldu og slíkt í millitíðinni, en planið er að fara út eftir sérnámið“ segir Haukur sem er giftur tveggja barna faðir. Lífið er stutt Haukur samdi textann fyrir lag- ið sem hann syngur í Söngva- keppninni og segir hann byggja á eigin reynslu. „Kalli sendi mér texta sem hann hafði samið og ég fékk leyfi til þess að krukka í honum, sem endaði með því að ég samdi alveg nýjan texta, sem Kalli lagði lokahönd á með mér,“ segir Haukur. „Textinn fjallar um það að lifa í núinu og njóta lífs- ins. Ég þekki fullt af fólki sem er alltaf að spá í hvað það á að vera að gera í framtíðinni. Við getum lent undir strætó á morgun,“ segir Haukur. „Ég hef upplifað margt í mínu lífi og einnig í minni vinnu sem kennir manni hvað lífið getur verið ósanngjarnt og lífið er stutt. Maður á njóta þess að vera til og ég hef velt þessu mikið fyrir mér að undanförnu. Það hljómar eins og sjálfshjálparbók en svona er þetta bara. Lífið getur breyst snögglega og það er um að gera að njóta þess sem mest á meðan maður lifir því,“ segir Haukur Heiðar Hauksson, læknir og tónlistarmaður. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur 16 viðtal Helgin 6.-8. febrúar 2015

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.